Faxi - 01.12.1963, Síða 67
75 ara afmæli Hvals-
nesskirkju
75 ára afmælis Hvalsnesskirkju var
minnst með hátíðarguðsþjónustu í kirkj-
unni ’hinn 20. okt. síðastl. að viðstöddum
biskupi, herra Sigurbirni Einarssyni og
prófasti Kjalarnesþings, sr. Garðari Þor-
steinssyni.
Sóknarpresturinn, sr. Guðmundur Guð-
mundsson, framkvæmdi altarisþjónustu
fyrir prédikun og flutti prédikun um
texta dagsins. Herra biskupinn flutti
cmnig prédikun og minntist sérstaklega
afmælisins og í því sambandi Ketils
Ketilssonar í Kotvogi, sagði hann meðal
annars að hann hefði hér reist raunveru-
lega hina fyrstu varanlegu Hallgríms-
kirkju.
Að lokinni prédikun biskups annaðist
kann ásamt prófasti altarisþjónustu.
Söngflokkur kirkjunnar annaðist söng
undir stjórn Páls Kr. Pálssonar, sem 'hafði
a hendi söngstjórnina í forföllum organ-
•stans, Magnósar Pálssonar. Að lokinni
messu var samsæti í félagsheimilinu í
Sandgerði. Voru þar margar ræður flutt-
ar og síðastur ræðumanna var biskupinn.
Að loknu ávarpi biskups lauk sam-
kvæminu með því að karlakór Miðnes-
krepps undir stjórn Guðm. Norðdahl
flutti ásamt sóknarprestinum hluta ór
fornum tíðasöng, er nefndist Náttsöngur.
Þótti viðstöddum þessi forna athöfn mjög
úlkomumikil og virðuleg. Margar góðar
gjafir bárust kirkjunni af þessu tilefni, og
skal þar fyrst nefna forkunnarfagurt alt-
arisklæði, er þau hjónin Steinunn Magnós-
dóttir og Skóli Halldórsson tónskáld gáfu,
dl minningar um fósturmóður Steinunnar,
fru Guðrónu Hákonardóttur frá Ný-
lendu, þá gáfu barnabörn Ketils í Kot-
Vogi kr. 10.000,00, er varið skal til bón-
aðar kirkjunnar, kr. 10.000,00 gáfu syst-
kinin frá Akrahóli í Hvalsneshverfi í
0rgelsjóð kirkjunnar, í minningu foreldra
s*nna, Sigurbjargar Torfadóttur og Guð-
uaundar Þorsteinssonar, 5.000,00 kr. gáfu
kjónin á Bala til minningar um látna
ðottur sína, einnig í orgelsjóð, frá sóknar-
Uefnd Utskálasóknar bárust 75 sálma-
kíkur með ágylltu nafni kirkjunnar.
Auk þessa bárust kirkjunni margar aðr-
ar góðar gjafir. Sóknarnefnd flytur öll-
um gefendum sínar beztu þakkir.
KEFLAVÍK - SUÐURNES
FRAMKVÆMUM
ALLSKONAR
MYNDATÖKUR
Á stofu.
í heimahúsum.
I samkvæmum.
Passamyndir.
Ökuskírteinismyndir.
Eftirtökur á giimlum myndum.
Auglýsingamyndir.
Pantið í síma 1890 eða 1133.
Ljósmyndasfofa Suðurnesja
Túngötu 22 — Keflavík — Sími 1890 — Pósthólf 70
>3>0<><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><>< ><><><><><><><><><><■<><><><><><><><><
CLOROX
Fjólubláa blævatnið „Clorox“ inniheldur ekkert klór-
kalk né önnur brenniefni og fer því vel með þvottinn.
Apótek Keflavíkur
Suðurgötu 2.
Opið vir\a daga \l. 9—19. — Laugardaga \l. 9—16. — Sunnudaga \l. 13—16.
(><><><><><><><><><><><><<><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><0<><><><í><><><><>< <<><><><><><><><><><><><><><><><><><
e^><><><><><><><><><><><<><><><><><><><><><><><><><><><><><>3><?<><><><><><><><^^
ÚTGERÐARMENN!
Vegna væntanlegrar skipaskoðunar verðum við eins og
undanförnu birgir af eftirtöldum vörum:
Skiparakettum
Bjarghringjum
B j arghringsbau j um
Flotlínum
Bjargbeltum
Slökkvitæk j um
og Karbítsljósum
KAUPFÉLAG SUÐURNESJA
Járn- og skipadeild.
<>«><><><><><><><■<><■« < «<><>«« <*«><><■><> ;3x><><X><> ><>«><>>>3><>>«><><y,><><3><>'>.>«K><><><>><
F A X1 — 223