Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1963, Side 11

Faxi - 01.12.1963, Side 11
niaður mikið til mála að leggja og því avallt kærkominn á fundi félagsins. Það var á fundi í félaginu þann 12. des. 1943, að Jón Jónsson skólastjóri í Höfn- um, vakti máls á sjóðstofnun á vegum fé- lagsins, sem yrði sameiginlegur ferðasjóð- Ur fyrir skólabörn á félagssvæðinu. Lagði hann til, að sjóður þessi yrði stofnaður með fjárframlögum frá kennur- unum sjálfum, félaginu og einnig yrði hreppsnefndum skrifað um málið með beiðni um nokkurn fjárhagslegan styrk í þessu skyni. Var þetta rætt á nokkrum fundum og skipuð í það nefnd, er samdi frumdrög að reglugerð fyrir þennan vænt- anlega sjóð, en málið komst þó aldrei í framkvæmd. Það strandaði á lélegum und- ntektum viðkomandi sveitarstjórna. Öllu fulltíða fólki er í fersku minni síð- asta heimssyrjöld og hvernig hún lék þær þjóðir, er hrammur hennar náði til. Ein þeirra var Noregur. A fundi í Félagi barnakennara á Reykja- nesi, sem haldinn var 3. febrúar 1946, bar þáverandi formaður, Valdimar Össurar- son, fram eftirfarandi fyrirspurn: — Eiga kennarar á Reykjanesi að gefa börnum á Reykjanesi kost á að styrkja fatæk börn í Álasundi? Kvaðst formaður hafa staðið í nánu sambandi við Álasund með bréfaskiptum við konu, sem þangað fluttist héðan af skaganum og fengið glöggar upplvsingar um neyðarástand það, er þar ríkti meðal ibúanna. Sagðist Valdimar hafa í hönd- unum skrá yfir 88 börn, sem væru at- hvarfslaus og hefðu því mikla þörf fyrir újálp. Var máli þessu að sjálfsögðu vel tekið af félagsmönnum og ákveðið að hefja strax slíka söfnun. Nafnalistanum var síðan skipt á milli skólanna, þannig að Njarð- víkurskóli sæi um 12 börn, Garður 12, Vatnsleysuströnd 6, Grindavik 12, Kefla- vík 31, Sandgerði 12 og Hafnir 3. Síðar a fundi í félaginu var frá því skýrt, að þessi söfnun hafi gengið mjög vel. Sendir voru 93 pakkar af margs konar þarflegum varningi, sem vóg 3 tonn. Rauði krossinn sa um útskipun og flutning þessara gjafa- pakka til Noregs, sem komu þar í góðar þarfir og voru þakksamlega þegnir. Á fundi 1946 vakti Sigurbjörn Ketilsson skólastjóri máls á því, hvort ekki mundi neppilegt, að skólarnir birtu árlega í Faxa stuttar skýrslur frá skólaslitum. Þar væri getið þess helzta í starfi viðkomandi skóla, Þlgreindur nemendafjöldi, heilsufar nem- Stjórn félagsins: Frá vinstri: Hallgr. Th. Björns- son, ritari, Gerður Sigurðardóttir, gjaldkeri og Hermann Eiríksson, formaður. enda og hæstu einkunnir. Var þessi hug- mynd nokkuð rædd á fundinum, einkum hvernig slíkar skýrslur skyldu gerðar, svo þær kæmu að sem beztum notum. En all- ir fundarmenn töldu æskilegt að af þessu gæti orðið. Var málinu beint til ritstjóra Faxa og mælzt til, að hann léði slíkum skýrslum rúm í blaðinu og ýtti jafnvel á eftir að skólarnir framkvæmdu slikar skýrslugerðir. Hefur þetta síðan verið fastur liður í Faxa. Eg hefi nú hér að framan sagt allýtar- lega frá ýmsum fundum og fundarsam- þykktum þessa félags og þó sérstaklega þeim fyrstu. Vitanlega mætti þannig lengi halda áfram að rekja hin margþættu verk- efni þess og störf frá liðnum árum. Mundi það að vonum verða alllangt mál, eins og framanskráð gefur nokkra vísbendingu um. En til þess að gera langt mál stutt, mun ég nú hér eftir aðeins drepa á helztu viðfangsefnin, enda er það sem síðar gerð- ist nær okkur og fleiri af viðstöddum, sem um þau mál hafa fjallað og því minni ástæða til að rifja þau upp hér. Svo álít ég líka hollt fyrir seinni tímann, þegar saga félagsins er öll, að eiga þá eitthvað í pokahorninu til að fylla út í þessa sund- urlausu mola. Starfsemi félagsins lá alveg niðri á ár- unum 1946—1950, og á því tímabili var Frá borðhaldinu. enginn fundur haldinn. Ástæðan var sú, að þáverandi formaður, Valdimar Ossur- arson, var fluttur af félagssvæðinu til Reykjavíkur. Hafði hann gerzt þar kenn- ari. Fyrir áeggjan nokkurra félagsmanna, kom hann suður og hélt fund 22. október 1950. Aðalumræðuefni þess fundar var, hvort leggja skyldi félagið niður eða halda starfinu áfram. Varð sú skoðun ofan á. Stjórn var félaginu þá kosin, þannig skipuð: Hermann Eiríksson, Sveinn Hall- dórsson og Aðalsteinn Teitsson. Valdimar Ossurarsyni voru á fundinum færðar þakkir fyrir mikið og óeigingjarnt starf í þágu félagsins og honum óskað heilla í hans nýju heimkynnum. Eins og fram kemur í ýmsum ívitnun- um hér að framan, voru fundir félagsins framan af oftast haldnir í Keflavík, sem lá mest miðsvæðis á félagssvæðinu, enda voru alltaf einhverjir héðan í stjórninni. Nokkrir fundir voru þó haldnir utan Keflavíkur á þessum árum. T. d. einn í Hafnarfirði 11. apríl 1944. Á þeim fundi var námsstjórinn, Bjarni M. Jónsson, mættur og lýsti þar m. a., hvernig hann hefði þá um skeið hagað eftirlitsstarfi sínu, sem var einkar fróðlegt fyrir kenn- ara að fá vitneskju um, enda notuðu menn sér óspart nærveru námsstjórans og spurðu margs. Árið 1954 var stjórn félagsins þannig skipuð: Hermann Eiríksson formaður, Einar Kr. Einarsson gjaldkeri og Hall- grímur Th. Björnsson ritari, og hafði þessi stjórn þá verið óbreytt s. 1. tvö ár. Á þessum fundi kom fram tillaga frá Sigurbirni Ketilssyni, svo liljóðandi: — Aðalfundur Félags barnakennara á Reykjanesi samþykkir að kjósa framvegis stjórn félagsins þannig, að stjórnin sitji F A X I — 167

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.