Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1963, Blaðsíða 44

Faxi - 01.12.1963, Blaðsíða 44
Sigríður S. Sveinsdóttir F. 2. des. 1882. — D. 21. nóv. 1963. Sigríður var £ædd í Grindavík, dóttir hjónanna Ástriðar Gunnarsdóttur og Sveins Einarssonar. Hún var elzt af 5 systkinum og eru þrjú þeirra nú á lífi: Margrét, Elísabet og Einar. Hún ólst upp hjá foreldrum sínum, en hóf búskap hér í Keflavík 22ja ára gömul með Júlíusi Björnssyni úr Hafnarfirði. Bjuggu þau í Hábæ. Júlíus var fullum 30 árum eldri en Sigríður. Hann andaðist árið 1928, 74 ára að aldri. Þau eignuðust 6 börn og eru þau öll á lífi: Elentínus skipstjóri í Kefla- vík, Georg sjúklingur í Reykjavík, Ást- ríður ekkja í Keflavík, Sverrir alþingis- maður í Reykjavík, Lára húsfrú í Kefla- vík, og Einar bifreiðarstjóri í Keflavík. Ennfremur ólu þau upp Maríu dóttur Júlíusar. Eftir að Elentínus missti fyrri konu sína tók Sigríður að sér eldri dóttur hans Júlíönu Sigríði og ól hana upp. Sigríður var mikil mannkostakona, trú- rækin og kærleiksrík móðir barna sinna og fósturbarna. Og þó að lífið léki ekki alltaf við hana, átti hún þó margar yndis- stundir með sínum góðu börnum. Þegar Sigríður var á seytjánda ári gekk hún í stúku. Upp frá því hélt hún órofa- tryggð við Regluna og var alltaf í stúku bæði í Grindavík og hér, þegar hún átti Sigríður S. Sveinsdóttir. þess kost. Var bindindismálið hennar hjartans mál og var sæti hennar alltaf vel skipað, og rækti hún starf sitt með þeirri alúð og trúmennsku, sem einkenndu öll hennar störf, enda hafði stúkan Vík fyrir nokkru kjörið hana heiðursfélaga sinn. Við stúkufélagar hennar þökkum henni að leiðarlokum langt og farsælt starf og biðjum henni og eftirlifandi ástvinum hennar allrar blessunar. Guðni Magnússon. Á LÉTTUM NÓTUM Vandi fylgir vegsemd hverri, og svo var líka um það að vera matsveinn á skútu í gamla daga. Þegar hafður var fiskur til mat- ar, lögðu hásetarnir fiskinn til sjálfir, hver handa sér og var þá oft um ærið margar sortir að ræða. Sumir lögðu kannski til stein- bít, aðrir karfa, ýsu, lúðu, kinnar, o. s. frv. allt eftir því, hvað hver hafði handbært hverju sinni. Þetta þurfti kokkurinn allt að muna svo hver fengi sitt. Þá var það eitt sinn í Keflavíkinni, að kokkurinn hafði soðið fisk, og þegar þar að kom, að hann skyldi færa upp úr pottinum, ruglaðist hann gjörsamlega í sorteringunni, svo allt lenti í pati. Byrjaði þá óðara rimma og var hann óspart ausinn skömmum. Við þetta þykknaði í kokknum, svo hann tók það ráð, að hann hvolfdi úr pottinum á lúkars- gólfið og sagði um leið: — Hana, þarna hafið þið það. . . . Nú getur hver hirt sitt. Einu sinni var vörubíll frá stöðinni hér að losa ýmsar útgerðarvörur um vetrarvertíð, sem hann hafði komið með frá Reykjavík. Meðal annars losaði hann hjá Manga Lofts. Þessa vertíð var gerður út bátur héðan er Þristur hét. Er minnka tók á bílnum, saknaði bílstjórinn tvistpoka, sem líklega hafi farið annað en hann átti að fara. Síðar um kvöldið komst hann að þeirri niðurstöðu, að senni- lega muni pokinn hafa lent hjá Manga Lofts. Morguninn eftir hringdi hann til Manga og spurði hvort ekki hefði nú slæðst til hans tvistpoki í gær í ógáti. Mangi var fljótur til svars eins og venjulega og sagði: — Þristur á sjó. Jú, jú, allir á sjó og Þrist- ur líka. Blessaður. Kaupmenn, kaupfélög! Enn sem fyrr höfum vér til sölu úrvals ilmvötn og kölnarvötn frá Frakklandi, Englandi, Spáni, Vestur-Þýzkalandi, U. S. A., Tékkóslóvakíu, Rússlandi, Danmörku, Austur-Þýzkalandi, Monaco og Sviss. — Ennfremur eru ávallt fyrirliggjandi ýms- ar tegundir af rakspíritus, hárvötnum og andlitsvötnum. Gerið jólapantanir tímanlega. Afengis- og tóbaksverzlun ríkisins Skrifstofur: Borgartúni 7. Sími: 2 42 80 Afgreiðslutími frá kl. 9—12,30 og 1—16, nema laugard. frá kl. 9—12 200 — FAXI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.