Faxi - 01.06.1986, Blaðsíða 14
sem unnið er að núna, byggingu lang-
legudeildar við Sjúkrahúsið. Sem betur
fer hafa sveitarfélögin svo og þeir flokk-
ar sem sæti eiga í bæjarstjórn tekið
höndum saman til að tryggja framgang
þessa máls. Ég vona því að fram-
kvæmdir geti hafist sem allra fyrst.
Málefni aldraða
Við munum vinna áfram markvisst
að málefnum aldraðra m.a. með bygg-
ingu þjónustuíbúða, sem leigðar verða
eða seldar, byggingu elliheimilis, heim-
ilishjálp og heimahjúkrun verði aukin.
Æskulýðs- og skólamál
Byggja þarf við Myllubakkaskóla,
þannig að hann fullnægi þeim kröfum
sem til hans eru gerðar miðað við nú-
verandi nemendafjölda. Kennsla þroska-
heftra fari fram innan grunnskólans.
Bætt verði úr húsnæðisvanda Fjölbraut-
askólans með viðbyggingu að Sunnu-
braut og starfssemi skólans efld svo
sem verða má. Tónlistarskólanum verði
ávallt séð fyrir viðunandi starfsaðstöðu.
Dagvistun barna
Unnið verði áfram að uppbyggingu
leikskóla og dagheimila. Ljúka þarf
byggingu nýs leikskóla í Heiðarbyggð á
kjörtímabilinu. Um leið og sá leikskóli
verður opnaður, þarf að flytja nokkuð
mörg leikskólabörn frá Tjarnarseli, í nýja
leikskólann. Þá verður hægt að starf-
rækja annað húsnæði Tjarnarsels, sem
dagheimili eins og upprunalega var
gert ráð fyrir. Við lausn húsnæðisvanda
grunnskólans skal gert ráð fyrir að
hægt verði að reka þar skólaathvarf.
Halda skal áfram á þeirri braut sem
mörkuð hefur verið með námskeiðum
fyrir starfsfólk dagvistarheimila, gæslu-
valla og fyrir dagmæður.
Fjölskyldan og umhverfið
Áfram verði skipulega unnið að fegr-
un bæjarins, með snyrtingu opinna
svæða, lagningu göngustíga, gang-
stétta og skreytingu opinberra bygging.
Fjaran verði hreinsuð. Aðstaða til úti-
vistar innan bæjarmarkanna verði bætt
og þannig auknir möguleikar fjöl-
skyldna fyrir sameiginlega útivist innan
bæjarmarkanna. Lokið verði við bygg-
ingu útisundlaugar á kjörtímabilinu.
Þetta kann að virðast nokkuð langur
framkvæmdalisti, en ef miðað er við
framkvæmdir þessa kjörtímabils, þá er
Ijóst að þetta er aðeins eðlilegt fram-
hald þess sem gerst hefur verið á und-
anförnum árum. Þó eru allar þessar
framkvæmdir grundvallaðar á traustu
atvinnulífi. Við leggjum því höfuð-
áherslu á trygga og nægjanlega atvinnu
fyrir alla, á því byggir þjónusta bæjar-
ins.
Að lokum óska ég bæjarbúum gleði-
legs sumars.
X-D
Sjálfstœðisflokkur
Ingólfur Falsson
Það sem ég tel brýnast og ég mun
vinna að, er stefnuskrá
Sjálfstæðisflokksins í Keflavik fyrir
bæjarstjórnarkosningarnar 1986.
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins
vilja hér með gera bæjarbúum Ijósa
stefnuskrá sína, enda verður hún leiðar-
Ijós bæjarfulltrúa listans næsta kjörtíma-
bil í bæjarstjórn Keflavíkur.
Höfuðmarkmið bæjarmálastarfs Sjálf-
stæðismanna er nú eins og áður:
Vaxandi velsæld — betri og
fegurri bær
Þessu markmiði hyggjumst við ná
SPÓNAPLÖTUR - KROSSVIÐUR
SPÓNAPLÖTUR:
PELLOS — Standard og
rakaþolnar V 313
Þykktir: 10-12-15-18-22-30
St.: 1200x2600 - 1220x2745
Verö fró kr. 83,65 pr. m2
UONASPAN - Standard
Þykktir: 4-6-8
Stœröir 1200x2550 mm
LIONASPAN -
Rakaþoliö V 313
Þykkt: 4-6-8
Stœrö: 1200x2550 mm
LIONASPAN - SG-1 V 313
rakavariö og hvíthúöaö
Þykkt: 3,2-6-8
Stœrö: 1200x2550
ELDTEFJANDI PLÖTUR
Þykkt: 10 og 12 mm
Stærð: 1200x2600 mm
KROSSVIÐUR
DOUGLAS FURA
(Rdsaöur)
Þykkt: 9—12 mm
St.: 1220x2440/1220/2745
ENSO COMBI (Brúnn)
Þykkt: 6,5-9-12-15-18-21
ENSO FASADPANELL
Utanhússkrossviöur
Þykkt: 11,5
Stœrö: 1200x2745
BIRKI COMBI
(Rakaþolinn)
Þykkt: 4-6, 5-9-12-15-18
St.: 1220x2745
ASFALTBORNAR
PLÖTUR (Tjörutex)
Þykkt 12 mm
Stœrö: 1200x2745
UTANHÚSSKROSSVIÐUR
með kvartsi.
Stærð: 1190x2750 mm
JÁRN & SKIP
Víkurbraut 15 - Keflavík - Sími 1505 - Víkurbraut 44 - Grindavík - Sími 8462
KAUPFÉLAG SUÐURNESJA
138 FAXI