Faxi - 01.12.1963, Side 59
Karlakór Keflavíkur og undirleikarinn, frú Ragnheiður Skúladóttir.
Afmælistónleikor
Karlakórs Keflovíkur
Hinn 28. og 29. nóv. s.l. hélt Karlakór
Keflavíkur tónleika í Nýja bíó í Keflavík,
í tilefni af 10 ára afmæli kórsins.
A söngskrá voru 20 lög eftir innlenda
og erlenda höfunda, flest áður sungin og
að góðu kunn.
Karlakór Keflavíkur var stofnaður fyrir
10 árum, og hefur á því tímabili haldið
rnarga samsöngva, í Keflavík og víðs-
vegar um landið. Hefur hann notið vax-
andi álits, og er nú talinn af þeim, sem
vit hafa á, með betri kórum landsins.
Þjálfun kórsins er tvímælalaust í mjög
góðu lagi, söngmennirnir þannig tamdir,
að þeir hlýða stjórnandanum skilyrðis-
laust. Stjórnandinn, Herbert Hriberschek
Agústsson, er mikið menntaður hljóm-
listarmaður, sem greinilega hefur náð
mjög góðum tökum á söngmönnunum,
þannig að hann getur laðað fram hjá
þeim þann rétta blæ sem við á hverju
sinni. Er gott til þess að vita, að kórinn
hefur þegar háð sér öruggt sæti meðal
hljómlistarunnenda, og er það vel af sér
vikið, einkum þegar þess er gætt, að allir
kórfélagarnir eru menn hlaðnir dagleg-
um almennum störfum, hver á sínu sviði,
°g hafa því orðið að fórna frístundum
sínum í það að afla sér menntunar og
leikni til þess að geta flutt á fullkominn
hátt verk, allt frá léttu þjóðlagi upp í
operukóra stórmeistaranna.
Af einstökum verkefnum kórsins á
þessum afmælistónleikum mætti nefna
Ookkur, sem nutu sín sérstaklega vel. Lag
Sigfúsar Einarssonar, „Sefur sól hjá ægi“,
Var sungið með þeirri mýkt og hófsemi,
sem einkennir gerð lags og ljóðs. „Móðir
vor jörð“, eftir Ortelli, í útsetningu söng-
stjórans, er létt og fallegt lag, sem lét mjög
vel i eyrurn, einsöng i því söng Guðjón
Hjörleifsson. „Á vængjum söngsins" eftir
Mendelson, var dansandi létt og hljóm-
þýtt í meðferð kórsins, og efast ég um
að það hafi áður fengið smekklegri með-
ferð meðal íslenzkra kóra.. Sérkennandi
hrynjandi í lagi finnska meistarans Síbeli-
usar „Því er hljóðnuð þýða raustin“ kom
ánægjulega fram. Að vísu veit maður
aldrei hvenær þeir finnsku hljómar verða
nógu vel fluttir.
Veigamestu verkefni kórsins voru á síð-
ari hluta söngskrárinnar, svo sem „La
Dansa“ eftir Rossini, einsöngvari Haukur
Þórðarson, „Pílagrímssöngur“ og „Söng-
ur hásetanna" úr óperum Wagners. Þai'
sönnuðu, að kórinn þarf ekki að velja sér
svo mjög til flutnings þau hin léttari og
margsungnu kórlög. Söngstjórinn hefur
greinilega tök á því, að hagnýta merginn
í kórnum þannig, að hann standi undir
hinum þyngri klyfjum, enda er hið eilífa
líf karlakórssöngs svo bezt tryggt, að stefnt
sé á tindana en ekki flatneskjuna.
Tvö lög voru á söngskránni eftir Bjarna
J. Gíslason: „Alda sunnan úr í)ldum“ og
„Söngvar Völvunnar“, Hið fyrra hefur
kórinn sungið áður. Það er ástæða til að
fagna þeirri hreinu söngva-gleði, sem
fram kemur hjá höfundinum í báðum
þessum lögum, jafnvel einkum í hinu
síðara. Fengu bæði þessi verk hina beztu
meðferð og viðtökur.
Einsöngvar með kórnum voru for-
maður kórsins, Böðvar Þ. Pálsson, Guðjón
Hjörleifsson og Haukur Þórðarson. Leystu
þeir allir hlutverk sitt vel, enda klöppuðu
áheyrendur þeim óspart lof í lófa. Tveir
hinir fyrst nefndu eru orðnir nokkuð
vanir einsöng með kórnum, en Haukur
mun hafa sungið einsöng einu sinni áður.
Með söng sínum að þessu sinni hefur hann
tryggt sér það að verða valinn oftar í ein-
söngshlutverk.
Undirleik á flygil annaðist ung og vax-
andi listakona, Ragnheiður Skúladóttir, á
aðlaðandi og smekklegan hátt.
Fjórir af kórfélögum hafa myndað
kvartett, og söng kvartettinn nokkur lög
á tónleikunum.
1 tilefni af 10 ára afmæli kórsins bárust
kór, söngstjóra og tónskáldinu Bjarna J.
Gíslasyni blóm og heillaskeyti. Þá afhenti
frú Jóhanna Pálsdóttir kórnum að gjöf
nýjan flygil, hina mestu gersemi. Er hann
gjöf frá eiginkonum kórfélaganna, en þær
hafa myndað með sér félagsskap, „kvenna-
klúbb“, m. a. til þess að leysa þetta verk-
efni af höndum. Er slíkt fágætlega vel af
sér vikið. Formaður kórsins, Böðvar Þ.
Pálsson, þakkaði hlýhug, blóm, skeyti og
aðrar gjafir, sem kórnum bárust, en sér-
staklega þakkaði hann þó hina veglegu
gjöf kvennanna, sem von var.
Þessir afmælistónleikar Karlakórs Kefla-
víkur tókust mjög vel. Áheyrendur létu
óspart í ljósi ánægju sína með kröftugu
lófaklappi, svo að kórinn varð að syngja
nokkur aukalög til þess að klappinu linnti.
Er víst, að söngmenn allir, söngstjóri og
undirleikari áttu allan hug áheyrenda. Það
er vel, þegar mik'ið listrænt starf og erfiði
unnið í frístundum milli anna dagsins,
ber svo góðan ávöxt. Söngunnandi.
ao»o*o#o»o»c»o»o»o»1'»c»o».'»r'»o»oio#.'»o»u»n»o»o»o»o«o»o*o»v'»i
•oao*oaoaoaoaoaoaoaoao*u*o*oaoao*oai'aoao*oao*oaoao*oao*oaoi
STEINHÚDUN H.F.
Jafnt fyrir híbýli sem
vinnustaði: ULBRIKA
húðun á GÓLF og
STIGA. án samskeyta.
mikið slitþol, einlitt og
og litmynztrað. ULBRIKA
á LOFT og VEGGI.
Vamar sprungum, spara
má fínpússningu,
fjölbreytt áferð og
litaval.
Síml 2 38 82
#oeoeoeoeoeoeoeoeoeoeo#oeoeoeueo#oeo#oeo#oeoeoeoeo#oeo#o#o«o
^•0*0*0#0*0*0*0*0*c»0«0«0«0*0»0*0*0*0*0*0*0*0*0*0*0»0*0*0«0*
FAXI — 215