Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1986, Blaðsíða 32

Faxi - 01.01.1986, Blaðsíða 32
Ljósmyndastofa Suöurnesja HAFNARGÖTU 79 - SÍMI 2930 - KEFLAVÍK Klettamoskan kemur nú næst á eftir Kaaba musterinu í Mekka að helgi. Moskan stendur á Moría klettinum, þar sem Abraham er sagður hafa undirbúið fórnina á ísak og þar sem Múhameðstrúar- menn álíta að Múhameð hafi stig- ið til himins. Við sáum einnig til- sýndar Al-Aqsa moskuna sem var byggð skömmu síðar og ætluð fyrir sameiginlega tilbeiðslu Múhameðstrúarmanna. Laugardaginn 21. des. fórum við til Betaniu, Jeríkó og Dauða- hafsins. Veðrið var með eindæm- um gott þennan dag. Betanía er aðeins 3 km austur af Jerúsalem í austurhlíðum Olíufjallsins. Á leiðinni sáum við Kidron dalinn, þar sem Jesús hefur oft farið um til Getsemane og Betaníu. Dalur- inn tengist hugmyndum um hinn hinsta dóm og er eftirsótt grafar- stæði hjá Gyðingum, Múhameðs- trúarmönnum og kristnum mönnum. Allt frá 4. öld hefur Betanía borið nafnið ,,E1 Azar- ieh“, þar sem bærinn var heimili Lasarusar og systra hans Maríu og Mörtu. í Betaníu bjuggu hinir fátæku sem Jesús vitjaði oft. Öll könnumst við við orðaskipti Jesú við Mörtu um góðan hlutann sem María valdi. (Lúk.10:38-42). í því sambandi hefur verið sagt að ekki beri að áfellast Mörtu heldur lofa Maríu. (Pars Martam non repri- henditus sed Mariam laudatur). í Betaníu greinir hjálpræðissagan frá því að Kristur haft reist Lasar- us frá dauðum (Jóh.ll:l-44) og María smurt Jesú með dýrindis smyrslum. Leyfar tveggja kirkna frá býzantíska tímanum og einnar kirkju frá krossfarartímanum fundust í Betaníu árið 1949. Sú- kirkja sem nú ber fyrir augu var reist 1952 á rúsum fyrri kirkna. Það er táknrænt að yfir aðal altar- þess atburðar minnst með skrúð- göngu pílagríma. Við hófum ferðina um gömlu borgina í hverfi Armena, fórum síðan um hverfi Araba yfir í Gyð- ingahverfið, sem var greinilega snyrtilegast. I Gyðingahverfinu sáum við m.a. múr sem próf. Avigad fann 1970 og talinn er vera frá tímum Hiskía konungs, sem ríkti seint á 8. öld fyrir Krist. Einnig sáum við minjar verslunargötu frá tímum Rómverja. Þennan morgun gengum við hluta af Via dolorosa, án þess að slást í för með öðrum. Við num- um staðar við nokkra staði úr písl- arsögu Jesú, en þeir eru 14 alls, níu þeirra er getið í guðspjöllun- um en 5 í hefðinni. TVeir þeirra eru innan dómgarðs Anatoniu, þar sem Jesús var dæmdur til dauða, sjö á leiðinni til Golgata og fimm innan Grafarkirkjunnar, þar sem við lukum ferðinni. Á leiðinni söng kórinn sálm Davíðs Stefánssonar: ,,Eg kveiki á kert- um mínum“. Þessi morgunstund verður mér ógleymanleg. Skammt frá Grafarkirkjunni er Erlöserkirche, þýsk lútherska kirkjan í Jerúsalem, þar sem við sungum hátíðarguðsþjónustu á jóladag. Heilsuhœli við Dauðahafið. Massada (baksýn. Síðdegis fóru margir Via dolo- rosa með Fransiskana munkun- um, sem hefja gönguna kl. 15 á hverjum föstudegi. Þeir fóru mjög hratt yfir og því erfitt að fylgja þeim eftir í mannþrönginni. Kórinn tók ekki þátt þar sem hann var að undirbúa sig fyrir upptöku hjá breska útvarpinu, BBC, en sú upptaka fór fram í Anglikönsku kirkjunni í Jerú- salem um kvöldið. Það er mikil upphefð fyrir kórinn að syngja í BBC, en dagskránni verður út- varpað um næstu jól. Söngurinn og upptakan tókst með miklum ágætum. Þennan dag bar margt fyrir augu. Við sáum Grátmúrinn sem er hluti af múr sem Herodes reisti kringum annað musterið 20 f.Kr., musterið sem 'lútist eyddi 70 e.Kr. Gyðingar endurheimtu Grátmúrinn eftir 6 daga stríðið. Á árunum 1948—1967 fengu þeir ekki að koma að Grátmúrnum, þar sem hann var í Jórdanska hluta Jerúsalem. Þannig var þessu einnig farið á tímum Rómverja, en á Byzantíska tímanum fengu þeir að koma að honum einu sinni á ári. Grátmúrinn er tákn áfalla, en um leið trúar og þolgæðis Gyðinga gegnum aldirnar. I fjarlægð sáum við hina til- komumiklu Klettamosku, mosku Ómars, sem var byggð í lok 7. aldar af Merwan kalífa í þeim til- gangi að gera Jerúsalem að álíka helgistað Múhameðstrúarmanna og Mekka. Við gröf Lasarusar í Betanfu.

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.