Faxi - 01.05.1982, Side 6
Utla leikfélagið í Garðinum hefurnú starf-
að í fimm ár og tekið fyrir 12 verkefni Sýning-
ar hafa verið bæði í Garðinum og úti á landi,
t.d. vestur á Snæfellsnesi og fyrir austan
fjall, en auk þess í Keflavík, Grindavík og á
höfuðborgarsvæðinu. Ekki má gleyma að
geta þess aó félagið sýndi „Þið munið hann
Jörund”í Danmörku svo að varla erhægtað
segja annað en að starfsemin hafi verið
blómleg og til mikils menningarauka fyrir
byggðarlagið. Þá var þing Bandalags ís-
lenskra leikfélaga haldið i Garðinum árið
1980. Af því tilefni dreifði Utia leikfélagið
bæklingi meðal þingheims, þar sem saga
félagsins var rakin af Ástu Magnúsdóttur.
Faxa fannst mjög tilhlýðilegt að fá þærheim-
ildir sem þar var að finna, til birtingar svo og
að hún tæki saman það sem á daga félags-
ins hefur drifið síðan. Bírtist fyrri hluti grein-
arinnarí þessu blaði.
Áata Magnúsdóttir.
ÁSTA MAGNÚSDÓTTIR:
Litla leikfélagið, stofnun ogl. leikðr—fyrri hluti
, ,Lífið á að vera meira en fiskur
og vinna99 sagði Bergmann
Hugmyndin að stofnun Litla
leikfélagsins er komin frá Berg-
manni Þorleifssyni, smið í Garðin-
um. Honum fannst ríkja ládeyða í
menningarlífi byggðarlagsins. Líf
fólksins ætti að vera eitthvað
meira en fiskur og vinna daginn út
og inn. Fékk hann því til liðs við sig
þá Torfa Steinsson, nú kennara í
Keflavík og Magnús Gíslason
verslunarmann, til þess að stofna
leikfélag.
Undirbúningsfundur að stofnun
félagsins var haldinn að kvöldi
hins 21. nóvember 1976. Þar voru
lögð fram drög að lögum félagsins
og ákveðið að senda út fundarboð
til allra þeirra sem lýst höfðu
áhuga sínum á stofnun leikfélags í
Garðinum. Var ákveðið að boða til
stofnfundar laugardaginn 26. nóv-
ember 1976 í Gerðaskóla, og voru
send út fundarboð til 56 manna.
Á stofnfundinn mættu 18
manns. Torfi Steinsson hafði orð
fyrir fundarmönnum. Hann nefndi
sem fundarstjóra Magnús Gísla-
son og greindi síðan frá tildrögum
þessa stofnfundar. Síðan voru
bornar upp tillögur að lögum fé-
lagsins, og voru þær samþykktar
eftir að nokkrum atriðum hafði ver-
ið breytt. Síðan var haldið til
stjórnarkjörs og voru eftirtaldir
menn kosnir í fyrstu stjórn félags-
ins: Torfi Steinsson formaður,
Bergmann Þorleifsson varafor-
maður, Helga Ólafsdóttir ritari,
Einar Tryggvason gjaldkeri, Sig-
ríður Halldórsdóttir meðstjórnandi
og varamenn í stjórn Hólmfríður
Ólafsdóttir og Sigurjón Skúlason.
Fyrsti fundur stjórnarinnar var
svo haldinn í Gerðaskóla 5. des-
ember 1976. Var þá þegar farið að
huga að því að taka eitthvert leikrit
til sýninga og var strax stungið upp
á að taka eitthvað eftir Jónas
Ámason, þá stuttan leikþátt og
hafasvo söng og upplestur með.
í janúar 1977 var svo ákveðið
að sýna „Drottins dýrðar koppa-
logn” eftir Jónas Árnason. Jónas
var fenginn ásamt Helga Seljan til
að vera á sýningum og taka lagið
með áhorfendum. Hejgi Seljan
flutti æviágrip um höfundinn. Þeir
félagar voru á flestum sýningum,
og voru leikfélaginu mikill styrkur.
Auk þeirra sem búið er að telja
upp las Auður Sigurðardóttir upp
söguna „Forstandíss” eftir Jónas
og tríóið Bóthildur skemmti með
söng og leik. Tríóið var skipað
þrem ungum mönnum, þeim
Hólmberg Magnússyni, Guð-
mundi Ola og Brynjari Guð-
mundssyni.
Sævar Helgason var ráðinn
leikstjóri og hófust æfingar 19.
janúar.
1. SÝNINGIN
Jónas Árnason stjórnaði
fjöldasöng
Fyrsta leiksýning-hins nýstofn-
aða félags var hinn 25. febrúar
1977. Sýnt var í samkomuhúsinu í
Garði fyrir troðfullu húsi áhorf-
enda. Fyrst var sýndur. leikþáttur-
inn „Drottins dýrðar koppalogn”
en síðan var söngur og upplestur.
Leikendur í „Koppalogninu”,
eins og það er oftast kallað eru 14.
Með aðalhlutverk fóru þeir Kjartan
Ásgeirson, sem lék séra Konráð
og Jóhann Jónsson sem lék
Georg oddvita. Með önnur hlut-
verk fóru: Hreinn Guðbjartsson,
Jakob hreppstjóri. Unnsteinn
Kristinsson, Davíð skólastjóri.
Kristbjörg Hallsdóttir, Kristín
kvenréttindakona. Magnús Guð-
mundsson, Villi. Sigurjón Skúla-
son, Benni. Bragi Ándrésson,
Palli. Helga Ólafsdóttir, stelpan.
Gísli Eyjólfsson, læknirinn. Torfi
Steinsson, Stjáni grafari. Sigríður
Halldórsdóttir, Sigríður. Líkmenn
léku Brynjar Guðmundsson og
Hólmberg Magnússon.
Að leiksýningunni lokinni flutti
Helgi Seljan æviágrip höfundar,
en síðan las Auður Sigurðardóttir
upp soguna „Forstandíss” eftir
Jónas. Þá tók höfundur sjálfur til
máls. Hann flutti gamanmál ýmiss
konar og stjórnaði síðan fjölda-
söng við undirleik Bóthildar-tríós-
ins. Frumsýningargestir tóku svo
Torfi Steinsson fyrsti formaöur Litla leikfélagsins og Bergmann Þorleifsson, annar
formaður þess, sjást þarna við að vélrita fyrsta fundarboðið, af miklum krafti.
(Ijósm. emm)
FAXI-78