Faxi - 01.12.1963, Side 9
Skólastjórar ó Suðurnesjum. Frá vinstri: Jón Ólafsson, Gerðum, Sigurður Ólafsson, Sand-
gerði, Sigurbjörn Ketilsson, Njarðvík, Hermann Einarsson, Keflavik, Bjarni M. Jónsson
námsstjóri, Aðalsteinn Hallsson, Höfnum, Einar Kr. Einarsson, Grindavík.
aS e. t. v. gæturn við hér suðurfrá fengið
afnot af sömu vél fyrst um sinn, ef góður
vilji væri fyrir hendi.
Stjornin fékk þetta mál síðan til með-
ferðar og má með sanni segja, að þarna
hafi komið fram fyrsti vísirinn að skóla-
kvikmyndasýningum hér á Suðurnesjum.
Þriðja framsagan var um að félagið
gengist fyrir að halda námskeið fyrir kenn-
ara á Reykjanesi. Benti frummælandi á,
hve æskilegt það væri og nauðsynlegt öll-
Um starfandi kennurum, að fá að njóta
leiðbeininga og góðrar tilsagnar í ýmsu
er að kennslustörfum lýtur. Hann benti
einnig á, að slík námskeið væru stundum
haldin í Reykjavík og sótt af kennurum
btan af landi, en mun heppilegra væri, að
halda þau heima í héraði, væri þess nokk-
Ur kostur. Ennfremur gat hann þess, að
°ft yrði að notast við erlenda kennara á
slíkum námskeiðum, en sitt álit væri, að
mun hagkvæmara væri að fá til þess ís-
lenzka menn, væru þeir fáanlegir. í þessu
sambandi benti Valdimar á Aðalstein Sig-
niundsson, en hann var um þessar mundir
Þjóðkunnur kennari og þaulvanur leið-
beinandi, t. d. í starfskennslu og vinnu-
óókargerð. Taldi Valdimar mikla mögu-
leika a að fá Aðalstein, ef félagið gengist
fyrir námskeiði, t. d. í Keflavík.
Um framsögu þessa urðu nokkrar um-
ra;ður og kom fundarmönnum saman um
að taka málið til nánari athugunar síðar.
~~ Hér má við þetta bæta, að eftir að mál
þetta hafði verið rætt og rannsakað á
fundum í félaginu, var námskeiðið haldið
1 barnaskóla Keflavíkur dagana 11.—16.
sept. 1939 og þótti takast í alla staði mjög
vel. Kennari námskeiðsins var Aðalsteinn
Sigmundsson.
Þátttakendur voru 12 starfandi kennar-
ar a Suðurnesjum. Námskeiðsgjald var 5
krónur, en til þess að standa straum af
kostnaði fékk félagið 100 kr. styrk frá
frarðslumálaskrifstofunni.
Hafði ritara á félagsfundi verið falið að
sja um námskeiðið og á aðalfundi félags-
lr>s, sem haldinn var á skírdag, 22. marz
1940, afhenti hann reikning yfir kostnað
við námskeiðið, og má hér til gamans geta
þess, að þegar allt var að fullu greitt, komu
25 aurar í afgang og voru víst allir ánægð-
lr með útkomuna.
Hér að framan hefur aðeins lítillega
verið drepið á þau mál, sem á góma báru
a fyrsta fundi félagsins. Á öðrum fundi
þess, sem haldinn var 20. des. 1938, einnig
1 barnaskóla Keflavíkur, voru samþykkt
lög fyrir félagið, sem stjórninni hafði á
októerfundinum þá um haustið verið fal-
ið að semja.
Þessi afmælisfagnaður okkar hér í kvöld
er því staðsettur nokkurn veginn mitt á
milli stofnfundarins 30. október og fund-
arins 20. desember, þegar formlega var
frá stofnun félagsins gengið.
Á sama fundi gerðist það einnig, að Val-
týr Guðjónsson hóf máls á því, hvort ekki
mundi rétt, að skólar á Reykjanesi gæfu
út sameiginlegt blað, sem börnin skrifuðu
í. Auk Valtýs ræddu fleiri fundarmenn
þetta athyglisverða mál og voru allir þessa
mjög fýsandi. Eftirfarandi tillaga frá Val-
tý var samþykkt samhljóða:
— Fundurinn samþykkir, að skólar á
Reykjanesi gefi út á næstkomandi vori
eitt fjölritað blað með myndum, sem ritað
sé af börnum. Sé útgáfan gerð vegna þeirra
ráðagerða, að vakin sé athygli á starfsemi
skólanna í hverju héraði. Á n. k. aðal-
fundi hafi skólastjórar barnaskólanna við-
að að sér efni og sé þá tekin ákvörðun um
stærð blaðsins og annað er að útgáfunni
lýtur. —
Þrátt fyrir þessa samþykkt hafði á næsta
aðalfundi aðeins borizt efni til blaðsins
frá skólanum í Sandgerði. Á þeim fundi
voru kosnir í blaðstjórn Valtýr Guðjóns-
son, Einar Kr. Einarsson og Valdimar
Ossurarson.
Á 4. fundi félagsins, höldnum að venju
í barnaskóla Keflavíkur, 4. marz 1940,
upplýsti formaður blaðstjórnar, Valtýr
Guðjónsson, að nefndin hafi valið blaðinu
nafnið Sæblik. Efni til þess hafi loks bor-
izt frá öllum skólunum, nema Gerðaskóla,
og hafði Valtýr fjölritað það í 200 eintök-
um og séð um dreifingu þess. Fullnaðar-
uppgjör á blaðinu lá ekki fyrir, þar sem
ekki allir skólar höfðu gert skil. Við þetta
má bæta, að fleiri tölublöð af Sæbliki voru
aldrei gefin út. Þannig fór um þá góðu
viðleitni. Minnir mig, að afdrifum blaðs-
ins hafi fyrst og fremst ráðið fjárhagsörð-
ugleikar.
Á þessum sama fundi voru mættir þrír
góðir gestir, þeir kennararnir Aðalsteinn
Sigmundsson, er verið hafði kennari á
fyrrgreindu námskeiði félagsins, Ingimar
Jóhannesson fyrrum skólastjóri, sem flutti
erindi á fundinum um skriflega íslenzku,
stílagerð, og Bjarni M. Jónsson, námsstjóri,
sem þá var kennari í Hafnarfirði. Var
þetta fyrsti fundurinn, sem hann heiðraði
félagið með nærveru sinni, en ekki sá síð-
asti. Og hefur Bjarni síðan setið marga
fundi þess og verið því á einn og annan
hátt hjálplegur og innan handar, enda
námsstjóri um Suðurland, einskonar and-
legt yfirvald okkar í öllum kennslu- og
skólamálum og sakir hæfileika sinna og
mannkosta, æskileg og þýðingarmikil per-
sóna, hvar sem kennarar komu saman til
að ráða ráðum sínum og skiptast á skoð-
unum um uppeldis- og kennslumál. Á
þeim vettvangi hafði hinn reyndi skóla-
F A XI — 165