Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.12.1963, Qupperneq 25

Faxi - 01.12.1963, Qupperneq 25
sami og áður, er snotur og málaður blár og rauður. Silfurkaleikur með patínu af silfri. Korpóralklútur af rauðu flöjeli með gylltum ísaum, 2 pör stjakar pletteruð, 1 do af messing, 1 do af composition, ljósa- söx og lugt af messing. Bakstursdósir af tré. Hökull af rauðu flöjeli með hvítum krossi, eitt rikkilín nýtt, altarisklæði og brún af rauðu flöjeli. Kristalls-ljósahjáim- ur, 12 kertaliljur af tré, málaðar, skírnar- fat af composition, 1 klukka er í turnin- um á ramböldum. Söngspjöld eru 2 og 7 grafminningarspjöld. Allur frágangur á þessu húsi er hinn vandaðasti og vottar bæði um rausn og alúð kirkju-proprietaríi, sem allt vill vanda til að gjöra kirkjuna sem veglegasta. Eftir byggingarreikningi, sem inn- færður er í kirkjubókina og síðar verður sendur til biskupsúrskurðar, er kostnað- urinn við byggingu þessa 1.925rd 2m 41sk og kirkjan í næstliðnum fardögum skuldug um 153d lsk. Steinstétt vönduð er lögð frá kirkjudyrum að sálu'hliði, en þar vantar enn nú grind, sömuleiðis þarf bæði að byggja upp kirkjugarð að norðanverðu, samt færa hann út. Þetta tilsegist sóknar- mönnum að fullkomna. Graftól fylgj a kirkjunni nægileg. Ljósahjálmur sá, sem að framan er tal- inn, er gefinn af kaupmanni P. Duus. Sóknarmenn og aðrir hafa samtals gefið kirkjunni 218rd og proprietarius gefur henni nú af byggingarkostnaðinum 200rd. O. Pálsson. K. Ketilsson. S. Sívertsen.“ Nú hefði mátt gera ráð fyrir að vel væri séð fyrir kirkjuhúsakosti Hvalsnesssafn- aðar um Ianga tíð með hinu stóra og veg- lega og í alla staði vandaða kirkju'húsi, sem vísitasían lýsir svo nákvæmlega fyrir okkur, en eins og frarn kemur hér á eftir, stóð kirkja þessi ekki nema aðeins 23 eða 24 ár. Orsakir til þess að svo skammur tími leið unds ný kirkja var reist geta verið margar, en hér vil ég aðeins nefna þetta: Gamall maður, sem bjó um langa tíð hér í nágrenni sagði mér að eitt sinn, er ferming fór fram í Hvalsneskirkju á Hvítasunnu hafi Ketill í Kotvogi verið viðstaddur ásamt fjölda fólks, sem var það mikill, að kirkjan tók ekki alla við- stadda, hafi Ketill þá sagt, að hann gæti ekki vitað til þess að fólk, sem vildi hlíða messu, hefði ekki þak yfir höfuðið. Einnig hefur frú Vigdís Ketilsdóttir, sem enn er á lífi, háöldruð; sagt mér þetta: Eitt sinn á útmánuðum komu að Kot- Kirkjukórinn ásamt organistanum, Magnúsi Pálssyni. Fremri röð frá vinstri: Svava Sig- urðardóttir, María Stefánsdóttir, Snjólaug Sigfúsdóttir, Þuríður Gísladóttir, Elinóra Þórðar- dóttir, Ingibjörg Margeirsdóttir, Birna Margeirsdóttir (dóttir Elinóru), Margrét Marons- dóttir og Margrét Pálsdóttir. — Aftari röð fá vinstri. Björgvin Pálsson, Einar Júlíusson, Gunnlaugur Einarsson, Páll Ó. Pálsson, Sveinn Pálsson, Sveinn Einarsson, Arnaldur Ein- arsson, Henrik Jóhannsson og Agnar Júlíusson. Organistinn, Magnús Pálsson, situr á stól framan við söngkórinn. Til gamans má geta þess hér, að öll Pálsbörnin á myndinni eru alsystkin og í öðru lagi allir Einarssynirnir eru albræður og þessir tveir hópar eru syst- kinabörn. Má af þessu sjá, hvað einstakar ættir leggja stundum stóran skerf til menningar— mála sinnar heimabyggðar. vogi tveir menn innan af Nesi og áttu erindi við föður hennar, er menn þessir voru farnir aftur spyr móðir Vigdísar mann sinn hverra erinda mennirnir hefðu farið. Ketill svaraði að þeir hefðu verið að segja sér að kominn væri leki að þaki kirkjunnar að Hvalsnesi. „Og hvað ætlar þú að gera,“ spyr konan. Þá segir Vigfús að faðir sinn hafi þagað um stund, en sagt síðan: „Nú veit ég hvað ég geri, ég byggi nýtt guðs musteri af steini, sem geti staðið um ár og aldir“. Lítið meira var um þetta tálað heima, en eins og allir hér viðstaddir vita, var ekki látið sitja við orðin ein, heldur hafizt handa af þeim stórhug og dugnaði, sem enn má sjá í hinu fagra guðshúsi, sem nú nýlega átti 75 ára afmæli og er tilefni þess að vér erum nú hér samankomin. Bygging kirkjunnar hófst árið 1886 og var lokið ári eftir, var hin nýja kirkja vígð á jóladag árið 1887 af sóknarprestin- um, sr. Jens Pálssyni, í umboði biskups, sem vegna vanheilsu ekki gat framkvæmt athöfnina sjálfur. Lýsingu hinnar ný- byggðu kirkju er að finna í prófastsvísi- tasíu frá 17. júlí 1888, sem hér fer á eftir: „Ár 1888, 17. dag júlímánaðar vísiteraði prófasturinn í Kjalarnesþingi, Þórarinn Böðvarsson, kirkju og söfnuð að Hvals- nesi, hafði þar að undanförnu verið timb- urkirkja, sem búið er að rífa, en byggja steinkirkju, var hún byggð ár 1887. Stein- kirkja þessi er á lengd 20 álnir að utan- máli, en breidd hennar 17 álnir að utan, en þykkt veggjanna 20 þumlungar. Hæð veggjanna frá grunni er utan 6 álnir og 20 þuml. upp að þakskeggi. Gluggafög eru fjögur á hvorri hlið með krosspóst- um og eru 6 rúður undir þverpóstinum, en 2 hálfar bogarúður fyrir ofan þver- póst. Bogi úrhöggnum steini er yfir glugg- unum að utan. Vængjahurð með skrá og lörnum er á vesturgafli kirkjunnar, með mahogni spjöldum og bogagluggi yfir með 4 rúðum, þar yfir eru á vesturgafli 2 boga- gluggar með 6 rúðum hvor. Framh. í næsta blaði. Forsíðumyndin og aðrar myndir hér í blaðinu úr 75 ára afmælisfagnaði Hvalsneskirkju og einnig myndirnar frá kennarahófinu eru teknar af Heimi Stígssyni ljósm. F A XI — 181
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.