Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.10.1989, Qupperneq 30

Faxi - 01.10.1989, Qupperneq 30
MINNING Guðmunda Eggertsdóttir frá Kothúsum í Garði Fædd 1. febrúar 1902 Dáin 16. október 1989 Guðmunda Eggertsdóttir var fædd 1. febrúar 1902 að Kothúsum í Garði. Hún var dóttir hjónanna Guðríðar Árnadóttur, fædd að Lunansholti og alin upp á Bjalla í Landsveit í Rangárvallasýslu og Eggert Gíslasonar, fæddur í Odda- sókn í Rangárvallasýslu, alinn upp í Stokkseyrarsókn í Árnessýslu. Það má geta þess að Eggert Gísla- son var formaður á báti fyrir séra Jens Pálsson á Útskálum þá 25 ára gamall. Guðmunda Eggertsdóttir giftist Vigfúsi Pétri Ásmundssyni 1922 í Hafnarfirði. Pétur, eins og við kölluðum hann, var fæddur á Húsavík 21. janúar 1900. Guð- munda og Pétur áttu sitt fyrsta barn árið 1923 í Hafnarfirði, Guð- ríði, fædd 25. maí 1923. Árið 1927 flytur Guðmunda og Pétur suður í Garð og fá þau inni hjá Guðrúnu Eggertsdóttur og Jóni Þorkelssyni í Kothúsum í Garði. Pétur hafði skipstjórnarréttindi. Það mun hafa verið í kringum 1930 að Pétur verður skipstjóri á fiskibáti fyrir Friðrik Magnússon. Friðrik var bróðir Sveins Magnússonar kaup- manns í Gerðum. Þá fá Guðmunda og Pétur leigt á loftinu suðaustan megin í Gerðahúsinu og bjuggu þar stuttan tíma. Þaðan fóru þau að Krókvöllum til Gísla Eggerts- sonar og Hrefnu Þorsteinsdóttur. Svo fóru þau að Holti í Garði. Árið 1941 byggði Pétur hús í næsta ná- grenni við okkur hjónin og nefndu það Höfn. Þá eru þau Guðmunda og Pétur komin í Höfn. Ég hugsa að þar hafi þeim liðið best. Pétur var baráttumaður fyrir bættum kjörum verkamanna og sjó- manna, hann var framámaður í Verkalýðs- og sjómannafélagi Gerðahrepps í mörg ár. Guð- munda stóð fast við hliðina á Pétri að þeirri hugsjón. Guðmunda var félagslynd, hún var mikið í leiklist og lék sjálf í leikritum hér i Garði, hún söng í Útskálakirkju nokkur ár. Hún var ein af stofnendum Slysavarnarfé- lags kvenna hér í Garði. Guð- munda var frekar fáskiptin hún var ekki að trana sér fram en hún var tryggur vinur þeirra sem hún vildi þekkja. Guðmunda var fyrst og fremst húsmóðir og stundaði hannyrðir. Hún var söngelsk, átti orgel og spilaði á það heima. Hún var mikið fyrir blóm og ræktaði blómagarð fyrir framan húsið sitt. Við sáum hana í garðinum við að hlúa að blómunum sinum, blóma- knúpparnir sprungu út og brostu til hennar. Pétur sagði einu sinni við mig: Ef grasið vex í götunni á milli okkar þá er eitthvað að. Nú hefur grasið gróið í götunni. Þessi góðu hjón eru komin á bak við móðuna miklu. Við minnumst þeirra með hlýhug og þakklæti. Þannig er lífið, menn fara og koma, nýir vegir eru lagðir með nýju fólki, gömlu göturnar gróa upp. Við vottum Guðríði Péturs- dóttur og öðrum ættingjum okkar dýpstu samúð. Guðmunda Eggertsdóttir var jörðuð frá Útskálakirkju 21. októ- ber 1989. Blessuð sé minning hennar. Gardi, 29.10.89 Málfríöur og Njáll á hverju flóði til þess að halda skip- inu stöðugu. Björgunarskipið Goð- inn beið í innsiglingunni og var dráttartaug frá því fest í Mariane. Búið var að grafa rennu í fjöruna, stjórnborðmegin, og var ætlunin að draga skipið ofan í hana á öðru akk- erinu um leið og það léttist. Þegar leið að háflóði var reynt að draga skipið niður í rennuna en þá gáfu akkerisfestingar í fjörunni sig. Lofti var dælt í tanka og vélarrúm en með litlum árangri. Ekki tókst að stjórna loftflæði, annarsvegar í tanka og hinsvegar í vélarrúm, þ.e.a.s. að byggja upp mismunandi þrýsting á hvorum stað fyrir sig. Notað,var aðeins eitt kerfi og leitaði loftið alltaf í efri tanka en ekki vél- arrúmið. Vatnsdælur voru ekki heldur í fullkomnu lagi. lló tíma fyrir háflóðið var fyrirséð að björgun tækist ekki í þetta skipti og var aðgerðum hætt. Á flóðinu færðist skipið um 2.50 m afturábak og um 13 m á bak- borða. Önnur tilraun undirbúin V'egna tímaskorts var útilokað að gera aðra tilraun strax á morgun- flóðinu næsta dag og því lögð áhersla á að undirbúa allt sem best fyrir kvöldflóðið. Bakborðsakkerið var fest upp í fjörukambinn ef björgun mistækist og þyrfti að draga skipið aftur upp í grjótið. Hitt akkerið var fest tryggi- lega stjórnborðsmegin, utan við áð- urnefnda rennu, en það hafði losn- að daginn áður. Dælubúnaður var yfirfarinn og gerðar voru breytingar á loftkerfinu sem allt valt á. Tvær litlar pressur voru um borð sem áttu að dæla lofti í tankana en í landi var stór pressa og frá henni 2" lögn sem tengd var vélarrúminu þannig að í stað eins útbúnaðar í fyrstu tilraun voru nú tvö aðskilin loftkerfi. Á flot Á aðfallinu seinni part föstudags- ins 7. apríl var undirbúningi lokið. Gefin var skipun um loftdælingu í vélarrúmið til þess að létta skipið að aftan. Goðinn hélt við með um 10 tonna átaki til þess að halda því á réttum stað og frá grjóti aftan við. Smátt og smátt fundu mennirnir um borð að skipið varð kvikara í sjón- um og var þá byrjað að dæla lofti í tankana framan við miðju. Þeim tókst að losna við um 180 tonn af sjó úr vélarrúminu með loftdælingunni sem þýddi 3ja m mismun á yfirborði sjávar innan og utan við skipið. Rennan stjórnborðsmegin nýttist aldrei enda óþörf þegar til kom. Kl. 18.27, nákvæmlega, eða 40 mín. fyrir flóð losnaði skipið alveg og átti þá eftir um 150 tonna flot miðað við mestu flóðhæð þetta kvöld. Fagnaðaróp heyrðust frá þreyttum mönnunum á þilfarinu, þegar Mariane Danielsen flaut, aft- urþung og höll á bakborða, frá grjótinu og út á frían sjó. Lyngholtsmenn höfðu reiknað rétt. Sesselja Gudmundsdóllir, Brekkugötu 14, 190 Vogum. 250 FAXI

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.