Faxi - 01.05.1982, Blaðsíða 20
/ TILEFNIÁTTRÆÐISAFMÆUS
HALLDÓRS LAXNESS
Á árunum 1937—1939 gaf Lestrarfélagið í Grindavík út tímarit, sem nefndist Mímir. Markmið-
ið með útgáfu ritsins var, eins og segir í 1. tölublaði, að reyna að vekja af dvala Lestrarfélagið
Mími, er sofið hafði svefni hinna réttlátu um nokkurt skeið. Var ritið selt til ágóða fyrír félagið,
á 10 aura eintakið. Ritstjórar voru Einar Kr. Einarsson, skólastjóri, Jochum Eggertsson og
Einar Einarsson í Krosshúsum. í 4. tölublaði Mímis frá 1937 er viðtal við Halldór Laxness.
Viðtalið hefur Einar Einarsson í Krosshúsum að líkindum átt við skáldið og í tilefni þess að
Halldór Laxness r áttræður um þessar mundir, þótti við hæfi að fá það birt hér í Faxa nú. Fer
viðtalið hér á eftir: ói. Rúnar
Páskaviðtal
við
HatldórKiljan Laxness,
1937.
Tíðindamaður biaðsins heimsótti Halidór
Kiljan Laxness þar sem hann dvelur nú yfir
páskana, önnum kafinn yfir ritvél sinni. , Þrátt
fyrir mikið annríki var skáldið svo vingjamlegt
að svara nokkrum spurningum, sem tiðinda-
maöur lagði fyrir hann.
Kemurframhald af „Ljósi heimsins"?
Já, næsta ár mun koma út ný bók, fram-
haldssaga af niðursetningnum, sem nú er ekki
iengur niðursetningur, eins og þér vitið.
Hvers vegna nefnduð þér bókina „Ljós
heimsins"?
Bókin skýrir frá baráttu skáldsins við
heimskuna og tregðuna.
Þér notið alveg sérstakt mál í bók yðar, hald-
iöþérekki, að það geti aflagað mál hinnar yngri
kynslóðar?
Ég vona að mál bókarinnar sé auðvelt af-
lestrar og spilli ekki málsmekk neins.
Á hve mörg mál hafa bækur yðar verið
þýddar?
Dönsku, þýsku, sænsku, ensku og hol-
lensku og verið að vinna að þýðingu á frönsku.
Mörgum finnst þér vera svartsýnn í bókum
yðar?
Það er alltaf sagt að raunsæishöfundar séu
svartsýnir. Lífið er ströng barátta, og sögur
mínar eru raunsæar. Þegar lifsskilyrði alþjóðar
batna verður skáldskaþurinn ósjálfrátt bjart-
sýnni.
Haldið þér ekki að útlendingar geti fengið of
slæmar hugmyndir um (sland við að lesa bæk-
uryðar?
Það held ég ekki, vesaldómur almennings er
i flestum löndum meiri en á íslandi, svo það er
ekkert nýtt fyrir útlendinga að heyra um fátækt
fólk. Annars er fólkið allsstaðar eins, aðeins
ofurlítið breytt á yfirborðinu. Þegar maður er
búinn að tala dálitla stund við mann frá t.d.
Buenos Aires er maður óðar kominn inn á
sama umræðu efni og i samtali við fólk hér í
Grindavík.
Viljið þér segja ofurlítið frá þessu ferðalagi,
sem þið fóruö í sumar?
Ég hefi skrifað ofurlítið um það annarstaöar,
og ég er líka ónýtur að segja ferðasögur. Það
koma náttúrlega fyrir ýms atvik á ferðalagi, en
þeim hef ég mest gaman af þegar ég er búinn
að skrifa um þau I skálsögum, kannski I ofurlít-
ið breyttri mynd.
Sumir hneykslast á ýmsu i bók yðar „Ljós
heimsins" t.d. 16. kap.
Það er með bók eins og jólaköku, jólakökur
mega ekki vera eintómar rúslnur, en ef engin
rúsína er I þeim, er það heldur engin jólakaka.
Hvernig líst yður á Grindavík?
Mér líst afar vel á Grindavík. Þar vinn ég
betur en víðast hvar annarstaðar, hér skrifaði
ég seinni hlutann af „Fuglinn I fjörunni" og
„Napóleon Bónaparte" og gerði uppkast að
„Ljósheimsins".
Eftir kynningu minni af öðrum íslenskum sjó-
þorpum, held ég, að Grindavík sé með bestu
plássum landsins.
Húsin eru rúmgóð og falleg, mættu kannski
standa skipulegar.
Sjáið þér bömin þarna úti á túninu, öll vel
klædd með höfuðföt og skó. Þiö ættuð að sjá
pláss eins og Ólafsvík og Bíldudal og Eskifjörð
og vfðar þar sem fólk varla hef ur eldsneyti til að
kynda undir pottinum með.
Vér þökkum herra Laxness fyrir samtalið,
óskum honum gleðilegra páska og kveðjum.
Fasteignagjöld
Hérmeð er skorað á þá sem í vanskilum
eru með greiðslu fasteignagjalda til
bæjarsjóðs Keflavíkur, að gera skil nú
þegar.
Verði skil ekki gerð, má búast við upp-
boði á viðkomandi fasteignum, sbr. lög
nr. 49/1951.
Bæjarlögmaður
Verslunarfólk
á Suðurnesjum
Enn ernokkrum vikum
óráðstafað í orlofshúsum
V.S. í Ölfusborgum og
Svignaskarði. Félagar hafið samband
við skrifstofuna hið allra fyrsta.
Vikuleigan, kr. 700, greiðist við pöntun.
Ekki er tekið við pöntunum í síma. Skrif-
stofan er opin frá kl. 16 -18.
Verslunarmannafélag Suðurnesja
- orlofsnefnd - Haf nargötu 28
FAXI - 92