Faxi - 01.02.1990, Qupperneq 24
i
elfMhúshorn id
Hellusoðín ýsa í umslagí
ÖRN
GARÐARSSON
Uppskrift fyrir 4.
Vinnutími 10. mín.
Eldun 5 mín.
7—800 g. ýsa skorin í þunnar
sneiðar.
1 stk. velhreinsaður blaðlaukur í
sneiðum.
1 stk. lítil gulrót í strimlum.
'/2 stk. fennekel í strimlum.
1 stk. engiferrót í strimlum.
1 bl. baunaspírur.
salt og pipar.
4 msk. tamarisósa.
1 msk. ólífuolía.
4 sn. sítróna.
'/2 dl. þurrt hvítvín (má sleppa).
eða mysu í staðinn.
Áhöld:
4 bl. álpappír uþb. A4 stærð.
pensill.
skurðarbretti.
hnífur mjög beittur.
salatskál.
Aðferð:
Álpappírinn er smurður með
ólifuolíunni, kryddað með salti
og pipar. Grænmetinu er öllu
blandað saman og skolað vel í
köldu vatni. Þerrað aðeins, skipt
niður í fjóra parta og sett jafnt á
hvert blað. Fiskinum raðað yfir,
kryddað með salti, pipar, tamari-
sósu og sólblómafræum, dassað
með vökvanum (ekki nauðsyn-
legt ef grænmetið er vel rakt. Ál-
pappírnum er síðan lokað vel,
þannig að ekkert geti lekið út úr
umslaginu.
Rafmagns panna eða hella er
hituð vel og umslagið lagt á,
þannig að fiskhliðin snúi upp.
Látið sjóða svona í ca 2—3 mín.
það fer eftir þykkt á grænmeti og
fiski, látið síðan standa í 5 mín.
Framreitt:
Til dæmis með grófu brauði,
soðnum kartöflum, en ætti ekki
að þurfa ef grænmetismagnið er
nógu mikið.
Athugasemd:
Ágætt er að útbúa þennan rétt
deginum áður en eldað er. Hægt
er að nota allflest grænmeti í
þennan rétt t.d. sveppi, sellery,
Iauk o.fl., svo og hrísgrjón.
^°eignast
Hnnnnhrpnnnn nkknr f>r \rinsfF'lt
Happaþrennan okkar er vinsœlt
og skemmtilegt happdrœtti.
Miðinn kostar ekki mikið, en
getur gefið mikið í aðra hönd.
Sölustaöir í Keflavík:
Aðalstöðin
Básinn
Brautarnesti
Verslunin Hornið
Nonni og Bubbi
Ný-ung
M»LiJOn
HAPPDRÆni HASKOLA ISLANDS. UMBOÐSMAÐUR: HELGI HOLM
■
56 FAXI