Faxi - 01.01.1986, Blaðsíða 34
ekkert líf þrífst í vatninu, sem er
saltasta vatn í heiminum með 27%
salt og steinefna meðan venjuleg
vötn eru með 4—6% steinefna.
Astæðan er sú að ekkert rennur úr
vatninu og uppgufunin er mikil í
hitanum. Þótt Jórdan veiti miklu
af vatni í Dauðahafið ber hún
einnig mikið af steinefnum þang-
að.
Menn notuðu tækifærið í blíð-
unni, brugðu á leik og fóru í
bað, flutu á vatninu án fyrirhafnar
og kepptu um hver hefði fegurstu
tærnar! í fjarlægð sáum við staði
sem tengdust frásögum Biblíunn-
ar af Sódómu og Gómóru, enda
fór allt sómasamlega fram. Þetta
minnti okkur á hvemig klettar og
umhverfi geyma fornar sagnir
eins og heima á Fróni. í 1. Móse-
bók er sagt frá þvð að kona Lots
, ,varö að saltstöpli" er hún leit
við. Menn hafa þannig frá fornu
fari tengt sögur staðháttum í um-
hverfinu.
í bakaleiðinni var áð í Kumran.
Dr. James Pritchard, einn aðal-
heimildamaður Magnúsar Magn-
ússonar og kennari próf. Þóris Kr.
Þórðarsonar, kennara í Gamla-
testamentisfræðum við H.I., segir
um Dauðahafsritin, sem fundust í
hellunum við Kumran 1947 og
síðar, að þau séu mikilvægust
vegna þess að þau sjá okkur fyrir
, ,nýjum“ afritum af miklum hluta
Gt., afritum, sem eru þúsund
árum eldri en elsta hebreska
handritið af því riti, sem hingað til
hafði verið vitað um. Sumir tala
um Kumran sem ,,týnda hlekk-
inn“ milli Gt. og Nt. og í kjölfarið
hafa fylgt miklar textarannsóknir,
sem eru ekki síður mikilvægar en
rannsóknir fornleifafræðinga sem
Magnús Magnússon byggir nær
eingöngu á.
Kumran var grafið upp á árun-
um 1951-56. Essenasamfélagið
var á þessum stað, en þeir bjuggu
í tjöldum í nágrenninu. Við sáum
m.a. hreinsunarstöð þeirra og
brest í þrepum eftir jarðskjálfta
sem varð 31 f.Kr. Skömmu síðar
er talið að Essenarnir hafi yfirgef-
ið staðinn. Þetta var samfélag
vandlætara sem átti í útistöðum
við Rómverja. Urslitaorustan stóð
um Massadavirkið, sem við sáum
í íjarlægð, en þangað flúðu Essen-
arnir. Er þeir gerðu sér grein fyrir
því að styrjöldin var töpuð kusu
þeir að deyja frjálsir menn og
sviptu sig lífi. Hugsanlega hefur
Jóhannes skírari og einhverjir af
lærisveinum Jesú verið í tengsl-
um við Essenasamfélagið. Rit frá
Kumran hafa fundist í Massada
og þar er getið um Jóhannes
Essena. Það er alveg víst að sam-
band Jesú og Jóhannesar var
mjög náið. Jeús lét skírast af Jó-
hannesi í Jórdan við uppphaf
starfsferils síns.
Sunnudaginn 22. des. héldum
við norður lil Galíleu og Genesar-
etsvatns eða Galíleuvatns. Það
var ekki talið ráðlegt að við kæm-
um við í Samaríu og skoðuðum
Jakobsbrunn. Þess í stað fórum
við á kunnan skírnarstað við
Jórdan, sem er mikið notaður af
fullorðinsskírendum. Síðan var
ekið um Tíberías, borgina sem
kennd er við Tfberíus keisara og
er við vestanvert Genesaretvatn.
Herodes Antipas byggði þá boig 62
e.Kr., en hann var sonur Herodes-
ar mikla. Þar reisti hann hallir,
leikhús og musteri úr gulli og
marmara. Allt frá tímum Róm-
verja hafa almenningsböð verið
þarna við heitar uppsprettur.
Tíberías er nú vinsæll ferða-
mannastaður. Eftir Bar Kochba
uppreisnina, er Gyðingar voru
hraktir á brott úr Jerúsalem 135
e.Kr. var Tíberías lærdómssetur
Gyðinga. Þar luku þeir við
Talmud, hið munnlega lögmál
400 e.Kr. og settu sérhljóðatáknin
í Torah, hið skriflega lögmál,
hebresku Biblíunnar. Tíberías er
því ein af fjórum helgustu borgum
Gyðinga. Við vorum í Kaper-
naum, en skömmu áður sáum við
út um bílgluggann fjall sæluboð-
ananna, þar sem Jesús hélt fjall-
ræðuna. Þá kom ósjálfrátt í huga
minn altaristaflan í Keflavíkur-
kirkju, þar sem Jesús er að flytja
ræðuna í íslensku umhverfi.
Kapernaum var á tímum Jesú ein
stærsta borgin við Genesaretvatn-
ið, bæði tollstöð og aðsetur róm-
verskra valdsmanna. Jesús starf-
aði þarna 20 mánuði að því talið
er og birti mönnum kærleika sinn
og mátt í miskunnar- og máttar-
verkum. Kapernaum var heimili
Péturs postula (Matt.8,5), en við
sáum rúsir af kirkju frá 5. öld,
sem talin er byggð yfir heimili
Péturs.
Jesús kenndi í samkomuhúsi
Gyðinga í Kapernaum
(Mark.1,21) og nýverið hafa
fundist rústir af synagógunni. Við
lásum frásagnir úr ritningunni
sem tengdust þessum stað eins og
svo oft í ferðinni.
í Galíleu fannst manni margt
ósnortið og sveipað einfaldleika
sem minnti á samtíma Jesú.
I hádeginu snæddu margir Pét-
ursfisk úr Genesaretvatni í
Tíberías. Menn létu vel af þótt
fiskurinn væri fremur ófrýnileg-
ur. Þá rifjaðist upp fyrir mér sag-
an um írann sem spurði Gyðing
hvernig stæði á því að þeir væru
vel gefnir. ,,Það er vegna þess að
við borðum ákveðna tegund af
fiski“, svaraði Gyðingurinn, og
bauðst til að selja íranum einn á
10 dali. Eftir að hafa borgað fékk
írinnfiskinn. ,,Hvaðhannerlítill
og ljótur“, sagði hann. ,,Sko til“,
sagði Gyðingurinn, ,,þú ert að
vitkast."
Pétursfiskurinn er talinn skyld-
ur fiski í Viktoíuvatni í Afríku, en
á forsögutíma var samgangur
milli þessara vatna.
Að loknum hádegisverði héld-
um við áfram til Nasaret, borgar-
innar þar sem Jesús ólst upp, sá-
um Maríubrunn, þar sem hann
hefur örugglega leikið sér og
skoðuðum sfðan eitt fegursta
guðshús sem ég hef séð, Boðun-
arkirkjuna. F'ranskiskanar, sem
hafa umsjón með kirkjunni,
leyfðu kórnum að syngja í þeim
hluta kirkjunna, þar sem engill-
inn er talinn hafa vitjað Maríu og
boðað henni fæðingu Jesú- Þessi
helgistund í kirkjunni boðaði mér
nálægð jólanna. Byggingu kirkj-
unnar var lokið 1969. Ilún er
teiknuð af frægum ítölskum arki-
tekt Signor Musio og byggð fyrir
gjafafé kaþólskra víðs vegar að úr
heiminum. Á leiðinni frá Nasaret
sáum við Kana í fjarlægð án þess
að koma þar við, enda álitamál
hvar sá staður sé. En hann varð-
veitir minninguna um fyrsta mátt-
arverk Jesú, tákn sem styrkti trú
lærisveinanna.
Á heimleiðinni ókum við um
Jersreel sléttuna, þar sem margar
úrslitaorustur hafa verið háðar í
sögu þjóðarinnar allt fram á þenn-
an dag. Sú staðreynd tengist án
efa hugmyndum Gyðinga um að
úrslitaorustan milli góðs og ills
fari þar fram.
í fjarska sáum við 'lhhor fiall,
sem geymir frásögnina af um-
myndun Jesú (Mark.9,22ff). Þar
er nú klaustur Fransiskana. Til-
sýndar sáum við einnig Megiddo,
sem ég hafði mikla löngun til að
skoða nánar. Þið getið lesið um
Megiddo í bók Magnúsar Magn
ússonar. Ég hafði hug á að sjá
vatnsgöngin sem lágu inn í borg-
ina og þær birgðaskemmur sem
kallaðar hafa verið „hesthús
Salomons“. Hvort tveggja talandi
dæmi um háþróaða verkmenn-
ingu fyrri tíma, sem okkur hættir
oft til að afskrifa.
Á leiðinni upp til Jerúsalmen
sáum við eitt af orkuverum ísra-
ela, knúið olíu og kolum ef með
þarf. Við skoðuðum einnig
demantaverksmiðju og ókum um
Herzlíu, sem kennd er við Herzl
höfund Zíonismans, þeirrar
stefnu sem miðar að endurreisn
ísraels.
Við komum á Shalom hótelið
þreytt og svöng en ánægð með
góða ferð noður í land. Við nutum
hvíldar og friðar um kvöldið og
hlýddum á kórinn sem söng fyrir
hótelgesti við góðar undirtektir.
Þorláksmessa að morgni, kóra-
mótið og jól í ísrael á næsta leyti
og síðan förin til Egyptalands.
Meira um það síðar, ef Guð lofar.
(Framhald í nœsta blaði).
Tilkynning
til notenda
Hitaveitu Suðurnesja
Vegna mjög svo aukinna vanskila hafa
innheimtuaðgerðir
verið hertar
Losið ykkur við óþægilegar
innheimtuaðgerðir og
greiðið skilvíslega
Athugið! Eindagi er 15. hvers
mánaðar
Innheimtustjóri
Sími 3200
HITAVEITA SUÐURNESJA
BREKKUSTÍG 36
NJARÐVÍK
SÍMI 3200
34 FAXI
J