Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1986, Blaðsíða 30

Faxi - 01.01.1986, Blaðsíða 30
Jórsalaför Kórs Keflavíkurkirkju ---------------------FRAMHALD AF BLS. 4------ þúsund innfæddir Gyðingar þurftu þá að taka við hundruðum þúsunda innflytjenda, sem sett- ust að í landinu flestir illa á sig komnir, aldraðir og sjúkir. Auk þess fór verulegur hluti fjármuna og mannafla í hernaðarútgjöld, sem skýrir þá miklu verðbólgu sem verið hefur í ísrael. Enda má segja að dollarinn hafi gengið þar betur en shekelinn. Aðeins óbug- andi dugnaður þjóðarinnar og er- lend aðstoð hefur treyst þjóðar- búskapinn. Verkalýðsfélagið Histradrut hefur gegnt mikilvægu hlutverki. Það var stofnað 1920 og helming- ur íbúanna eru íelagar. Histadrut á iðnfyrirtæki, rækt- arlönd og önnur samvinnufyrir- tæki. Félagið hefur séð um fjár- magn, stjórnun og mannafla í mikilvægum verkefnum. Áveitu- svæðin jukust úr 30 þús. hektör- um 1949 í 140 þús. hektara 1961 og frekari aukning stefnir í að fjór- falda uppskeruna. Þetta er eitt af „máttarverkum nútíma ísraels“, Upp á þaki Grafarkirkjunnar er þetta aðsetur cþfópskra munka. Einn þeirra, Salomo, kemurgangandi íáttina til okkar. Hann las frásögn Postulasögunnar um Filippusoghirðmanninn frá Eþíópíu á móðurmálisínu ikirkju munkanna. (Post.8:26-40). eins og Laila, norsk ættaði leið- sögumaðurinn okkar, kallaði það. Geri aðrir betur. Enda þótt Negev eyðimörkin sé talin vera ræktarsvæði framtíðar- innar, þá er Jesreel-sléttan (eða Esdralonsléttan) enn stærsta brauðkarfa Israels. Þeir rækta SKVGGNST UNPIk WUZBO&PIP Einn liður í þeirri þjónustu Hamþiðjunnar að miðla upplýsingum um eiginieika og notkun veiðarfæra, er útvegun og dreifing myndbanda. Nú bjóðum við fimm áhugaverð myndbönd á kostnaðarverði: 1. I TUMUNASAMiaH&m 2. FtSKUM íTtZOLU 3. FISKAP MFP PMAGMOT 4. POMSKANET 5. TOGVeiPAtZFAEKIP . FISKUR 1 ITROLLI WM 1 1FISKAÐMEÐ 1 ORAONOT S! J | ÞORSKANET mm | ■ FÆRIO Nánari upplýsingar veitir söludeild Hampiðjunnar. HAMPIÐJAN Box 5136, 125 Reykjavík, sími28533 korn, grænmeti, ávexti, baunir, olífur, döðlur og skepnufóður. Samyrkjubúin, kibbútsarnir, hafa reynst happadrjúg og rekstur > þeirra gengið vel. En mestur hluti landsins er í eigu ríkissjóðs (Jewish National Eund). ísraels- menn hafa reist olíuorkuver sem einnig er hægt að knýja með kol- um. Olíuna kaupa þeir að, þar sem þeir fá hana ekki keypta í Arabalöndunum í nágrenninu. Eitthvað fannst þó af olíu í Negeveyðimörkinni 1955. VI. Stjómmál Við urðum vör við átök innan ríkisstjórnarinnar meðan við dvöldum í ísrael. Ágreiningur var kominn upp milli forsætisráð- herrans, Peresar, sem er social demokrati og Sharons, sem er í Likutbandalaginu. Peres stóð í friðarviðræðum við Hussein Jórdaníukonung, en um það var deilt. Samkvæmt samningi ríkis- stjórnarinnar, sem gerður var við stjórnarmyndun, stóð til að Shamir, formaður Likutbanda- lagsins tæki brátt við sem forsæt- * isráðherra. Ýmsir öfgahópar eru nú komnir í Kneset, ísraelska þingið, m.a. flokkur sem hefur það á stefnuskrá sinni að enginn Arabi sé góður nema hann sé dauður. Laila, leiðsögumaðurinn okkar, sagðist ekki vera á móti Aröbum, heldur hryðjuverka- mönnum. Það er uggvænlegt ef öfgaöflum eykst fylgi. Palestínuvandamálið verður best skilið í ljósti þess fjölda land- flótta Araba sem settust að f S- Líbanon eftir 6 daga stríðið. Þar beitti Sharon síðan óþarfa hörku og var í kjölfar þess settur af sem varnarmálaráðherra. Vonandi koma þau stjórnmálaöfl til með að ráða ferðinni sem vilja bera klæði á vopnin. Arabar í ísrael njóta lýðréttinda, sem aðrir þegnar ríkisins, en þeir gegna ekki herþjónustu. Sam- band trúarbragða og ríkis er ekki meira en í vestrænum ríkjum. í > ísrael er fullt trúfrelsi. Gyðing- dómurinn er ekki ríkistrú, þótt sabbatinn sé virtur og ýmsar lög- málsreglur um hreint og óhreint, heilagt og vanheilagt. í því sam- bandi má geta þess að E1 A1 flug- félagið flýgur ekki meðan sabbat- inn stendur yfir. VII. Ferðast um Israel Ég fór með þeim ásetningi til ísraels að huga bæði að sögu og 30 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.