Faxi - 01.01.1986, Síða 6
MINNING
TORFI GUÐBRANDSSON
smiður og fyrrv. forstjóri
FÆDDUR 17.09.1905 - DÁINN 09.11.1985
Systkinin er bjuggu í Keflavík: 'Ibiji, Jón, Björn og Vigdís. Myndin tekin
2. mars 1957 á sextugsafmœli Vigdísar.
Mynd J.T.
Ilinn 16. nóvember sl. var
TORFI GUÐBRANDSSON, fv.
bíóstjóri Félagsbíós í Keílavík
kvaddur hinstu kveðju frá
Keflavíkurkirkju.
Hann lést á Landakotsspítala
9. nóv. sl.
'forfi fæddist að Hallsstöðum í
Dölum. Foreldrar hans voru
Kristín Sigríður Halldórsdóttir
og Guðbrandur Jónsson, bú-
endur að Hallsstöðum.
Guðbrandur var bóndi og
smiður á tré og málm og vann í
14 ár í smiðju hjá Tbrfa Bjarna-
syni í Ólafsdal, áður en hann hóf
búskap á Hallsstöðum. Guð-
brandur var blindur í 15 ár.
Hann lést um það leyti, sem
flutningar voru áætlaðir til
Keflavíkur. — Kristín Sigríður
móðir 'Ibrfa var sögð greind og
skemmtileg kona. Toríi minntist
hennar mjög og hversu tilfmn-
ingalega tengd þau voru. Hún
var ljóðelsk og hagmælt og svar-
aði gjarnan í hendingum og brá
'forfl því oft fyrir sig. Hann var
orðinn læs 5 ára gamall. — Krist-
ín lést í brunanum mikla 30.
desember 1935.
Torfi var yngstu 6 systkina —
þau voru:
HALLDÓR, bóndi í Dölum,
síðar í Stykkishólmi, Korpúlfs-
stöðum, Njarðvíkum, var tví-
kvæntur. Hann var jarðsettur í
Keflavík.
SIGRÍÐUR, drukknaði ung
milli Breiðafjarðareyja og Stað-
arfells, ásamt fleira fólki, sem
var að koma úr heyskap. Staðar-
fellsskóli var reistur til minning-
ar þessa atburðar.
JÓN, bjó að Hallsstöðum, síð-
ar í Kefiavík og stundaði verka-
mannavinnu, smíðar og hús-
byggingar. IJann var ókvæntur.
Gaf Keflavtkurbæ Elliheimilið
Hlévang í Keflavík. Hann er
jarðsettur í Keflavík.
VIGDÍS, gift Sören Valen-
tínussyni, seglasaumara í Kefla-
vík. Jarðsett í Keflavík.
BJÖRN, bæjarverkstjóri og
síðar forstjóri Félagshúss, og
bíóstjóri. Kvæntur Unni Stur-
laugsdóttur. D. 1957. Jarðsettur
í Keflavík.
'Ibrfi kvæntist eftirlifandi
konu sinni Elínu Sigurjónsdótt-
ur 14. nóv. 1942. Elín er fædd á
Bala í Gnúpverjahreppi, Árnes-
sýslu, 25. júlí 1905. Var faðir
hennar Sigurjón Jónsson frá
Bala en móðir hennar var Guð-
laug Gunnarsdóttir frá Innri-
Asláksstöðum á Vatnsleysu-
strönd.
Tbrfi og Elín eignuðust 2 dæt-
ur: Kristínu Sigríði. Gift Henry
L. Gilson. — Börn: Elín Dawna
og Henry Lee. Guðlaugu, sem er
kennari að mennt og líffræðing-
ur. Vinnur á rannsóknastofu
Landakotsspítala.
Fyrir hjónaband var Tbrfi í
sambúð með Margréti Jónsdótt-
ur. bau eignuðust 3 börn. — Jón
Hauk. Börn hans eru: Jakob,
Grétar, Hilmar, Hrönn og Þórir.
— Kristinn, lést ungabarn að
aldri og Svanhildur Ósk, sem
lést í nóv. sl. Börn hennar:
Margrét, Guðrún Linda og
Sverrir Már. Eftirlifandi maður
hennar er Sverrir Sigurjónsson.
'Ibrfi var til 9 ára aldurs í for-
eldrahúsum að Hallsstöðum, en
þá fór móðir hans með hann til
bróðurdóttur sinnar, Matthildar
Björnsdóttur, dóttur Björns
IJalldórssonar að Smáhömrum í
Steingrímsfirði á Ströndum og
Matthildar Benediktsdóttur og
Jóns H. Jónssonar, kennara, til
verka og til að stunda skóla að
IJeydalsá, í Steingrímsfirði,
Ströndum, ogvarhannþartil 14
ára aldurs.
Frá dvöl sinni að Heydalsá
minntist hann oft Halldórs
Ólafssonar frá Fögrubrekku,
IJrútafirði, sem hann taldi sig
hafa lært mikið af. Jón Brands-
son prestur hvatti 'Ibrfa til
áframhaldandi náms og hefði
Tbrfi kosið að læra til prests, en
þrá hans heim til móður sinnar
réði því, að hann fór aftur heim
til Hallsstaða.
Tbrfi vandist strangri vinn í
sveitinni, eins og hún var á þeim
tíma, áður en véltæknin kom til
sögunnar. Hann lór þá til sjós,
var á skútum frá Flateyri og
kynntist þá lífi sjómannsins eins
og það var þá.
Hér í Keflavík hefur Tbrfi átt
heima síðan 1931. Á fyrstu árum
sínum hér vann hann við fiskað-
gerð í landi hjá Elinmundi Ólafs,
sem þá var eigandi Keflavíkur-
eignarinnar.
Á þessum tímum kynntist
hann verkalýðshreyfingunni og
gekk hann snemma til liðs við
hana. Var hann lengi í stjórn
Verkalýðs- og sjómannafélags
Kefiavíkur og um langt skeið rit-
ari félagsins. Fórst honum það
starf vel úr hendi eins og vænta
mátti, þar sem hann hafði mjög
áferðarfallega rithönd.
Þegar KRON opnadi verslun-
ina við IJafnargötu 30 varð 'forfi
þar afgreiðslumaður. I Iélt hann
síðan áfram störfum hjá Kaup-
félagi Suðurnesja, er það var
stofnað.
Seinna stofnaði 'Ibrfi og rak
'fi-ésmíðaverkstæðið Þór í Kefla-
vík. IJann var bæði húsgagna-
og húsasmiður og byggði hann
nokkur hús hér í bæ.
Tbrfi var í eðli sínu listfengur
og bera þess merki margir út-
skornir munir á heimili hans.
En það verk, sem honum var þó
vafalaust hugleiknast var stjórn-
un og framkvæmd við endur-
bætur Hvalsneskirkju árið
1945, enda taldi hann sig hafa
dreymt fyrir því verkið og það
oft hafa gengið upp á undraverð-
an máta. Óvenju há tré fundust
rekin, sem nothæf voru í turn
kirkjunnar, en efni í hann hafði
FAXI