Faxi - 01.02.1990, Síða 18
HUGLEIÐING UM STÓRU-VOGASKÓLA
Mér þykir ástæða til að fagna því
sérstaklega hversu afgerandi at-
hygli Faxi vekur á skólahaldi á
Suðurnesjum, með greinaflokki í
undanfarandi tölublöðum.
Það kemur í Ijós að á Suðurnesj-
um hafa menn verið býsna fljótir
að átta sig á mikilvægi menntunar
almennings. Hér hafa menn nefni-
lega einhverja elstu skóla lands-
ins. Skólahald hefst t.d. í Vatns-
leysustrandarhreppi haustið 1872.
Enn í dag er mikil gróska í skóla-
málum á Suðurnesjum, eins og sjá
má á þessari umfjöllun Faxa. Má
þar til viðbótar geta sérstaks fé-
lags skólastjórnenda á svæðinu
sem nefnist „Skósuð ", Á þeim
vettvangi hittast skólastjórnendur
og bera saman bækur sínar á
reglulegum fundum. Hafa mörg
góð mál fengið farsæla lausn á
fundum félagsins, önnur eru í
gangi og vonandi verður sá félags-
skapur uppspretta enn fleiri góðra
mála í framtíðinni. Veit ég til þess
að „Skósuð" hefur vakið verð-
skuldaða athygli og jafnvel orðið
öðrum fyrirmynd.
Húsnœði og starfsfólk
Stóru-Vogaskóla
í þessari grein er mér ætlað að
fjalla um skólahald dagsins i dag í
Vatnsleysustrandarhreppi, en aðr-
ir hafa gert fortíðinni skil.
Skólinn hefur yfir að ráða ný-
legu skólahúsi, hlýlegu og fallegu.
Bergsveinn Auðunsson.
í því eru 6 almennar kennslustof-
ur, auk lausrar stofu á hlaðinu.
Sund- og leikfimikennsla fer fram
í íþróttamiðstöðinni í Y-Njarðvík.
Skólahúsið var hannað fyrir
70—90 nemendur fyrir rúmum
áratug. I dag eru nemendur um
140 í 10 bekkjardeildum og er því
Ijóst að brýn þörf er á að stækka
húsið. Kennarar eru 11. Formaður
skólanefndar er Hreiðar Guð-
mundsson. Skólastjóri er Berg-
sveinn Auðunsson. Yfirkennari er
Jón Ingi Baldvinsson og formaður
foreldra og kennarafélagsins er
Hildur Runólfsdóttir.
Félagslíf
Félagslíf nemenda er að mestu í
hefðbundnu formi. Dansskemmt-
anir eru með vissu millibili allan
veturinn. Opin hús öðru hverju
svo og bekkjarkvöld. Eldri nem-
endur fara í 3ja daga skíðaferð í
febrúar eða mars ár hvert og 3ja
daga vorferð í maí. Yngri nemend-
ur fara í skemmri ferðir. Þá er
komin hefð á að 6. bekkur fari í
vikutíma að hausti í skólabúðir að
Reykjaskóla í Hrútafirði. Hápunkt-
ur félagslífsins er árshátíðin, sem
haldin er í lok síðustu viku fyrir
páskaleyfi. Þá er tjaldað því besta
sem til er af skemmtiatriðum.
Haldið í Glaðheima, sem er sam-
komuhús í Vogum og almenningi
gefinn kostur á að sjá fjölbreytta
dagskrá. Sem dæmi má nefna, að
eitt árið var lögð áhersla á land-
nám og þjóðsögur sem áttu að
hafa gerst í hreppnum. Má þar
nefna söguna af Marbendli. Einnig
var þáttur af Jóni sterka Daníels-
syni frá Stóru-Vogum, landnám
Steinunnar gömlu o.s.frv. o.s.frv.
Var gerður góður rómur að þessu
framtaki. Að lokinni dagskrá var
stiginn dans fram á nótt.
Mikilvœgustu
framtíðarverkefni skól-
ans
Svo sem að framan greinir er
mjög mikilvægt að skólinn fái
verulega aukið húsnæði sem allra
fyrst. Er þegar hafin undirbún-
ingsvinna að þeim framkvæmd-
um. Sem dæmi má nefna að engar
sérstofur eru í skólanum, nema ef
nefna má „kálfinn" á hlaðinu, sem
notaður er fyrir handavinnu-
kennslu.
Þá þarf að stórefla bókasafn
skólans, en skólasafn á að vera eitt
af meginhjálpartækjunum í
grunnskólastarfi, svo þörfin er
brýn. Einnig þarf að gefa nemend-
um kost á að læra á tölvur, en að-
staða til þess er ekki fyrir hendi í
skólanum í dag.
Skólanum tekst að mestu leyti
að kenna samkvæmt viðmiðunar-
stundaskrá Menntamálaráðuneyt-
isins, ef frá er talin heimilisfræði-
kennsla. Þetta stendur til bóta í
haust, en þá er áætlað að hefja
kennslu í þeirri grein. En til þess
þarf að gera breytjngar á húsnæði
og kaupa tæki og áhöld, en fjár-
munir til þess eru á fjárhagsáætl-
un þessa árs. Ágætlega menntað-
ur heimilisfræðikennari er í hópi
fastra kennara skólans.
SKÓLAR
Á
SUÐUR-
NESJUM
Lokaorð
Hvað er góður skóli? Þegar stórt
er spurt, verður oft lítið um svör.
Ekki veit ég til þess að nokkur hafi
algilt svar við þessari spurningu.
Þó held ég að menn geti verið
sammála um, að til þess að hægt
sé að tala um góðan skóla, þarf
a.m.k. þetta þrennt að vera fyrir
hendi:
1) Hæfir, vel menntaðir kennarar,
sem vel er búið að.
2) Hentugt, hlýlegt og vel búið
húsnæði og leikvellir, sem
verka örvandi á vellíðan og
skapandi hugsun nemenda og
kennara.
3) Ánægðir og námfúsir nemend-
ur, sem búa við félagslega já-
kvætt og örvandi umhverfi,
bæði í skóla og utan hans.
Að mínu mati hefur engum tek-
ist betur í fáum setningum að orða
kjarna heillavænlegrar mennta-
stefnu, en Stephani G. Stephans-
syni í þessari vísu sinni:
l>itt er menntcu) a/1 og önd
cigirdu frum ad bjóda,
hvassan skilning, haga hönd,
hjartad sunna oggóda.
Maður búinn þessum hæfileik-
um ætti að vera takmark hverrar
skólagöngu. Ef því takmarki væri
náð, þyrfti enginn að kvíða fram-
tíðinni.
Bergsveinn Auðunsson
50 FAXI