Faxi - 01.02.1990, Síða 22
Stefnir í
spennandi
úrslitakeppni
í körfuknatt-
leiknum
agaðan sóknarleik. KR hefur náð
bestum árangri í vetur. Þeir leggja
mjög mikla áherslu á varnarleik,
þannig að þeim tekst oft að stjórna
gangi leikjanna. Verða hin liðin því
að finna leiðir til að yfirstíga þann
hjalla. UMFN var tvímælalaust
besta lið landsins á síðasta áratug. í
vetur hefur liðið aðeins misst flugið,
en síðustu leikir þess lofa góðu um
gengi þess í úrslitakeppninni. ÍBK
vann Islandsmeistaratitilinn á síð-
asta vetri eftir að hafa verið með
betri liðum í mörg ár. Þegar liðinu
tekst vel upp, þá leikur það hraðan
og skemmtilegan leik. Það er örugg,
að þeir láta ekki bikarinn baráttu-
laust af hendi.
Mikilvœgustu
leikmennirnir
Þrátt fyrir það, að öll þessi lið hafi
fengið erlenda leikmenn í sínar rað-
ir, þá gefa aðrir leikmenn þeim ekk-
ert eftir. Ég ætla að leyfa mér að
nefna þá leikmenn liðanna sem eru
að mínu mati mikilvegustu leik-
mennirnir:
UMFN: Teitur Orlygsson og
Patrick Releford.
UMFG: Guðmundur Bragason.
KR: Páll Kolbeinsson og
Anatolií Kouvton.
ÍBK: Guðjón Skúlason, Magnús
Guðfinnsson og Sandy
Anderson.
*
Ahorfendur
fjölmennið
Það er óhætt að hvetja allt áhuga-
fólk um íþróttir að sækja leikina í úr-
slitakeppninni. Þar mun örugglega
sjást sá besti körfubolti sem boðið er
upp á hér á landi. Athugið einnig, að
því fleiri áhorfendur, því skemmti-
legri leikir.
Góða skemmtun.
HH.
Guðmundur Bragarson, miðherjinn knái úr Grindavík. Guðmundur hefur
verið með bestu leikmönnum úrvalsdeildarinnar í vetur.
Nú þegar aðeins örfáir leikir eru
eftir í úrvalsdeildinni, þá er Ijóst að
þrjú lið af Suðurnesjum verða í loka-
baráttunni. ÍBK og UMFG eru efst í
öðrum riðlinum og UMFN og KR í
hinum.
Úrslitakeppnin fer þannig fram,
að efsta liðið úr öðrum riðlinum
keppir við liðið sem varð númer tvö
í hinum riðlinum. Það er leikið
heima og að heiman. Efsta liðið í
riðli fær heimaleik fyrst. Það liðið
sem vinnur tvo leiki í þessari viður-
eign fer áfram í úrslitin. í úrslitunum
sjálfum þarf lið að vinna þrjá leiki til
þess að teljast sigurvegari. Það er
því Ijóst, að við munum sjá á næst-
unni fjöldann allan af fjörugum og
spennandi leikjum.
Úrslitakeppnin mun hefjast 24.
eða 25. mars n.k.
Liðin skoðuð
Það bendir allt til þess, að í undan-
úrslitum leiki ÍBK gegn UMFN og
því UMFG gegn KR. Af þessum lið-
um hefur UMFG verið einna slakast
í vetur, en liðið er feiknasterkt á
heimavelli og er mikið stemningslið.
Það er því ekki hægt að útiloka
Grindvíkinga, þegar spáð er um úr-
slit. Bakverðir liðsins eru þó veikur
hlekkur, þeir leika enn ekki nógu
Byggöasafn Suðurnesja
Opið á föstudögum kl. 14—17.
Aðrir tímar eftir samkomulagi.
Upplýsingar í símum 13155, 11555 og 11769.