Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1986, Síða 27

Faxi - 01.01.1986, Síða 27
V.b. Geir GK 198 í fjörunni viö Vatnsneshöfn 1944. Snemma árs 1947 lét Ingibjörg, ekkja Guðmundar Kr., reisa minnis- varða um áhöfnina á Geir. Varðinn stendur í kirkjugarðinum í Keflavík. Við hlið hans, er minnisvarði um þá sem fórust með m.s. Stuðlabergi 1962. Fleiri Keflavíkurbátar urðu fyrir áföllum laugardaginnn 9. febrúar. Hilmir GK varð fyrir ólagi við Garð- skaga. Fór hann svo kyrfilega á hlið- ina, að menn á næsta bát töldu sig sjá kjöl hans. Mun slíkt einsdæmi undirslíkumkringumstæðum. Hilm- ir laskaðist töluvert og allt lauslegt sem þar var ofanþilja sópaðist burt. Taldi skipstjórinn, Erlendur Sig- urðsson, frá Keflavik, að styrkleiki stýrishússins hefði bjargað því að ekki fór verr. Einir frá Eskifirði, sem gekk frá Keflavík, missti stýrið við Garð- skaga, en aðstoðarskipið Freyja dró hann til Keflavíkur. Vélin bilaði í Bjarna Ólafssyni frá Keflavík. Hann bjargaðist á seglum i átt til lands, en Freyja dró hann seinasta spölinn. Bjarni Ólafsson fékk á sig sjó, en engan um borð sakaði. Þá aðstoð- aði Freyja Keflvíking og Ægi við að bjarga v.b. Faxa, sem varð fyrir mikl- um brotsjó í Skagaröst. Faxi var gerður út frá Sandgerði. (Um þann atþurð er frásögn í des.þlaði Faxa 1973, þls. 160—161.) Á þessum árum voru Keflvíkingar í fremstu röð íslenskra sjómanna. Keflavík var ein aðalþátaverstöð landsins ásamt Vestmannaeyjum og Sandgerði. Fjöldi manna og þáta komu hingað utan af landi á vetrar- vertíð ár hvert. Keflvískir skipstjórar öfluðu svo vel að þeir stóðu þar flestum framar. Sjávarútvegur hér var þá með miklum þlóma, skipa- kaup tíð og bjartsýni mikil. En léleg hafnarskilyrði takmörkuðu stærð og fjölda báta. Það hafði um leið áhrif á byggðaþróun. En svo fast sóttu Keflvíkingar sjóinn á litlum bátum að undrum sætir. Algeng- asta bátastærð þá var frá 20 til 33 lestir. En stærri þátar voru þó þyrj- aðir að koma. Til dæmis f rá Sviþjóð. En um útgerð togara og línuveiðara var ekki að ræða sökum hafnleysis. Einn af þessum aflamönnum var Guðmundur Kr. á Geir. Hann keypti Geir haustið 1942. Báturinn var smíðaður í Reykjavík 1938. Hann var 22 lestir. Um þetta leyti hafði Guðmundur fullan hug á að fá sér stærri bát eins og fleiri á þessum árum. Á Geir fisk- aði Guðmundur vel og var oftast með hinum aflahæstu. Stundum hæstur. Þegar aflaskýrslur þessara ára eru lesnar læðist að manni sá grunur, að mikið kapp hafi verið meðal formanna til að halda efstu sætunum. Þannig var róðrafjöldi 20 til 30 lesta báta iðulega 80 til 90 á vetrarvertíðum. Oft allt að 100. En það var þó fátítt að komast svo hátt. Má því nærri geta að sjór hefur ver- ið sóttur í flestum veðrum, oft án mikillar hvíldar. Á vetrarvertíð 1943 var Guð- mundur aflakóngur. Fékk 1540 skippund af fiski í 86 róðrum. Lifrar- magn varð 45.348 litrar. Meðalafli í róðri var þá 17,7 skpd. Á vetrarver- tíð 1944, varð Geir i þriðja sæti. Fékk 1602 skpd. í 81 róðri. Töpuð- ust þá nokkrir róðrar vegna þess að í febr. slitnaði báturinn frá bryggju i Vatnsneshöfn, og rak upp í fjöru. Viðgerð tók 11 daga. Guðmundur Kr. hóf sjómennsku um fermingaraldur á togaranum Braga. Hann varð fyrst skipstjóri á v.b. Gullfossi frá Keflavik. Síðan með ýmsa báta frá Keflavík og ísa- firði. En lengst af var hann skipstjóri á v.b. Jóni Guðmundssyni frá Kefla- vík. í marsblaði Faxa 1946, er birt minnngargrein um skipverjana á Geir. Þar er birt bátsmynd, sem sögö er vera af Geir. En myndin er afJóni Guðmundssyni GK 517. Það sést ef stækkunargleri er brugðið yfir myndina og einkennisstafirnir athugaðir. Geir hafði einkennisstaf- ina GK 198. (í dagblöðunum 10. til 12. febr. 1946 eru frásagnir um atburðina 9. febr. Hérer stuðst viðgreinar íMbl. 10. og 12. febr., frétt í Vísi 11. febr., fréttir í Alþýðublaðinu 10. og 12. febr. í Mbl. 23. febr. stutt frétt um minningar- athöfnina. bar eru og minningarorð um Guðmund Kr. í Vísi 26. apríl er frétt um likfundinn í Lambastaðavör. í marsblöðum Faxa og Reykjaness 1946 eru minningarorð um áhöfn Geirs. í Faxa, jan.—febr. 1947 er stutt frétt um afhjúpun minnisvarðans. Um sjósókn Guðmundar Kr., heini- ildir í júníblaði Reykjaness 1943: ,,Aflakóngar Suðurnesja“. Reykja- nes, júlí 1944: ,,Aflakóngar Suður- nesja vetrarvertíðina 1944“). Framhald í næsta blaði Vinnuveitendur Athugiö að tilkynna skrifstofu bœjarins um þá starfsmenn ykkar, sem lögheimili eiga í Njarövík. Bæjarstjóri Skipaafgreiðsla Suðurnesja Vatnsnesvegi 14, Keflavík 1 [I » ' ' ^ . 1 l • X v J - P 1 4 > t«m ^S&SS*** * 'v' . ..1— Leigjum út bílkrana og lyftara Upplýsingar í símum 3260 og 4042 Flutningur er okkar fag. EIMSKIP SÍMI 27100 • AÐALSKRIFSTOFA L * Eimskip umboð á Suðurnesjum. Skrifstofa okkar flutt að Vatnsnesvegi 14, 3.hæð í Keflavík. Skrifstofusíminn er óbreyttur! FAXI 27

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.