Faxi

Volume

Faxi - 01.10.1989, Page 6

Faxi - 01.10.1989, Page 6
í í I t K. Runar Karlsson Atvinnulíf — Atvinnurekstur Inngangur í síðasta greinarstúf mínum gerði ég í mjög stuttu máli grein fyrir því hvað hugbúnaður væri. Þar voru og útskýrð í grófum dráttum fyrirbæri eins og vélbúnaður, forrit og forrit- unarmál. Einnig gerði ég að umtals- efni samspil hugbúnaðar og vélbún- aðar, ásamt fleiri þáttum. Þessi fyrsta grein var hugsuð sem nokk- urs konar inngangur að fleiri grein- um um hugbúnaðarmál. í þeirri grein er nú birtist og í þeim, sem á eftir koma, ætla ég að gera tilraun til að rekja hið flókna ferli sem á sér stað við þróun viðskiptahugbúnað- ar, þ.e. reyna að lýsa því hvers vegna og með hvaða hætti sá hugbúnaður verður til. Höfundur vill vekja at- hygli á því að varlega skyldi heim- færa eftirfarandi umræðu í greinar- korni þessu yfir á alþjóðavettvang; fremur er hér um að ræða þanka sem eingöngu eiga við íslenskt efna- hags- og atvinnulíf. En vissulega er þó margt sem einnig getur átt við úti í hinum stóra heimi. — Hvers vegna er hugbúnaður tíl? Það fyrsta sem við þurfum að gera okkur grein fyrir er, að það var fyrst og fremst til að mæta ákveðinni þörf úti í atvinnulífinu,að viðskipta- hugbúnaður varð til. A undan voru að sjálfsögðu gengnar þær taekni- legu framfarir er fyrst skópu TÖLV- UNA. Hér verður þó ekki farið út í þá sálma. En fyrir tilverknað all margra þátta, þá skapaðist á sínum tíma gífurleg þörf fyrir viðskipta- hugbúnað sem nothæfur væri á tölvum þeim sem komnar voru til skjalanna. Umræddir orsakaþættir eru með- al annars: ★ Aukinn hraði í viðskiptum sem og atvinnulífinu öllu. ★ Flóknara hagkerfi; sífelldar breytingar á skattalöggjöf, bók- haldsreglum o.s.frv. ★ Flóknari verkaskipting í stjórn- un fyrirtækja. ★ Auknar kröfur um nákvæmni í rekstri fyrirtækja, s.s. um verð- útreikninga, söluverðmæti, arð- semis- og framlegðarútreikn- inga, o.fl., o.fl. Ofantalin atriði, ásamt mörgum fleiri þáttum hafa síðan valdið því að til er á markaðnum í dag geysi- fjölhæfur og fjölbreyttur hugbúnað- ur, sem sinnt getur allflestu því er viðkemur rekstri fyrirtækja, burt- séð frá því í hvaða grein þau starfa. Almennan viðskiptahugbúnað má gróflega flokka í eftirfarandi megin flokka: Sérhverjum þessara meginflokka má síðan skipta niður í ótal undir- flokka, sem geta verið mjög breyti- legir eftir eðli atvinnurekstursins sem hugbúnaðinn notar. Nánar verður fjallað um ofangreinda meg- inflokka í síðari greinum, og er þá hugmyndin að gera nokkurs konar úttekt á því hvernig forritin vinna og til hvers þau eru notuð. Stjórnendur fyrirtækja og stofn- ana hér á landi hafa í auknum mæli gert sér grein fyrir þeim nánast ótæmandi möguleikum sem tölv- urnar bjóða upp á, og hafa í sam- ræmi við það gert síauknar kröfur J um gæði og notagildi viðskiptahug- búnaðar. Þetta hefur síðan gert það að verkum að sérhver hugbúnaðar- framleiðandi leggur nú sífellt meiri áherslu á þróun hugbúnaðarins. Ef hugbúnaðarfyrirtæki ætlar sér að vera samkeppnisfært, þá þarf það sí- fellt að koma með nýjungar og end- urbætur á þeim hugbúnaði sem fyr- ir er. Einnig spilar hér inn í annar stór þáttur er eykur enn frekar á þær kröfur, sem gerðar eru til við- skiptahugbúnaðar, en það eru hinar geysihröðu tæknilegu framfarir sem ★ Lagerbókhald ★ Viðskiptamannabókhald ★ Sölubókhald ★ Launabókhald ★ Fjárhagsbókhald 226 FAXI

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.