Faxi - 01.12.1964, Page 43
1
og taka síðan við eignum þeirra. Þau sendu
hann hvað eftir annað á drykkjumannahæli.
Hann kom þaðan aftur, stóð sig vel í einn eða
tvo mánuði, en féll síðan í sama foræðið á ný.
Eg sagði við foreldra piltsins:
— Hvernig dettur ykkur í hug, að þetta
geti blessazt? Þarna sitjið þið, öll fjölskyldan,
hver með sitt glas, í öllum boðum og sam-
kvæmum, um jól, páska og hvítasunnu, þjóð-
hátíðardag, í trúlofunar- og giftingarveizlum
— alltaf er vín á borðum. En hann situr einn
og yfirgefinn með brennandi vínlöngun. Og
foreldrar, systkini og tengdafólk horfa á hann
með viðvörunarsvip: Nú verðurðu að gæta
þín! — Hvernig búizt þið við, að hann fái
staðizt þetta?
Gömlu hjónin urðu vægast sagt hneyksluð:
— Við erum ekki þrælar áfengisins! Það er
hann, sem er veikur fyrir og þolir það ekki,
vesalingurinn!
+
Nei, samfélagið er ekki miskunnsamt við
drykkjumennina. Nýtízku þjóðfélag er gagn-
sýrt af áfengi. Það verður alls staðar á vegi
þínum, hvar og hvenær sem er. Það er ekki
ósvipað eitruðu lofti, sem þú verður að gera
svo vel og neyðast til að anda að þér. Og
einasta ráðið, sem þjóðfélagið getur gefið
þeim, sem falla dýpst fyrir Bakkusi, er að
benda þeim niður í drafið til svínanna til að
mæta þar tortímingu sinni.
Eftir því sem árin líða ber ég minni og minni
virðingu fyrir „borgurum landsins", eins og
þeir enn kalla sig.
Það gildir sama um kommúnistana í Kreml,
sósíaldemókratana í Osló og herrana á Broad-
way. Vínmenningin er alls staðar hin sama.
Enginn þorir að horfast í augu við þjóðar-
óvininn númer eitt.
Þetta voru borgarar landsins.
-K
En nú gerist dálítið athyglisvert. Maðurinn,
einmitt glataði sonurinn, fer að hugsa, komast
til sjálfs sín. Það er ekki lítill viðburður að
fara að hugsa. Það er einmitt þetta, sem þeir
forðast, sem neyta áfengis. Og það er ekki
lítið spor fyrir þann, sem sljóvgazt hefur af
svalli og ólifnaði, hressingarlyfjum og deyfi-
lyfjum um árabil.
— Hann gekk í sig, segir ritningin. Hann
hafði ekki verið hann sjálfur. Það er óhætt að
fullyrða. — Afengið breytir skapgerðarein-
kennum mannsins. Þetta endurtekur sig í öll-
um skýrslum frá geðveikrahælum, fangelsum
og drykkjumannahælum: Upphaflega ágætis
maður, sem stundaði vinnu sína af áhuga,
®hyggilegur og í góðu áliti. Síðan kemur
afengið til sögunnar. Niðurstaðan verður:
Aukinn sljóleiki, óorðheldni, hroki, rudda-
háttur. Og hafi Bakkus náð undirtökunum,
verður þetta skapgerðareinkenni stöðugt ríkj -
andi, hið nýja sjálf mannsins, það sem mest
her á í fari hans.
En svo rekur eymdin og volæðið hann til að
hugsa. Hann minnist daganna góðu í bernsku,
hins óstríka föður, leikbræðranna, hinnar góðu
eiginkonu, sem hann yfirgaf, barnanna, sem
hann hirti ekkert um.
Skyldi verða tekið á móti honum, þar sem
hann kemur niðurbrotinn og allslaus? Hann
á ekki einu sinni skó á fæturna og ekki föt til
að klæðast. Það verður að fata hann á ný
frá toppi til táar!
Satt að segja er ekkert merkilegt við það,
að hann snúi aftur heim. Það er ekki óalgengt
að þeir, sem stundað hafa svall og lausung
úti í hinum stóra, frjálsa heimi, flýi heim,
þegar þeir veikjast og enginn vill líta við þeim,
leiti á náðir aldraðra foreldra eða eiginkvenna,
sem unnið hafa baki brotnu til að sjá börnum
þeirra farborða. Þá loksins er heimilið gott í
augum þeirra. Og þeir eru bornir á höndum
og enginn má tala ógætilega í návist þeirra;
þeir eru svo viðkvæmir, vesalingarnir!
Jú, við þekkjum slíka herra, við þekkjum
þá meira að segja mjög vel.
En það er dálítið annað athugavert við þenn-
an mann. Hann hefur séð að sér.
+
I fyrstu reynir hann að finna hver sé orsök
ógæfu sinnar. Og hann kemst að niðurstöðu:
Það er syndin, hans eigin synd. Það er mjög
einkennilegt, að hann skuli hugsa þannig.
Einkennandi fyrir slíka menn er, að þeir
kenna ávallt öðrum um ófarir sínar. Það er
ógerlegt að fá þá til að horfast í augu við
sannleikann. Þeir hafa alltaf nægar afsakanir
á takteinum.
+
Tímar vorir gefa þeim síðan vel þegin byr
undir vængi með alls kyns meðalagjöfum,
vísindum og öðru slíku, sem ber heitið mann-
vit og þekking. Hann er veikur, þessi maður,
er það kallað. Allt tal um synd og siðferði er
kjánalegt og gamaldags, úrelt, og ekki þess
virði, að því sé gaumur gefinn. Bætiefni,
hormónar, kúrar, sprautur og töflur — það
er frelsunin og hjálpin. Hann er enginn synd-
ari, hann er bara veikur, aumingja maðurinn,
hann er sjúklingur.
Og síðan fær hann töflur. I gamla daga
voru menn látnir hvílast um tíma, svo að
þeir gætu jafnað sig. Nú fá þeir töflur í stað-
inn. Sé hann með timburmenn, fær hann
höfuðveikistöflur, ef hann er þreyttur og
utan við sig, fær hann töflur til að halda sér
vakandi, og sé hann taugaspenntur eftir lang-
varandi drykkjuslark, fær hann svefntöflur.
Að lokum bilar líkamsþrekið og maðurinn er
ekki nema rekald — töflu- og áfengisrekald.
Síðan verður konan að gæta fyllstu varúðar.
Hann verður að fá mat af beztu gerð, allir
verða að tilla sér á tá, enginn má andmæla
honum, enginn má særa hann, hann er tauga-
veiklaður, hann þolir ekki neitt slíkt.
O, þessir væmnu tímar tilfinningavellunnar.
Þessir betri borgarar, sem ekki þora að horf-
ast í augu við meðábyrgð sína á þeirri hræði-
legu þjóðarógæfu, sem áfengissalan veldur.
Minnst 40 þúsund norsk heimili — sennilega
helmingi fleiri — bera merki ofdrykkjunnar
á einhvern hátt vegna áfengissölunnar.
-k
Ef drykkjuskapur er sjúkdómur, þá verður
að grípa til róttækra ráðstafana, eins og gert
er, þegar hættulegur sjúkdómur brýzt út:
rannsaka orsakir hans, reyna að hefta út-
breiðslu hans og helzt leggja hann algerlega
að velli.
Drykkjuskapur er synd. Gamalkunnur löst-
ur. Rökrétt afleiðing heimshyggju og trúleysis,
slæmrar breytni, sjálfselsku, kæruleysis og
syndsamlegra tilhneiginga.
Að lokum vil ég benda á það eina sem
einhvers er virði og skapað getur heilsteypta
manngerð og vitsmunaveru, búna vilja og
hæfileikum til að stjórna lífi sínu.
Það er nauðsynlegt fyrir hvern og einn að
viðurkenna syndir sínar og afbrot undan-
dráttarlaust. — En það er þægilegra að taka
inn töflur.
Hið eina, sem veitir raunhæfa hjálp til
frambúðar, er, að maðurinn komi til sjálfs
sín og viðurkenni syndir sínar; játi þær fyrir
öldruðum foreldrum, sem kannske eru til
moldar gengin fyrir aldur fram, vegna illrar
breytni sonarins; játi þær fyrir eiginkonu
sinni og börnum, vinum og vandamönnum og
himninum, því hann hefur fótum troðið boð-
orð Guðs og sóað burt lífi sínu — einustu
eign sinni.
Vertu maður! Dæmdu sjálfan þig rétt og
horfztu í augu við sannleikann. Snúðu við og
breyttu um lífsvenjur. Skapaðu þér nýjan
hugsanaheim og gerðu þig að því sem þér var
fyrirhugað. Vertu maður, skapaður í Guðs
mynd. Láttu hinn frjálsa anda verða þitt dýr-
mætasta djásn og veganesti.
*
Við lesum áfram:
— Og faðirinn kenndi í brjósti um hann og
féll um háls honum og kyssti hann.
Þetta er boðskapurinn um hinn eilífa kær-
leika, sem fyrirgefur allt — og reisir allt við
og byggir upp á ný, það sem syndin hefur
niður brotið.
Þegar vísindin og töflurnar hafa brugðizt
og ekki finnast önnur ráð en senda hann til
svínanna á ný, og þegar þjóðfélagið hefur
ekki önnur ráð en að refsa, hljómar rödd frá
himni: Sonur, syndir þínar eru fyrirgefnar!
Kona, ég sakfelli þig ekki. Far þú og syndga
ekki framar!
Æðrastu ekki, vinur. Þú munt hljóta styrk
frá þeim hæsta og verða studdur af góðum
máttarvöldum, þegar freistingar íþyngja þér
og hið illa í sjálfum þér vill tortíma þér.
Vertu hugrakkur! Gefstu aldrei upp! Þá munt
þú sigra!
-k
Og að síðustu þetta til hins flekklausa
bróður, sem ekki drekkur, eða hófdrykkju-
mannsins, hins siðaða manns: Vertu ekki of
öruggur með sjálfan þig, kunningi. Syndir
bróður þíns eru opinberar og augljósar; þínar
eru kannske verri, en huldar sjónum manna.
Minnztu orða Goethes, er svo hljóða:
— Þegar ég lít yfir farinn veg og hugsa um
líf mitt, er enginn sá glæpur til, sem ég ekki
liefði getað drýgt.
F A XI — 195