Faxi - 01.02.1983, Síða 3
VIGDÍS JAKOBSDÓTTIR:
TÓNLISTARFÉLAG KEFLA-
VÍKUR 25 ÁRA
Þegar ég las í blöðum að Tónlist-
arfélag Keflavíkur væri 25 ára,
komu ótal minningar upp í hugann
og því skrifa ég nokkrar línur af því
tilefni, þar sem ég var nú líka for-
maður félagsins frá stofnun þess
og þangað til ég flutti til Reykja-
víkur fyrir níu árum.
Skólastjóri var frá upphafi
Ragnar Björnsson, en ekki Guð-
mundur Norðdahl eins og fram
kom í ágætri grein Herberts H.
Agústssonar fyrir nokkru. Hins
vegar var Guðmundur Norðdahl
aðalhvatamaður að stofnun félags-
ins og honum var það alveg að
þakka að Tónlistarfélag var stofn-
að, eflaust hefði það dregist eitt-
hvað lengur að Tónlistarskóli
kæmi í Keflavík, ef ekki hefði veri
þessi brennandi áhugi hans. En
hann var ófáanlegur til að vera
skólastjóri eða formaður félagsins.
Við vorum þrjú sem kenndum
fyrst við skólann upp á lofti í Ung-
mennafélagshúsinu, Guðmundur
Norðdahl, Ragnar Björnsson og
ég-
Það var mjög erfitt að reka Tón-
listarskóla á þessum árum og man
ég eftir því, að ég var tíður gestur í
Sparisjóðnum til að slá út víxla og
gekk það framar vonum. Það var
allt annað fyrirkomulag á rekstri
Tónlistarskólansþá, heldurenerí
dag. Ég hafði alltaf áhyggjur þegar
fór að nálgast mánaðamót hvernig
ætti að borga kennurunum og húsa-
leigu, því þá vorum við flutt í bíl-
skúr við Tjarnargötu, en þegar
skólinn flutti í núverandi húsnæði
/ - x
Eins og sagt var frá í síðasta blaði Faxa, þá var frú
Vigdís Jakobsdóttir hvatamanneskja að stofnun Tón-
listarfélags Keflavíkur og formaður þess fyrstu átján ár-
in, auk þess sem hún var formaður skólanefndar eftir að
félagið stofnaði Tónlistarskólann, þar til hún flutti til
Reykjavíkur fyrir níu árum. Einnig kenndi hún lengi
píanóleik við skólann.
I bréfi er hún sendi ritstjóra Faxa ásamt eftirfarandi
grein um Tónlistarfélag Keflavíkur tuttugu og fimm ára,
biður hún fyrir bestu kveðjur til allra Keflvíkinga er hún
hafði kynni af í margþættum félagsmálum er hún tók
þátt í ogþeim er hún kynntist í tengslum við starf manns
hennar, Alfreðs Gíslason, sem oddvita, lögreglustjóra,
bæjarstjóra og bæjarfógeta.
Faxi þakkar Vigdísi bréfið og greinina.
Vortónleikar Tónlistarskólans í Keflavíkurkirkju. Stjórnandi er Árni Arinbjarnar
en viö píanóið er Ester Ólafsdóttir. Frá vinstri eru blásarar Viktor Kjartansson og
Helga Jakobsdóttir. A fidlu leika Ólöf Ingólfsdóttir, Vilfríður Porsteinsdóttir, Kalla
Björg Karlsdóttir, Unnur Pálsdóttir, Kjartan Már Kjartansson, Jóhanna Erlings-
dóttir, Agústa Jónsdóttir, Guðbjörg Þórisdóttir og einn bandarískur nemandi (nafn
óþekkt). Celloleikari er Rúna Guðmundsdóttir. Ríkarður Órn Pátlsson leikur á
kontrabassa, á fagott leiktir Siguróli Geirsson, á þverflautu Magneu Pórsdóttir og á
klarinell leikurJón Már Sveinsson.
Vigdís Jakobsdóttir
breyttist að sjálfsögðu öll aðstaða.
Skólinn var mjög heppinn að fá
jafn færan mann eins og Ragnar
Björnsson fyrir skólastjóra. Hann
sá um að kennt væri eftir sömu
námsskrá og í Tónlistarskóla
Reykjavíkur. Man ég eftir að við
höfðunt marga alveg stórkostlega
nemendur, sem eru mér mjög
minnisstæðir.
Þegar Tónlistarfélagið var stofn-
að söfnuðum við styrktarmeðlim-
um og gekk það furðu vel. Styrkt-
armeðlimum var lofað tveim að-
göngumiðum á þrenna tónleika
yfir veturinn og var alltaf staðið við
það meðan ég bjó í Keflavík. Ég
hefi frétt að Tónlistarfélagið standi
fyrir fáum slíkum tónleikum lengur
og finnst mér það vera um mikla
afturför að ræða. Sinfóníuhljóm-
sveit íslands kemur að vísu til
Keflavíkur, eins og hún fer víða
um landið.
Mig langar að minnast á nokkuð
af því listafólki sem hélt hljóm-
leika á vegum Tónlistarfélagsins
meðan ég bjó í Keflavík.
Minnist ég þá heist söngvar-
anna: Guðrún A. Símonar, Magn-
ús Jónsson, Guðmundur Jónsson,
Framhald á bls. 52
Taliðfrá vinstri: Árni Arinbjarnarson kennari, Ragnar Björnsson skólastjóri, Ólöf
"gólfsdóttir, við fidlunám, og Gróa Hreinsdóttir undirleikari.
Blokkflautunemendur árið 1974. Frá vinstri: Hildur Árnadóttir, Jóhann Smári
Sœvarsson, Ólöf Björg KrLstjánsdóttir, Jóna Guðrún Jónsdóttir, Birgilta Bára
Hassenstein, Lilja Jónsdóttir, Ósk Porsteinsdóttir, ÓlafiaSigurpálsdóttir, KristínG.
Njálsdóttir, Asta Kristmannsdóttir og Dagný Kristmannsdóttir.
FAXI - 31