Faxi - 01.12.1963, Side 35
Benedikt S. Bjarklind iótinn
Að hittasl og gleðjast hér um fáa daga.
Að lieilsast og kveðjast, Jiað er lífsins saga.
Fréttin um lát Benedikts S. Bjarklinds
stórtemplars kom eins og reiðarslag yfir
vini hans og samstarfsmenn. Svo er það
tetíð, þegar góðir menn hverfa af sjónar-
sviðinu á miðju manndóms- og þroska-
skeiði. Það orkar á hugann eins og þegar
dimmt ský dregur skyndilega fyrir bjarta
sumarsól.
Eins og lesendum Faxa mun kunnugt
frá fréttum útvarps og dagblaða, andaðist
Benedikt á Ríkissjúkrahúsinu í Kaup-
mannahöfn þann 6. september síðastlið-
inn og var jarðsettur frá Jerúsalemskirkju
í Kaupmannahöfn þann 13. sama mánað-
ar.
Benedikt S. Bjarklind var fæddur á
Húsavík 9. júní 1915. Faðir hans var Sig-
urður Bjarklind, fyrrum kaupfélagsstjóri,
en móðir hans var Unnur Benediktsdóttir
Bjarklind, hin ástsæla skáldkona Hulda,
dóttir Benedikts Jónssonar frá Auðnum,
hins nafnkunna félagsmálaforingja og
samvinnumanns.
Benedikt Bjarklind var lögfræðingur að
menntun og starfaði hjá borgarfógetanum
í Reykjavík frá því hann lauk embættis-
prófi í lögfræði og til dauðadags.
Árið 1957 var Benedikt kjörinn stór-
templar og gegndi því háleita og vanda-
sama starfi æ síðan, enda átti bindindis-
starfið í landinu eftir það hug hans allan,
og fyrir það málefni barðist hann af hóg-
værð og sanngirni. I þeirri mikilvægu og
drengilegu baráttu eignaðist hann fjöl-
marga vini og samstarfsmenn, sem dáðust
að þessum einlæga mannkostamanni og
úrengilegum vopnaburði hans fyrir góðum
°g göfugum málefnum.
Benedikt var einn af stofnendum
»Abyrgðar“, tryggingafélags bindindis-
manna og Bindindisfélags ökumanna. •—
Hann var fulltrúi íslands í stjórn templ-
arasamtaka Norðurlanda.
Kvæntur var Benedikt ágætri danskri
konu, Elsu, dóttur Adolphs Hansen, eins
fremsta baráttumanns Dana í bindindis-
málum.
Minningarathöfn um Benedikt S. Bjark-
lind fór fram í dómkirkj unni í Reykjavík
fimmtudaginn 19. september. Að henni
stoðu systkini hins látna, templarar, Bind-
Bencdikt S. Bjarklind,
stórtemplar.
indisfélag ökumanna og Tryggingafélagið
„Ábyrgð“.
Undirritaður átti því láni að fagna, að
hafa náin kynni af þessum mikilhæfa og
elskulega manni við margvísleg störf inn-
an Reglunnar bæði í framkvæmdanefnd
Stórstúkunnar og á Stórstúkuþingum,
þar sem Benedikt stjórnaði fundum af
festu og hugljúfum myndugleik og leiddi
þar til farsælla lykta viðkvæm og vanda-
söm málefni Reglunnar.
Það var ekki stórlætið né fyrirferðin,
sem veitti Benedikt hrautargengi til
mannaforráða innan Góðtemplarareglunn-
ar, slíkt fannst ekki í fari hans. Nei, það
var drengskapur og skilningsrík, ljúf-
mannleg framkoma hans, sem gerði hann
ákjósanlegan forustumann og ávann hon-
um vináttu og trúnað góðra manna, bæði
innan Reglunnar og utan hennar. Hann
var hugsjónaríkt göfugmenni og manna-
sættir og því var gott að fylgja honum
að málum og vinna eftir leiðsögn hans
undir merkjum Reglunnar.
H. Th. B.
Nýjar bækur í bókasafnið:
Barnabækur:
Holm, Jens K.: Kim og stúlkan í töfrakistunni.
Michael, Thomas: Pétur og Kata.
Disney, Walt: Zorro berst fyrir frelsinu.
Vernes, Henry: Fjársjóður sjóræningjans.
Rydman, Daisy: Flugfreyjan.
Gunnar M. Magnúss: Við skulum halda
á Skaga.
Bögenæs, Evi: Anna Beta og Friðrik.
Haller, Margarethe: Skólasystur.
Vilbergur Júlíusson: Litli Reykur.
Kári Tryggvason: Palli og Pési.
Crompton, R.: Afram Grímur grallari.
Holm, Jen K.: Kim og njósnararnir.
Ulrici, Rolf: Konni fer í víking.
Reinheimer, Sophie: Lísa-Dísa fer í skóla.
Reinheimer, Sophie: Lísa-Dísa yndi ömmu
sinnar.
Gazelle, Björg: Matta-Maja dasnar.
Brisley, Joyce: Trilla og leikföngin hennar.
Haller, Margarethe: Erna.
Ahlrud, Sivar: Vinstri útherji.
Hjörtur Gíslason: Bardaginn við Brekku-
Bleik.
Skáldsögur eftir erlenda og innlenda höfunda:
Rolland, Romain: Jóhann Kristófer VII—VIII
bindi.
Solzhenitsyn, Alexander: Dagur í lífi Ivans
Denisovichs.
Ingibjörg Jónsdóttir: Ast til sölu.
Lampedusa, Giuseppe di: Hlébarðinn.
Marshall: Sonur eyðimerkurinnar.
Ragnar Þorsteinsson: Morgunroði.
Arni Olafsson: Draumadísin.
Ingibjörg Sigurðardóttir: Læknir í leit að
hamingju.
Baldur Óskarsson:: Dagblað.
Arni Ólafsson: Húsfreyjan á Fossá.
Guðrún frá Lundi: Stýfðar fjaðrir, III bindi
Norris, Kathleen: Unaðsstundir.
Söderholm, Margit: Karólína á Hellubæ.
Shann, Renée: Hjúkrunarneminn.
Cavling, Henrik Ib: Erfinginn.
Charles, Theresa: Lokaðar leiðir.
Jón Vagn Jónsson: Ast og örlög.
Jón Aðalsteinn: Vonglaðir veiðimenn.
Dumas, Alexandre: Skytturnar, I.
Elínborg Lárusdóttir: Eigi má sköpum renna.
Mac Leanl, Alistair: Til móts við gullskipið.
Ævisögur, ferðasögur, viðtalsbækur og
Jijóðlegur fróðleikur:
Gísli Sigurðsson: Ut úr myrkrinu.
Gísli Sigurðsson: Þvi gleymi ég aldrei, II b.
Sveinn Víkingur: Islenzkar ljósmæður, II.
Stefán Jónsson: Þér að segja:
Hallgrímur Jónasson: Við fjöll og sæ.
Sigríður Björnsdóttir: I ljósi minninganna.
Vilhj. S. Vilhjálmsson: í straumkastinu.
Jónas Þorbergsson: Afreksmenn.
Kruuse, Jens: Við ókum suður.
Breinholst, Willy: Hinn fullkomni eiginmaður.
Ólafur Tryggvason: Tveggja heima sýn.
Halldór Kiljan Laxness: Skáldatimi.
Lúðvík Kemp: Sagnir um slysfarir í Skefib-
staðahreppi.
Matthías Jóhannessen: Hugleiðingar og viðtöl.
Kristinn Reyr: Mislitar fanir.
FAXI — 191