Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1963, Page 49

Faxi - 01.12.1963, Page 49
Eldeyjarferð um síðustu aldamót Eftirfarandi frásögn eftir Gísla Guð- mundsson er áður prentuð í Islenzkum sagnaþáttum og þjóðsögum dr. Guðna Jónssonar, XII. hefti 1957. Hér hefur örlitlu verið bætt inn í söguna. Eftir að Hjalta Jónssyni og félögum hans hafði tekizt að klífa Eldey vorið 1894 og koma festum í bjargið, var árleg venja á Suðurnesjum að fara þangað eftir fugli, en það er nær eingöngu súla, sem þar ræður ríkjum, og verpir hún í eynni. Venjulega var þá farið rétt áður en súlu- unginn varð fleygur, því að það var ung- inn, en ekki fullorðna súlan, sem sótzt var eftir. A haustin í október var oftast farið, og var þá reynt að sjá veðurútlit sem bezt fyrir, því að þá gátu menn ekki stuðzt við vísindalegar veðurspár, heldur urðu að öllu leyti að fara eftir sínum eigin ályktunum og eftirtekt. Oft reyndist það svo, þó að leiðin til Eldeyjar væri fremur stutt og lagt væri af stað í góðu veðri, að á skammri stund skipast veður í lofti, og hrepptu menn þá stundum vont veður og urðu að snúa aftur án þess að hafa náð í nokkurn fugl. Bar það þá við, að menn komust í æði krappan dans, áður en landi var náð. Hér verður sagt frá einni ferð til Eld- eyjar. Var hún ein af þeim síðustu, sem farin var á opnu skipi og um leið ein af þeim mörgu orrustum, sem menn verða oft að heyja við náttúruöflin í baráttunni fyrir lífi sínu. Haustið 1898 bjuggust tveir formenn af Miðnesi til Eldeyjar að sækja fugl. Þeir hétu Páll Magnússon og Sigurður Olafs- son, báðir bændur á Hvalsnesi í Miðnes- hreppi. Voru þeir hvor á sínu skipi, en voru samferða og ætluðu að hafa sam- vinnu um að fara upp í eyna og fanga fuglinn. Höfðu þeir gert tilraun til að fara fyrr um haustið, en þá orðið frá að hverfa. Hugðust þeir þá fara aftur, hve- hær sem veður yrði gott. Svo var það hinn 3- október, að formennirnir kölluðu há- seta sína snemma morguns, og skyldi nú fagt í fyrirhugaða Eldeyjarferð. Veðri var þá svo háttað, að örlítill andvari var af suðaustri eða austri og fremur skuggalegt hl lofts að líta, enda þótti sumum veður- utlit ekki sem tryggast. Þegar allir voru komnir til skips, var tafarlaust lagt af stað, og var þá um það bil að verða albjart af degi. Voru þá sett upp segl og siglt suður í Hafnir og þar teknir tveir menn, Guðjón Jósefsson og Agúst Gíslason. Þeir voru báðir úr Vest- mannaeyjum og vanir bjargmenn, enda voru þeir þess vegna fengnir með í ferð- ina. Þeir voru um þessar mundir heimilis- menn hjá Hjalta Jónssyni skipstjóra, sem þá bjó í Garðhúsum í Kirkjuvogshverfi í Höfnum. Viðdvöl var engin í Höfnum, Gísli Guðmundsson. því að mennirnir voru tilbúnir, er skipin komu. Var því samstundis haldið þaðan og stefnt út til Eldeyjar. Var þá nokkuð farið að herða vind af suðaustri, en þó eigi svo, að viðsjárvert þætti. Ferðin gekk greiðlega og tíðindalaust út til eyjar, en er þangað kom, var svo mikill brimsúgur, að ókleyft var að lenda við eyna. Var því ekki um annað að gera en snúa heim, þó að hart þætti að verða að koma tómhentur í annað sinn á þessu sama hausti og vera þó kominn svo nærri takmarkinu. En um annað var ekki að ræða. Þá er beðið hafði verið við eyna nokkra stund og sýnt var, að þar yrði ekki að- hafzt, voru sett upp segl á báðum skipun- um og haldið af stað til lands. Er nú ekki hægt að segja ferðasögu skipanna beggja í senn, því að segja má, að úr þessu hafi þau farið hvort sína leið, þó að þau hefðu að vísu nokkuð lengi snoðrænu hvort af öðru. Hér á eftir verður því sagt frá því, hvernig skipi Sigurðar Olafssonar reiddi af í ferð þessari, en til glöggvunar og fróð- leiks skal nú talin áhöfn á skipi hans, en það voru þessir 11 menn: Sigurður Olafs- son formaður, Magnús Einarsson og Gam- alíel Jónsson, allir á Hvalsnesi, Guðjón Þorkelsson, Landlist, Arni Eiríksson, Gerðakoti, Júlíus Helgason, Nýlendu, Þórður Sigurðsson og Ólafur Hjálmars- son, báðir í Móum, Guðni Jónsson, Fálk- húsum, og Guðjón Jósefsson og Agúst Gíslason, báðir í Garðhúsum í Höfnum. Þá er lagt var af stað frá Eldey, var um það bil að jöfnu dagmála og hádegis. Er siglt hafði verið stutta stund, setti yfir þoku með rigningu, svo að tók fyrir alla landsýn, en samt voru menn ókvíðnir, því að meðan bjart var, var vindstaðan þannig, að öruggt var talið að ná landi á einum bóg. Var nú siglt lengi, án þess nokkur merki sæjust til þess, að land væri nærri. Fóru menn þá að verða uggandi um, að þeir væru á réttri leið, en samt var haldið áfram stanzlaust í fullar 5 klukkustundir, eða þar til liðið var nokk- uð af nóni. Þá var talið fullvíst, að ekki væri allt með felldu um ferðalagið, þar sem aldrei hafði orðið vart við nein merki til lands, en alltaf rigning og dimmviðri og vindur vaxandi, enda var búið að fækka seglum að miklum mun. Eftir þessa löngu siglingu lét Sigurður menn sína taka niður segl og mæla dýpi til þess að reyna með því að fá vitneskju um, hvar þeir væru staddir. Var dreka varpað fyrir borð og við hann fest 90 faðma langt færi,1) en það náði ekki til botns, og var þá færið og drekinn dregið inn aftur. Svo hvasst var nú orðið, að róa varð fullan róður á allar 10 árar til að halda á móti veðrinu, meðan verið var að mæla dýpið. Þegar búið var að draga inn drekann, voru aftur sett upp segl, framsegl og klýf- ir hvort tveggja rifað, og var nú haldið í gagnstæða átt, eða í suður, sem menn álitu vera. Þannig var siglt sleitulaust í nálega 4 klukkustundir eða þar til stundu fvrir náttmál. Veðrið hélzt alltaf eins. Alltaf var úrhellisrigning, en menn urðu hennar samt lítt varir, þótt mikil væri, því að svo miklar voru ágjafirnar vegna roksins. Auk 1) Hér fer ekki saman minni heimildar- manna, einn segir 90 faðma, en annar 60 faðma. Þykir hið fyrra líklegra, og er því þess vegna fylgt hér. F A X I — 205

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.