Faxi - 01.12.1963, Side 47
— Eins og þú veizt, Guðmundur, hefir
margt og mikið verið um þessi mál ritað
hér í Faxa og víðar, og þá sérstaklega um
þennan merka mann. Hefir eitthvað nýtt
gerzt í þeim málum?
— Já, sem betur fer tel ég að nú sé loks
fast undir fútum í þeim efnum. Þessi
Minnisvarði Jóns Þorkelssonar. (Teikning
Ríkharðs Jónssonar).
nýja nefnd hefir fjallað um málið í sam-
ráði við hreppsnefnd og aðrar nefndir, sem
að þessu málefni standa og er nú búið að
akveða stað fyrir minnismerki Jóns Þor-
kerlssonar á hæðunum austur af kirkjunni
í Innri-Njarðvík. Nú í október í haust
komu nefndirnar saman í Innri-Njarðvík,
asamt listamanninum, Ríkharði Jónssyni,
til að gera endanlega staðarákvörðun fyrir
minnismerkið, en Ríkharður hefir þegar
lokið við smíði listaverksins og hefir af-
steypa af því verið gerð í Danmörku og
mun væntanleg heim nú um áramótin.
Um byggingu fótstalls undir minnis-
merkið sér Njarðvíkurhreppur og hefir
hann nú þegar lagt fram fé á fjárlögum
til að standa straum af þeim kostnaði, en
sýslunefnd kostar sjálft minnismerkið.
Standa vonir til að það verði sett upp og
afhjúpað á sumri komanda. Land undir
minnsmerkið gefur frú Elín Sigmunds-
*íót;tir og dætur.
H. Th. B.
Tveir menn sátu saman i áætlunarbíl á leið
til Reykjavíkur. Þeilr voru í áköfum samræð-
Urn alla leiðina. Þegar komið var innundir
Hafnarfjörð, snerust umræðurnar um nýja
Keflavíkurveginn, þar til annar þeirra segir:
—- Mikið fjandi ætla þeir að leggja hann
langt frá byggðinni.
• Ja, það er nú ekkert smáræði, svaraði
kinn. Hann verður aðeins meðfram byggð,
nakvaemlega þar, sem engin byggð er.
P A X I — 203
Kef I ví kingar!
Sængurveradamask.
Sængurveraléreft, hvítt og mislitt.
Gardínuefni, margar gerðir.
Terylene í kjóla og kápur.
Kvensíðbuxur og herrabuxur.
Sirsefni, margir litir.
Kvenblússur, hvítar og mislitar.
Undirkjólar.
Millipils.
Náttkjólar.
Náttföt.
Nylonsokkar.
I
Crepesokkar.
Hellaskyrtur í úrvali.
Herrabindi.
Skyrtuhnappar.
Herrasokkar.
Herrafrakkar.
Kuldaúlpur.
Kuldabomsur, herra og drengja.
Herra- og drengjahanzkar.
KÁUPFÉLÁG SUÐURNESJÁ
V ef naðar vörudeild.