Faxi - 01.01.1986, Page 5
Nýtt pípuorgel 1
Hvalsneskirkju
Sunnudaginn 29. ágúst s.l. var vígt nýtt
7 radda pípuorgel við hátíðarmessu í
Hvalsneskirkju. Haukur Guðlaugsson
söngmálastjóri þjóðkirkjunnar lék á hið
nýja orgel í hálf tíma fyrir og eftir messu.
Við messuna annaðist Frank Herlufsen
organisti kirkjunnar undirleik hjá
kirkjukórnum. Hrafnhildur Guðmunds-
dóttir messósópransöngkona söng ein-
söng við mikla ánægju kirkjugesta.
Hrafnhildur er dóttir hjónanna Stein-
varar Kristófersdóttur og séra Guðmund-
ar Guðmundssonar sóknarprests. Að
lokinni messu var boðiö upp á kaffi í húsi
slysavarnafélagsins.
Orgelið var pantað 1983 hjá þýskum
orgelsmið, Reinhart Tkschökel. Hefur
fyrirtæki hans annast smíði íjögurra
orgela hér á Suðurnesjum. Orgelið í
Grindavíkurkirkju er smíðað hjá fyrir-
tækinu og var Svavar Árnason organisti í
Grindavíkurkirkju milligöngumaður um
kaupin á orgelinu í Hvalsneskirkju. Þeg-
ar farið var að huga að kaupum á pípu-
orgelinu voru ekki til stórar fjárupphæðir
til orgelkaupa en orgelið kostaði rúma
eina milljón króna. Með hjálp fyrirtækja
á Suðurnesjum, sóknarbarna og burt-
íluttra sóknarbarna eigum við nú pípu-
orgelið í Hvalsneskirkju skuldlaust.
Sóknarnefnd þakkar af alhug hina
miklu aðstoð og biður Guð að blessa gef-
endur.
F.h. Sóknarnefndar
Hvalsnessóknar
Halldóra Thorlacius, form.
Hvalsneskirkja er
fallegt Guðshús.
Sóknarbörn hafa
fjölmennt að
vigsluathöfh er
pípuorgelið var vfgt.
Séra Guðmundur
Guðmundsson fyrir
altari.
Frá vinstri: Hrafhhildur Guðmundsdóttir — dóttir séra Guðmundar Guð-
mundssonar sóknarprests íIlvalneskirkju. Hún er messósópran söngkona
°S söng við vígsluathöfnina. I miðið er Haukur Guðlaugsson, söngmála-
stjóri hjóðkirkjunnar og organistinn er Frank Herlufsen.
Prestshjónin dsamt dóttursinni: Frlí Stcinvör Kristófersdóttir, Hrafnhildur
og séra Guðmundur Guðmundsson.
FAXI 5