Faxi - 01.12.1963, Page 45
Njarðvíkurkirkja eignast vandað
og glæsilegt pípuorgel
Viðtal við Guðmund Finnbogason, sóknarnefndarformann
í fyrrahaust varð Guðmundur Finn-
bogason, sóknarnefndarformaður, Innri-
Njarðvíkurkirkju fimmtugur. I tilefni af
því flutti Faxi langt og ýtarlegt viðtal við
Guðmund í jólablaðinu, þar sem hann til
viðbótar við almennt afmælisrabb, sagði
sögu Njarðvíkurkirkju, en Guðmundur
er mjög áhugasamur um þau málefni og
aðalhvatamaður að hvers konar umbót-
um og fegrun kirkju sinnar, eins og les-
endum Faxa má kunnugt vera frá þessu
afmælisrabbi.
Nú á s.l. ári hefir Guðmundur staðið
fyrir fjáröflun til orgelkaupa. Fyrstu drög
að sjóðmyndun í þessu skyni hófust í sept-
ember 1962 og hefir niðurstaðan orðið sú,
að tæpu ári síðar er nýtt og vandað pípu-
orgel komið í Njarðvíkurkirkju.
I tilefni þessa merkis atburðar, hitti ég
Guðmund að máli nú á dögunum og sagði
hann mér þá nánar af gangi þessa máls.
Gef ég honum hér með orðið.
— Eg vil koma á framfæri innilegu
þakklæti til allra þeirra mörgu, sem lögðu
þessu máli lið, bæði með rausnarlegum
peningagjöfum og á ýmsan annan hátt
greiddu götu þess, að kirkja okkar gat
eignazt þetta ágæta hljóðfæri. Er hér um
að ræða vestur-þýzkt pípuorgel, 6 radda
nieð 5 röddum i hljómborði, en sjötta
röddin er fótspil (petali) 16 fóta. Auk þess
hefir orgelið svo kallaðan „Sveller", en það
er tækni til að styrkja eða veikja tóna
hljóðfærisins. Af kunnáttumönnum, sem
um þetta hljóðfæri hafa fjallað, er það
talið hinn ágætasti gripur, enda eru allir
ngög ánægðir með orgelkaupin.
— Og hvað hefir svo þetta ágæta hljóð-
feri kostað?
— A þessu stigi málsins get ég ekki
gefið við þ essari spurningu tæmandi svar,
þar sem svo ótal margt grípur inn í orgel-
kaupin, sem ekki hefir enn verið unnt að
sundurliða. En víst er það, að orgelið var
^ýrt og mun dýrara en búizt hafði verið
v>ð í upphafi og liggja til þess ýmsar veiga-
miklar ástæður, t. d. þegar til kom, varð
að láta smíða orgelið sérstaklega fyrir
°kkar aðstæður, í stað þess að við höfðum
reiknað með að geta fengið það af lager-
gerð.
Guðmundur Alfreð Finnbogason.
— Hver sá um orgelkaupin hjá hinni
erlendu verksmiðju?
— Biskupsembættið skipaði á s.l. ári
3ja manna nefnd til að vera leiðbeinandi
við slík orgelkaup og aðstoða við kaupin.
Formaður nefndarinnar er söngmálastjóri
þjóðkirkjunnar, Róbert Abraham Ottós-
son. Hefir nefndin undir forustu hans
unnið gott starf og á hún miklar þakkir
fyrir það ágæta lið, sem hún veitti okkur
í þessum málum.
— Hver setti orgelið upp?
Njarðvíkurkirkja.
— Það gerði þýzkur sérfræðingur í upp-
setningu orgela undir yfirumsjón söng-
málastjórans, sem var á staðnum svo að
segja alla dagana sem verkið stóð yfir. Og
er því var lokið var hljóðfærið tekið út,
sem kallað er, að viðstöddum söngmála-
stjóra og meðnefndarmanni hans, Páli Kr.
Pálssyni organleikara, prófasti, sóknar-
presti, safnaðarstjórn og orgelleikara
kirkjunnar, Geir Þórarinssyni. Orgelið var
svo vígt af sóknarprestinum sr. Birni Jóns-
syni þann 20. október. Við þá athöfn var
nær 100 manns í kirkjunni. Verður okkur
Njarðvíkingum þetta minnisstæður og
ógleymanlegur dagur. Eftir guðsþjónustu
var viðstöddum boðið til kaffidrykkju í
hinu nýja félagsheimili Njarðvíkur. Stóð
sóknarnefnd fyrir góðgerðunum, en safn-
aðarkonur gengu um beina af mikilli prýði.
Við þetta tækifæri fluttu ávörp formaður
sóknarnefndar, Guðm. Finnbogason, Jón
Asgeirsson sveitastjóri, sr. Björn Jónsson
og söngmálastjórinn, Róbert A. Ottós-
son. Við þetta má svo bæta, að þennan
sama dag var ný kirkjuhurð tekin í
notkun og vígð, en hún var smíðuð af
Einari Þorsteinssyni trésmíðameistara í
Keflavík, en tekinuð af Ragnari Emils-
syni arkitekt frá Reykjavík. Við þessa
minnisstæðu guðsþjónustu var í fyrsta
sinn hringt í Innri-Njarðvíkurkirkju
klukku, er Keflavíkursöfnuður gaf kirkj-
unni á s.l. vori. Vil ég nota þetta tæki-
færi til að koma á framfæri innilegu þakk-
læti fyrir þá góðu gjöf.
— Eg hefi frétt, Guðmundur, að þú
sért formðaur hinnar hreppsskipuðu Jóns
Þorkelssonar nefndar.
— Já, svo má víst kalla það.
F A XI — 201