Faxi - 01.01.1986, Blaðsíða 3
*
Olafur Oddur Jónsson:
i.
Jón Ásgeirsson, tónskáld og
tónlistargagnrýnandi, skrifaði um
tónleika Kórs Keflavíkurkirkju á
jólaföstu, skömmu áður en kórinn
hélt utan, ásamt samferðarfólki,
til Landsins helga. Hann gaf kórn-
um góðan vitnisburð, enda langur
og strangur undirbúningur að
baki. Yfirskrift orða hans var:
».Til fyrirheitna landsins".
Það rifjaði upp fyrir mér frásögn
Joseph Heller í bókinni God
knows, sem éghafði nýverið lesið.
I leller segir þar frá Davíð konungi
og fer fram og til baka í sögunni í
frásögn sinni. Á einum stað veltir
7l>/ Aviv, iðnadar-,
verslunar- og
menningarhorg
Israels.
Jórsalafór Kórs Keflavíkurkirkju
hann því fyrir sér hvernig í ósköp-
unum sé hægt að kalla ísrael fyrir-
heitna landið, því þar sé ekkert
nema eyðimörk og PLO. Ég hafði
sterka löngun til að líta landið
fneð nöfnin mörgu: Palestína,
Israel, Fyrirheitna landið, Landið
helga og Jórsalaland, þá kennt við
Jórsali eða Jerúsalem.
Tilefni Jórsalafarar var 70 ára
ýígsluafmæli Keflavíkurkirkju.
Akvörðun var tekin í ársbyrjun
1985, eftir að kórnum hafði borist
þátttökuboð í kóramóti í Betle-
hem á aðfangadag og þjóðleikhús-
inu í Jerúsalem á jóladag. Við
þáðum boðið eftir að hafa ráðfært
°kkur við mæta menn, m.a. Ak-
urnesingana sem fóru 1977 og
Jón Tómasson, ritstjóra Faxa og
Jórsalafara frá árinu áður. IJann
sagði okkur frá ferðalagi sínu og
hvatti okkur til fararinnar, er
hann steig í slólinn í Keflavíkur-
hirkju á nýársdag 1985.
Prá ómunatíð hafa menn farið
pílagrímsferðir til Landsins helga.
Sú saga nær allt aftur til kross-
iorðanna. Til gamans má nel'na að
1275 eggjaði Árni biskup, Þor-
láksson menn til að láta krossast,
eins og það var l<allað.
1 fornu máli er talað um Jórsala-
9öf, sem var styrkur til Jórsala-
ferðar. Kórinn naut Jórsalagjafa í
ríl<um mæli. Það varð til þess að
32ja manna kór hélt utan. Hafi
allir gefendur hugheila þökk fyr-
ir. Ég lít svo á að þessar gjafir sýni
hug manna til kirkjunnar og þess
starfs sem þar er unnið.
Guðni Þórðarson og ferðaskrif-
stofan Flugferðir/Sólarflug,
skipulagði ferðalagið til ísrael og
Egyptalands með miklum ágæt-
um. Guðni býr yfir meiri reynslu
á þessu sviði en margur annar
eftir áratugastarf að ferðamálum
og hei'ur traust og góð sambönd
víða um heim.
II.
Við lögðum upp þann 18. des.
og flugum til London í góðu yfir-
læti Flugleiða. Farangur okluir fór
milliliðalaust um borð í breiðþotu
E1 A1 flugfélagsins, en handfar-
angur var skoðaður gaumgæíilega
er við fórum um borð í vélina. Það
var táknrænt fyrir það sem eftir
fylgdi og vakti okkur til vitundar
um þann heim sem við lifum í.
Flug með breiðþotu er reynsla út
af fyrir sig. 450 manns um borð,
rétt eins og Stokkseyri eða önnur
álíka þorp á íslandi væru á flugi.
Breiðþotan er fljúgandi hótel þar
sem boðið er upp á veitingar, tón-
Séru Ólafur Oddur Jónsson.
list og kvikmyndir þá 4 tíma sem
flugið til Tbl Aviv tók. Tíminn var
því ekki lengi að líða í þeim vel-
lystingum. Fyrstu einkenni þess
lands sem við vorum að sækja
heim, sáum við um borð í flugvél-
inni. Rabbíar, sem voru um borð,
gerðu reglulega bæn sína á tveggja
stunda fresti við einar útgöngu-
dyrnar, rétt eins og þeir stæðu við
Grátmúrinn. Það var vel við hæfi
að sameinast þeim í bæn í hugan-
um, biðja um farsælt ferðalag og
minnast orðanna úr Davíðssálm-
um, sem Rabbíarnir hafa án efa
einhvern tíma hugleitt á hebr-
esku: ,,Þótt ég lyfti mér á vængi
morgunroðans. . . einnig þar
mundi hönd þín leiða mig“. Við
lentum heilu og höldnu á Ben-
Gurion flugvelli í J'el-Aviv, sem er
kenndur við David Ben-Gruion,
fyrsta forsætis- og varnarmálaráð-
herra Israels.
Tbl Aviv, sem merkir hæð upp-
sprettunnar, er fyrsta borgin í
heiminum sem er byggð og stjórn-
að eingöngu af Gyðingum. Borgin
var stofnuð 1906 og er stærsta
borgin í ísrael með um 450 þús-
und ibúa. Hún er iðnaðar-, versl-
unar-, og menningarborg Israels.
Þar er frægt safn sem varðveitir
minjar um líf Gyðinga í dreifing-
unni, víða um heim, m.a. um
hörmungar þeirra í síðari heims-
styrjöldinni. 'fel Aviv er nálægt
Jaffa sem á sér aftur á móti 3600
ára sögu. Þar var sedursviði lrá
Líbanon skipað upp er Salomon
og Zerubabel reistu musterin í
Jerúsalem, sem verið hefur höf-
uðborg þjóðarinnar lrá 1950. Eg
minnist Jaffa með þakklæti frá
því á bernskuárunum er við
krakkarnir sugum appelsínur
þaðan af mikilli áfergju. Er við
komum inn í flugstöðina á Ben-
FORSÐ
Hrafn GK 12 er að leggja að bryggju í Grindavík. Hann er með 660 tonn af loðnu,
sem er fuUfermi.
I Irafn s.f. er eigandi bátsins og er Eiríkur Tómasson framkvæmdarstjóri. Sveinn
ísaksson er skipstjóri á Hrafni. Sveinn var fyrstur allra á þessari vertíð að fylla út-
hlutaðan aflakvóta eins og 3 eða 4 undanfarna vertíðir. L -ösm ólafur Rúnar
FAXI 3