Faxi - 01.10.1989, Page 8
AFMÆLI
TVEGGJA
FAXAFÉLAGA
Keflavík 27. maí 1939 og varð hann
því fimmtugur fyrr á þessu ári.
Hann er eins og flestir jafnaldrar
hans hér um slóðir kominn af sjó-
mannsættum og var afi hans sævík-
ingurinn Stjáni blái, Kristján Sveins-
son, en minnismerki um hann var
einmitt afhjúpað við höfnina sl. vor.
A uppvaxtarárum Karls komst hann
í kynni við líf og störf verkafólks og
setti það mark sitt á hann og hefur
fylgt honum æ síðan. Hann lærði til
kennara í Kennaraskóla íslands og
lauk þaðan prófi árið 1960. Hann
hóf strax kennslu sama haust við
barnaskólann í Keflavík og kenndi
þar fram til ársins 1976.
Karl hóf snemma afskipti af
verkalýðsmálum og jafnframt
stjórnmálum. Hann var kosinn ritari
Verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavíkur og nágrennis árið 1966
og síðan formaður árið 1970 og það
er hann enn. Hann hefur á þessum
árum ávallt lagt mikla vinnu af
höndum á skrifstofu félagsins, jafn-
framt því að taka þátt í verkalýðs-
málum á landsvísu. Einnig hefur
hann tekið þátt í þeim störfum á al-
þjóðlegum vettvangi. Frá árinu
1975 hefur hann verið varaformað-
ur Verkamannasambandsins utan
eins tímabils. Sem slíkur hefur hann
verið mjög virkur þátttakandi í öll-
um kjarasamningum verkalýðs-
hreyfingarinnar.
Fræðslumál innan verkalýðs-
hreyfingarinnar hafa löngum verið
meðal mestu áhugamála Karls. Eftir
hann liggja mikil störf innan félags-
málaskóla ASÍ og nú á síðari árum
hefur hann átt hvað mestan þátt í að
koma á starfsmenntun til handa
fiskvinnslufólki.
Sem fyrr sagði, þá tók Karl ungur
að aldri þátt í stjórnmálum og þá
undir merki jafnaðarstefnunnar.
Tvítugur að aldri átti hann sæti í
stjórnum SUJ og Alþýðuflokksins.
Árin 1970—1982 sat hann í bæjar-
stjórn Keflavíkur, en á árinu 1978
var hann kosinn á Alþing fyrir
Reykjaneskjördæmi og hefur hann
setið á þingi síðan. Á Alþingi hefur
Karl ekki verið einn af þeim þing-
mönnum sem láta sig hverfa í fjöld-
ann, heldur hefur hann ötullega lát-
ið að sér kveða.
Karl Steinar gerðist félagi í Mál-
fundafélaginu Faxa árið 1972. Þrátt
fyrir ærið annríki við ýmis önnur
störf hefur hann ekki slegið slöku
við mætingar í Faxa. Hefur hann
ávallt haft mikið til málanna að
leggja. Karl er kvæntur Þórdísi Þor-
móðsdóttur og eiga þau hjónin fjög-
ur börn. Þau heita Kalla Björk, Edda
Rós, Guðný Hrund og Margeir Stein-
ar.
Faxafélagar senda Karli Steinari
og fjölskyldu hans síðbúnar en hug-
heilar heillaóskir á þessum tíma-
mótum í lífi hans.
K istján A. Jónsson fæddist í
Keflavík 6. júlí 1939 og hann varð
því einnig fimmtugur nú í sumar.
Hann ólst upp við sjávarsíðuna og
kynntist því sjómennsku og útgerð
frá fyrstu hendi. Hann kaus þó að
halda menntaveginn og lauk prófi
frá Kennaraskólanum árið 1960
ásamt Karli Steinari. Réðist hann
strax til kennslu að barnaskólanum
í Keflavík og hefur starfað þar síðan.
Árið 1979 varð hann yfirkennari við
skólann og einnig var hann settur
skólastjóri árin 1986—88.
Þrátt fyrir að Kristján hafi helgað
kennslunni starfskrafta sína, þá hef-
ur hann ávallt borið sterkar taugar
til sjávarins. Lengi hefur hann
stundað uppsetningu og viðhald
veiðarfæra í hjáverkum og sjó-
mennsku á sumrin.
Kristján hefur tekið mikinn þátt í
störfum sóknarnefndar Keflavíkur
og hefur hann setið þar í stjórn frá
árinu 1967. Þar hefur hann verið
fjárhaldsmaður í mörg ár.
Kristján gekk í Málfundafélagið
Faxa árið 1979. Fljótlega var hann
kosinn í blaðstjórn og hefur lengst
af verið aðstoðarritstjóri. Auk þess
að hafa skrifað margar greinar af
ýmsu tagi í blaðið, þá hefur hann
haft yfirumsjón með prófarkar-
lestri. Því mikilvæga verkefni hefur
hann skilað með mikilli prýði. Krist-
ján er kvæntur Helgu Sigríði Péturs-
dóttur og eigaþau hjónin tvær dæt-
ur, Guðfinnu Osk og Ólöfu Björgu.
Faxi sendir Kristjáni og fjölskyldu
hans bestu heillaóskir á þessum
merku tímamótum.
50 ára
afmælisfundur
Faxa
Fimmtudaginn 10. október sl.
var haldinn hátíðarfundur í Mál-
fundafélaginu Faxa. Þar var
minnst 50 ára starfa félagsins og af
því tilefni varöllum núlifandi heið-
ursfélögum boðið til fundarins
sem var haldinn í húsakynnum
Iðnsveinafélagsins að Tjarnargötu
7. Á meðfylgjandi mynd sést for-
maður Faxa, Guðfinnur Sigurvins-
son, bæjarstjóri, setja fundinn. Eft-
irtaldir heiðursfélagar mættu til
fundarins ásamt eiginkonum sín-
um: Valtýr Guðjónsson, Jón Tóm-
asson og Egill Þorfinnsson. Einnig
var mætt Lóa Þorkelsdóttir, ekkja
Hallgríms Th. Björnssonar.
228 FAXI