Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1986, Síða 15

Faxi - 01.01.1986, Síða 15
Matthías Hallmannsson: Stóðrekstur á Arnar- vatnsheiði 1920 Eins og áður er frá sagt í Faxa, var ég, sumarið 1920, ráðinn sem vikapiltur að Kollslæk í Hálsa- sveit. Um veru mína þar er í stuttu máli það að segja, að mér leið illa. Þeir feðgar, Jón og Stef- án, áttu nokkuð mörg ótamin hross,,stóð“. Nú var það venja að reka þau fram á heiðar að loknum sauðburði, og auðvitað var svo gert í þetta sinn. Það var einn dag, að Jón bóndi kom að máli við mig og spurði hvort mig langaði ekki til að fara fram á ,,Heiði“. „Hvaða heiði?“ spurði ég. ,,Það er aðeins um eina heiði að ræða, þegar við tök- um svo til orða, það er Arnar- vatnsheiði.“ ,,Er hún langt í burtu?“ spurði ég. ,,Það er 10 tíma rekstur,“ svaraði Jón. En ég var jafnnær, því ég vissi ekki, hvað langt var rekið á hverjum tíma. ,,Þeir Hofstaðabræður eru bún- ir að lofa að taka tryppin okkar, og þeirra á Uppsölum, ef maður kemur með þeim, en þá verður þú að standa þig. Það er ekkert grín að reka stóð fram á fjall.“ Mér hraus hugur við þessu, því margt hafði ég heyrt um þá bræður á Hofstöðum og ekki allt fallegt, en seinna kom í ljós að upp á þá hafði ég ekkert að klaga. Eyjólfur Gíslason bóndi á Hof- stöðum var mesti myndarkarl. Hann var sagður hagyrðingur góður. Ég kann 2 vísur sem hon- um voru eignaðar, en ekki hirði ég um að birta þær hér, því ekki er víst að ég kunni þær svo vel að engu skeiki. Ekki man ég nöfn allra þeirra sem í þessa för voru kvaddir. Haukur sonur Eyjólfs var einn þeirra og bróðir hans sem ég man ekki hvað hét. Einn var unglingur frá Uppsölum, en ekki man ég nafn hans. Svo var ég sem þessar línur skrifa. Nú eru liðini 64 ár, síðan þessi ferð var farin og fimm mánuðum betur, svo ég vona að mér verði virt það til vorkunnar þó einstaka atvik séu tekin að gleymast. Nú var ég rekinn í rúmið og sagt að fara að sofa, því snemma að morgni yrði ég vakinn. Ég hlýddi, en ekki varð mér svefna auðið og kl. 2 um nóttina var mér sagt að koma mér í fötin, því stóðið væri komið að Uppsölum. Eftir stutta stund var ég alklæddur. Auðvitað var ég í skinnskóm. Enga yfirhöfn hafði ég yfir mér en skinnskjóða var mér fengin hvar í var nesti. Hvorugt þótti mér girnilegt, ílátið eða innihaldið, enda var það að mestu ósnert er heim kom og urðu deilur út af því. Ég var krafinn skýringa, hvort ég hefði sníkt hjá Matthías Hallmannsson hinum. Ég þráaðist við eins og sauðkindin, en sannleikurinn var sá að Haukur á Hofstöðum og bróðir hans voru svo birgir af mat, og það eintómu lostæti, og þar að auki í hreinum ílátum. Þeir bönn- uðu mér að snerta á þessum óþverra og láta Jón éta það sjálfan þegar heim kæmi. Þá er að minn- ast á reiðskjótann, hann var jarp- ur og kallaður Stóri-Jarpur. Jarp- ur var ekki hraðfara, þó ég léti svipuna ganga á báða, þá lét hann sem ekkert væri og hélt sínu striki. Þeir Hofstaðabræður gerðu óspart grín að Jarpi, og höfðu það á orði að einhverja truntu ættu þeir feðgar sem væri skárri en hann. En það var fleira sem gerði Jarp að heldur leiðinlegum reið- hesti, bakið var svo breitt að fætur knapans náðu varla niður á miðj- ar síður. Ekki bjuggu þeir feðgar á Kollslæk svo vel, að þeir gætu skotið hnakkpútu undir strákinn, heldur var tekin gömul reiðings- dýna, og breikkaði bakið á Jarp til muna. ístöð voru búin til úr reiptöglum. Síðan var matar- pinkillinn bundinn við faxið, og þá vorum við tilbúin. Ég kveið mikið fyrir ferðalaginu, og gæti best trúað, að Jarpur hafi kviðið fyrir líka. Klukkan 3 um nóttina var lagt af stað. Við höfðum Reykjadalsá á hægri hönd, og bráðlega sáum við heim að Giljum. Sá bær er sunnan ár. Þar næst er bærinn Hraunsás og síðan langur vegur að Húsa- felli. Stóðið var léttrækt. Máske hafa hrossin hugsað gott til sum- arsins og frelsisins á víðernum öræfanna. í þessum hóp var margt fallegra gripa, enda er ís- lenski hesturinn ein allra falleg- asta skepna sem til er. Þá er ég var í sveit þótti mér mest til hestanna koma. Ferðin sóttist vel, og um hádeg- isbil komum við að Húsafelli. Mig minnir að þar væri okkur boðið í bæinn. Um nónbil komum við að Kalmannstungu, og stönsuðum lítið eitt, og þá var komið að síð- asta áfanganum. Fyrsta vatnið sem við komum að minnir mig að héti Reykjavatn. En nokkurn spöl norður fyrir Reykjavatn rákum við stóðið. Veðrið var svo sem best varð á kosið, og útsýnið var engu öðru líkt. Njarðvíkingar athugið Skrifstofa félagsmálafulltrúa er á bæjarskrifstofunni, Fitjum. Viðtalstími frá kl. 10—12 alla virka daga. Móttaka atvinnuleysisskrán- ingar er á föstudögum og mánudög- um frá kl. 10—12. Félagsmálafulltrúi Keflavík Vinnuveitendur Athugiö aö tilkynna skrifstofu bœjarins um þá starfsmenn ykkar, sem lögheimili eiga í Keflavík. Innheimta Keflavíkurbæjar FAXI 15

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.