Faxi - 01.01.1986, Síða 26
Leiðrétting
1944
Keflvíkingur drukknar
með Max Pemberton
Daginn eftir að jólablaðið kom út,
14. des. 1985, hringdi til mín Krist-
jana Ólafsdóttir, ekkja Bergsteins
Sigurðssonar, trésmiðs, og sagðist
vilja leiðrétta nafn bróður sins, sem
fórst með Max Pemberton, 1944. í
frásögninni var hann sagður heita
Jón Halldórsson. En í athugasemd
aftan við frásögnina, er vitnað í Ár-
bók SVFÍ. Þar er Jón sagður Ótafs-
son, sem er rétt. Fyrra föðurnafnið
er úr sjómannablaðinu Víkingi. En
þar sem annálshöfundur vissi ekki
hvort nafnið væri réttara, bað hann
lesendur að bæta úr því.
Jón Ólafsson fór á Max Pemþer-
ton þessa einu ferð í staðinn fyrir
annan rnann, sem forfallaðist. Jón
var sonur Ólafs Jónssonar, skip-
stjóra, og Ástu Magnúsdóttur frá
Flateyri. Ásta fluttist til Keflavíkur
1935 og Jón með henni. Þau
bjuggu að Klapparstig 4.
Annálshöfundur vill eindregið
hvetja lesendur til að leiðrétta mis-
sagnir og villur, sem slæðast kunna
aldrei hafa á prent komið, og eru því
fáum kunnar.
1946
V.b. Geir ferst í
aftakaveðri
Föstudagskvöldið 8. febrúar
1946, réru flestir bátar frá Keflavik.
Þóvarveðurspáheldurslæm, enda
snéru þrir bátar við og héldu heim-
leiðis. Fram eftir nóttu var veður
sæmilegt en seinni hluta nætur
gerði aftakaveður að suðvestan.
Bátar voru almennt á sjó sunnan
lands og vestan. Hafrót varð þvílikt,
að margir sjómenn í Keflavík töldu
sig ekki hafa lent í öðru eins á sigl-
ingu fyrir Garðskaga. En sigling í
suðvestan átt fyrir skagann getur
verið afar varasöm, þegar mikið
hvassviðri er. Ýfist þá röstin fyrir ut-
an og brotsjóir myndast. Enda fór
svo að margir bátar urðu fyrir tjóni
þennan dag, og fjórir fórust
Um kl. 4 e.h., laugardaginn 9.
febrúar, voru bátar að tínast inn til
Keflavíkur. Sóttist sumum ferðin
seint, sem nærri má geta, enda óx
veðurhæð stöðugt er á daginn leið.
Um miðnættið voru allir Keflavíkur-
bátar í landi nema Geir.
í birtingu á sunnudagsmorguninn
10. febr., hóf flugvél frá Loftleiðum
leit. Var hún á lofti í hálfa þriðju
klukkustund, flaug yfir Faxaflóa og
30 milur í vestur og suður um að
Reykjanesi. Skyggni var ágætt, en
ekkert fannst. Um hádegisbil sama
dag, var skýrt frá þv(, að fundist
hefði um morguninn, brak í fjörunni
við Bæjarsker. Voru það lóðastamp-
ar og belgir, merktir Geir GK 198.
Einnig fannst þar afturmastur báts-
fcd
Skrifstofur okkar hafa veriö fluttar aö
Vesturbraut 10 A
Keflavík (Rafveituhúsiö)
Heilbrigöisfulltrúi Suöurnesja
Sími 93-3788
lönþróunarfélag Suöurnesja
Sími 92-4027
Sorpeyðingarstöð Suðurnesja
Sími 92-3788
Samband sveitarfélaga
á Suöurnesjum
íl
'toi'yjr * % •S..X 4 ""
Togarinn Max Pemberton.
inn í frásagnirnar. Einnig væri öll vit-
neskja vel þegin frá fólki, sem man
eftir atburðum, sem hér segir frá.
Sérstaklega frá gömlum sjómönn-
um. Manna- og bátamyndir væri
einnig tilvalið að fá til birtingar. Jafn-
vel þó búið sé að segja frá atburðin-
um. Merkilegar myndirgetaveriðtil
hjá fólki, sem annálshöfundur veit
ekkert um. Um leið væri ágætt, að
lesendur létu byggðasafnið njóta
myndanna. Þar þarf að vera til heil-
stætt safn mynda af bátum frá
Jón Óiafsson,
háseti á b.v.
Max
Pemberton.
Keflavík og Njarðvík, ásamt öðrum
upplýsingum um hvern bát. í safn-
inu eru að vísu til ýmsar bátamyndir,
en þeim hefur ekki verið safnað
skipulega, enda húsnæði safnsins
lítið. Rétt er að benda á, að f safninu
eru margar merkar Ijósmyndir, sem
ins og brak úr stýrishúsi. Var talið
að báturinn hefði farist á heimleið,
trúlega út af Garðskaga.
Fimm menn fórust með v.b. Geir.
Þeir hétu:
Guðmundur Kristján Guðmunds-
son, skipstjóri, fæddur i Keflavík
14. jan. 1897. Kv. 1919 Ingibjörgu
Benediktsdóttur, frá ísafirði. Börn
þeirra: Benedikt (Diddi Kr.), stýri-
maður í Keflavík, Guðmundur Krist-
ján, skipstjóri og útgm. Átti heima í
Keflavík. Býr nú á Seltjarnarnesi.
Gerði hann m.a. út Andra KE 5, sem
síðar kemur við sögu í annálnum,
Kjördóttir Guðmundar og Ingibjarg-
ar: Þórunn Magný, síðar sambýlis-
kona Karvels Ögmundssonar í
Njarðvík. Guðmundur Kr. á Geir var
eigandi bátsins. Hann var sonur
Guðmundar Kr., sem bjargaðist
með allsérstæðum hætti úr beitu-
ferð upp í Hvalfjörð. (Sjá 1897 hér
að framan).
Krlstinn Ragnarsson. Ólafur Guómundsson.
háseti. háseti.
Páll Sigurðsson, vélstjóri, 30 ára
Kv. Átti tvö börn. Búsettur í Keflavík.
Kristinn Ragnarsson, 21 árs. Há-
seti. Kv. Bl. Bjó á Hellissandi.
Ólafur Guðmundsson, 21 árs. F.
12. nóv. 1925. Háseti. Ókv. Bl. Bjó
í Keflavík. Foreldrar hans voru Guð-
mundur í Sparisjóðnum og Elín
Jónsdóttir, sem þá var nýlátin.
Maríus Þorsteinsson, 39 ára.
Ókv. Háseti. Bjó á ísafirði.
Minningarathöfn um skipverjana
fór fram í Keflavíkurkirkju 23. febr-
úar 1946. Ekki fundust lik þeirra né
annarra sem fórust við sunnanverð-
an Faxaflóa þennan eftirminnilega
febrúardag. En þriðjudaginn 23. *
apríl 1946, fannst rekið í Lamba-
staðavör í Garði, líkaf karlmanni. En
það var svo skaddað að það var
óþekkjanlegt. Á það vantaði höfuð,
handleggi og fætur upp að hnjám.
Auk þess var það mikið rotið. Um
leið fundust þarna lóðarflækjur,
ómerktar, og var því ekki Ijóst hvort
þetta var af bátum er fórust í febr-
úar. Líkið var jarðsett í Útskála-
kirkjugarði. Þar er nú leiði óþekkta
sjómannsins. (Sbr. stutta frásögn í
jólablaði Faxa 1960, bls. 167.
26 FAXI