Faxi - 01.02.1990, Qupperneq 25
Höfnin
Keflavík-Njarðvík
Nú hefur veriö ákveðið, að hið
nýja fyrirtæki er reka mun hafn-
irnar í Keflavík og Njarðvík muni
bera nafnið Höfnin Kefla-
vík-Njarðvík. Nú þegar hefur
verkefnum fjölgað hjá fyrirtæk-
inu, því hinn nýi togari Grindvík-
inga, Hrafn Sveinbjarnarson GK
255 mun landa afla sínum þar.
Vel heppnuð vöruþróun
Á vegum Iðntæknistofnunar
íslands er nýlokið umfangsmiklu
vöruþróunarátaki sem í tóku þátt
24 iðnfyrirtæki og er sagt frá ár-
angri í þessu átaki í ritinu Púls-
inn, 1. tbl. 4. árg. Það geta víst
flestir verið ritstjóra Faxa sam-
mála um það, að fátt er fyrir-
tækjum nauðsynlegra, en að
vera stöðugt að þróa þá vöru
sem framleidd er. Á þetta í raun
jafnt við um hvaðeina sem
menn eru að fást við í atvinnulíf-
inu. Vörur, þjónusta, kennsla,
sala — svo eitthvað sé nefnt —
árangur skilar sér ekki til lengdar
nema framþróun eigi sér stað.
Fyrrnefnt átak hefur staðið yfir
í tvö ár og hefur miklu fjármagni
verið varið til þessa verkefnis,
eða um 120 milljónum króna.
Þeir sem staðið hafa að þessu
verki, auk fyrirtækjanna, eru Iðn-
tæknistofnun íslands, Félag ísl.
iðnrekenda, Landsamband iðn-
aðarmanna og Landsamband
iðnverkafólks.
Meðal þeirra fyrirtækja sem
þátt tóku í vöruþróunarátakinu
var Rammi hf. í Njarðvík. í Púls-
inum er birt viðtal við Einar Guð-
berg hjá Ramma og fer það hér
á eftir.
„Hver hefur árangurinn orðið
af þátttöku í Vöruþróunarátak-
inu?
— I gegnum öll þau ár sem
við höfum starfað að framleiðslu
á gluggum og hurðum hefur allt-
af verið leitast við að endurbæta
vöruna. Því miður hefur þó oft
skort bæði tíma og fjármuni til
vöruþróunar eins og vilji hefur
staðið til. Þetta var aðal hvatinn
að þátttöku í Vöruþróunarátakinu
fyrir tveimur árum síðan. Við
vissum þá hvert stefndi í fram-
leiðslunni og vildum halda for-
ystu okkar. Samstarfið viö lön-
tæknistofnun hefur verið með
miklum ágætum og skilað okkur
því sem við vildum. Núna erum
við komnir með vöru sem okkur
hefur alltaf langað til að fram-
leiða.
Hvaða vara var það?
— Á þessum tveimur árum
hefur þróunin tekið nokkrar nýjar
stefnur. Ný gerð glugga- og
hurðajárna, s.k. kombyjárn hent-
uðu framleiðslu okkar vel og tók-
um við því ákvörðun um að
framleiða glugga með þeim.
Kombyjárnin valda því að hægt
er að breyta opnunarmöguleik-
um glugganna með lítilli fyrir-
höfn og litlum tilkostnaði, þannig
að hægt er að breyta topp-
hengdum glugga í hliðarhengd-
an glugga eða veltiglugga. Eins
hefur orðið þróun á framleiðslu á
prófílum. Við höfum náð því
markmiði að fá framleiðslu okkar
viðurkennda eins og með gæða-
stimpli IGH (íslensk glugga- og
hurðaframleiðsla) og NTR (viður-
kennd gagnvörn).
Hvaða lærdóm hafið þið
dregið af verkefninu?
— Framleiðsluferlið er nú ann-
að en áður var, viðurinn er þurrk-
aður, gagnvarinn, yfirborðsmeð-
höndlaður og glugginn er jafnvel
glerjaður og járnaður áður en
hann fer frá okkur. Við erum nú
vel undirbúin fyrir áframhaldandi
vöruþróun. Markmið okkar verð-
ur áfram að bæta gæði vörunnar
verulega og halda sama verði og
verið hefur.
r r
JUnlm
Gisli Grétar Björnsson verkstjóri og Einar Guðberg, framkvæmdastjóri
Ramma hf.
Jón Kr. Gíslason
útnefndur íþrótta-
maður Suðurnesja 1989
íþróttabandalögin á Suður-
nesjum, ÍBK og ÍS, útnefndu á
dögunum íþróttamann ársins
fyrir 1989. Kosningu innan
stjórna bandalaganna lyktaði
þannig, að í þriðja sæti varð Sig-
urður H. Bergmann júdómaður, í
öðru sæti varð Karen Sævars-
dóttir golfleikari, en íþróttamað-
ur Suðurnesja 1989 var kjörinn
Jón Kr. Gíslason körfuknattleiks-
maður. Það var Ragnar Örn Pét-
ursson, formaður ÍBK, sem til-
kynnti um þessi úrslit í hófi í
Glaumbergi. Kvað hann Jón vel
að þessum titli kominn. Jón
þjálfaði og lék með meistara-
flokki ÍBK og undir hans stjórn
varð liðið íslandsmeistari í fyrsta
skipti. Einnig þjálfaði hann
meistaraflokk kvenna sem sigr-
aði bæði í deild og bikar 1989.
Heimsmet hjá Geir
Á alþjóðlegu sundmóti fatl-
aðra sem fram fór í Malmö í Sví-
þjóð í byrjun febrúar setti Geir
Sverrisson tvö heimsmet í sama
sundinu. Geir keppti í nokkrum
greinum og náði frábærum ár-
angri. Hann varð annar í 100
metra skriðsundi og fjórði í 50
metra skriðsundi. En það var í
100 metra bringusundi þar sem
Geir skaraði fram úr sínum
keppinautum. Keppt var í 25
metra laug. Geir fékk í millitíma
á 50 metrum 35,13 sek. og var
það heimsmet. I mark kom hann
síðan vel á undan öðrum kepp-
endum á tímanum 1.14,38 mín.
Það er Þórunn Magnúsdóttir
sem er þjálfari Geirs og setja
þau nú stefnuna á heimsmeist-
aramótið sem verður í júní í
sumar. Til hamingju, Geir.
Einnig má reikna með því, að
þegar Ólafur Jónsson GK 404
kemur úr lengingu, þá muni
hann einnig landa í Kefla-
vík-Njarðvík, því þar er nægilegt
dýpi fyrir hin stærri skip.
Björg Færseth heiðruð
við útskrift
Ung stúlka frá Keflavík, Björg
Færseth, hefur undanfarin ár
numið viðskiptafræði við Háskól-
ann í Tulsa í Bandaríkjunum.
Björg lauk prófi með láði á síð-
asta ári og var henni þá veitt
viðurkenning frá skólanum fyrir
sinn góða árangur. Háskólinn í
Tulsa er einkaskóli sem er vel
þekktur um gjörvöll Bandaríkin,
einkum fyrir gott námsefni i
hugvísindum á fyrstu stigum há-
skólanáms. Einnig þykir skólinn
framsækinn, hvað snertir nám í
tæknigreinum. Faxi vill óska
Björgu til hamingju með þennan
góða árangur, en hún er einmitt
um þessar mundir að leita sér
að starfi hérlendis.
FAXI 57