Faxi - 01.01.1986, Síða 14
MINNING
Kristín Vigdís Erlendsdóttir
Kristín Vigdís Erlendsdóttir var
jarðsungin frá Keflavíkurkirkju
þann 17. des. s.l., en hún and-
aðist á Landakotsspítala 9. des.
eftir stutta en erfiða sjúkdóms-
baráttu.
Kristín fæddist 23. júlí 1925 að
Vesturgötu 7 í Keflavík og ólst
þar upp hjá foreldrum sínum,
þeim mætu hjónum, Erlendi
Jónssyni, skipstjóra og útgerð-
armanni, Olafssonar og Odd-
nýju Maríu Kristinsdóttur, sem
ættuð var frá Eyrarbakka.
Kristín var næst elst átta syst-
kina, sem öll náðu fullorðins-
aldri, en áður er látinn bróðir
hennar Jón. Hann lést af slys-
förum árið 1956. Á gamlársdag
árið 1947 giftist Kristín eftirlif-
andi eiginmanni sínum Ragnari
Þórðarsyni frá Ysta-Gili í
A-Húnavatnssýslu. Kynntust
þau hjónaefnin, þegar Ragnar
kom fyrst hingað til Keflavíkur
árið 1946 og varð starfsfélagi
Kristínar í hraðfrystihúsinu
Keflavík h/f, en þar var starfs-
vettvangur þeirra um árabil.
Búskap sinn hófu ungu hjónin
að Suðurgötu 31 í leiguíbúð í
kjallara. brem árum síðar festu
þau kaup á húsinu að Vestur-
götu 8, sem þau keyptu af Pétri
FÆDD 23.07.1925
Jóramssyni og Elinbjörgu konu
hans. Þar, gegnt æskuheimili
húsmóðurinnar, bjuggu þau
síðan í 10 ár, í sínu litla og vina-
lega húsi, sem nú er löngu horf-
ið. Síðan var það á gamlársdag
árið 1960, sem þau fluttu f ný-
byggt hús sitt að Smáratúni 44.
Þar stóð upp frá því heimili fjöl-
skyldunnar og sjötta og síðasta
barnið bættist þar í hópinn árið
1962, en börnin eru þessi í ald-
ursröð:
Erlendur, húsasmíðameistari í
Keflavík, kvæntur Þórdísi Páls-
dóttur; Kristín Hrönn, húsmóð-
ir í Bandaríkjunum, gift John
Bradley; María Hafdís, hús-
móðir í Keflavík, gift Ómari
Matthíassyni; Þórður, kennari
og háskólanemi Innri-Njarðvík,
kvæntur Guðbjörgu Jónsdótt-
ur; Ómar, verslunarmaður í
Reykjavík, kvæntur Sigrúnu
Þorsteinsdóttur og yngst er Rut,
verslunarmær, sem býr í for-
eldrahúsum. Alls eru barna-
börnin 10 talsins.
Kristín var hæglát og rólynd
kona. Ávann hún sér hvarvetna
traust og virðingu þeirra, sem
henni kynntust.
Hún var skilningsrík. Góð
móðir og amma enda helgaði
DÁIN 09.12.1985
hún krafta sína öðru fremur
uppeldi barna sinna og studdi
að velferð barnabarnanna eftir
því sem kostur var á.
Bjó hún, með dyggri aðstoð
Ragnars, fjölskyldunni myndar-
legt og vistlegt heimili og þar
bera m.a. fagurlega gerðir hann-
yrðamunir handbragði hennar
fagurt vitni.
Garðrækt var þeim hjónum
einnig sameiginlegt áhugamál
og hlaut garður þeirra viður-
kenningu — Verðlaunagarður í
Keflavík — árið 1972.
Þegar börnin voru uppkomin
og tekin að flytjast að heiman
hóf Kristín að starfa á Keflavík-
urflugvelli. Þar störfuðu hjónin
saman síðustu átta árin.
Það var svo á síðastliðnu vori
er þess illviðráðanlega sjúk-
dóms varð vart, sem lagði Krist-
ínu að velli. Tók hún veikindum
sínum með fádæma æðruleysi.
Fór hún til Bandaríkjanna í
sumar eins og ekkert hefði í
skorist og hélt þar upp á sextugs
afmæli sitt hjá dóttur sinni, en
er heim kom var hún helsjúk
orðin.
Ragnar reyndist konu sinni
einstaklega vel alla tíð og þá
ekki hvað síst í veikindunum,
en þá var hún umvafin kærleika
hans sem og annarra ættingja og
vina.
Að leiðarlokum eru Kristínu
þökkuð góð kynni. Hugljúfar
minningar verða vinum hennar
huggun harmi gegn.
Ragnari, fjölskyldu hans og
öðrum aðstandendum vottum
við hjónin samúð okkar.
Blessuð sé mh.ning Kristínar
Vigdísar Erlendsdóttur.
Kristjún A. Jónsson.
Óöyr tækifærisferö!
Farscöill meö „Halastjörnunni" til Marz (7 ðaga
ferö), verö 25 aur.
(Knr|".r>ir .jalfir. i!vcr má imfu 2fftf J»(i. f fnlt ftfnu.
kcojur kl. %,*'•' árd, og for sli«i<lyffei*sg<i ki. íi,!** aíðtl
15). rnaí 1UÍO. KvoðjuvíOhÁfn: Kiliirf f hyiinahötmn), fiugísldar úfi
Halastjama
í sjónmáli
Það eru ekki allir árgangar af mann-
fólki sem eiga þess kost að sjá hala-
stjörnu. Þær eru þó svo merkilegt fyr-
irbæri í fjölskyldu himintungla að
flestir vildu séð hafa.
Eins og sjá má af mynd þessari, ef
hún prentast sæmilega, þá nota snjallir
auglýsendur halastjömuna til að vekja
á sér athygli, og langt er síðan að menn
fýsti að hafa viðkomu hjá Karlinum í
tunglinu ef kostur væri á.
14 FAXI