Faxi - 01.01.1986, Síða 18
Skólaslit F.S. á haustönn 1985
Laugardaginn 21. desember 1985 lauk 19. starfsönn FS með braut-
skráningarathöfn í Njarðvflcurkirkju. Kór skólans söng nokkur lög,
ræður og ávörp voru flutt. Í yfirlitsræðu aðstoðarskólameistara, Stur-
laugsÓlafssonar, kom m.a. fram að aldrei hafa fleiri nemendur stund-
að nám við skólann en í vetur eða um 1200 talsins. Mest hefur aukning
orðið í starfsnámi og námsflokkum sem eru nýir þætti í starfi skólans.
Þá taldi aðstoðarskólameistari húsnæði FS betur nýtt en nokkurt
annað skólahúsnæði, en kennsla hefði samt farið fram á átta stöðum
og horfði til vandræða ef ekki úr rættist. Á önninni kenndu 60 kenn-
arar við skólann eða fieiri en nokkru sinni fyrr.
Skólameistari, Hjálmar Ámason, afhenti prófskírteini. Að þessu
sinni hlutu 79 nemendur brottfararskírteini eða stærri hópur en
nokkru sinni. Skiptist hópurinn þannig eftir brautum:
Af flugliðabraut ............................... 17 nemendur
Af viðskiptabraut, tveggja ára .................. 1 nemandi
Úr réttindanámi skipstjóra ..................... 16 nemendur
Úr réttindanámi vélstjóra ....................... 21 nemandi
Af iðnbrautum ................................... 6 nemendur
Af verknámsbraut ................................... 1 nemandi
Af stúdentsbrautum ................................. 17 nemendur
Þetta er í fýrsta sinn sem skóli á Suðurnesjum brautskráir nemendur
með skiptstjómarréttindi, og varð Emil Ágústsson sem búsettur er i
Grindavík, fyrstur til að veita skipstjórnarskírteini viðtöku.
Ávörp fluttu fulltrúar brautskráðra nemenda, kennara, formaður
Vélstjórafélags Suðumesja og varaformaður Skipstjórafélagsins Vísis.
Gunnar Þórarinsson, deildarstjóri, afhenti ijölmörg verðlaun.
Þá flutti skólameistari ávarp sitt til brautskráðra nemenda, (sjá
næstu síðu) en vék síðan að skólastarfinu. Taldi hann ánægjulegt til
þess að vita að námsbrautir væm jafn fjölbreytilegar og raun ber vitni
en lagði þunga áherslu á að húsnæðisþröng hamlaði frekari þróun.
Benti hann m.a. á vilja skólayfirvalda til að efia til muna nám í tengsl-
um við sjávarútveg og fiskeldi, en til þess þyrfti að rætast úr húsnæðis-
skorti skólans. Skólameistari lét uppi þá ósk að loforð um slíkt yrði vel
þegin afmælisgjöf en skólinn verður 10 ára gamall haustið 1986.
í lokin tóku allir viðstaddir undir jólasálm með kór skólans.
Ávarp skólameistara fer hér á eftir:
íhve VGÍtb tfuim IIYI VÍð nánuði bér tmkifmri
VwllU tilal 'II# VIW ) verði vv/ IwAIIU^/l 7 milliónamœiinaur
Breytist þín von í veruleika?
Vinningaskró fyrir árii> 1986. 9. vinningur kr. 2.000.000 kr. 18.000.000. 108 vinningar kr. 1.000.000 kr. 108.000.000. 216 vinningar kr.
100.000 kr. 21.600.000. 2.160 vinningarkr. 20.000. kr. 43.200.000. 10.071 vinningarkr. 10.000 kr. 100.710.000. 122.202 vinningar kr. 5.000
kr. 611.010.000. 234 aukavinningar kr. 20.000 kr. 4680.000. Samtals 135.000 vinningar að upphœð 907.200.000.
Vinningaskrá fyrir trompmiöaeigendur 1986
1. vinningur kr, 10.000.000 kr. 10.000.000. 12. vinningur kr. 5.000.000 kr. 60.000.000. 24. vinningar kr. 500.000 12.000.000. 240 vinningar
kr. 100.000. kr. 24.000.000. 1119 vinningar kr. 50.000. kr. 55.950.000. 13.578 vinningar kr. 25.000 kr. 339.450.000. 26 aukavinningar kr.
100.000 kr. 2.600.000. Samtals 15.000 vinningar að upphœð 504.000.000.
Umboðsmenn Happdrœttis Háskóla íslands
á Suðurnesjum:
Umboösskrifstofa Jóns Tómassonar
Keflavlk. Sími 1560.
Halla Árnadóttir Vogum.
Sími 6540.
Ása Einarsdóttir
Grindavík. Sími 8080.
Erla Steinsdóttir Keflavíkurflugvelli. Siguröur Bjarnason
Sími 1284. Sandgeröi. Sími 7483.
Guölaug Magnúsdóttir
Höfnum. Sími 6919.
HAPPDRÆTTI HÁSKÖLA ISLANDS
milljón í hverjum mánuði
18 FAXI