Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.1990, Blaðsíða 23

Faxi - 01.05.1990, Blaðsíða 23
Skólaslit á Suðnraesium GERÐASKÓLI 9. bekkur grunnskóians í Garði árið 1990 með skólastjóra sínum Eiríki Hermannssyni. Myndin er tekin við dyr kirkjunnar á Utskálum. Eins og fram kom í ræðu skólastjóra, þá er þetta fyrsti hópurinn sem Iýkur grunnskólanámi 9. bekkjar frá skólanum. Ljósmynd HH. Nemendur 9. bekkjaskólanna á Suðumesjum stóðu í vetur fyrir sameig- inlegum dansleik í Festi í Grindavík. Nokkur hagnaður varð af skemmt- uninni og var samþykkt að hann rynni til að styrkja starfsemi Vímu- lausrar æsku. Á myndinni sést þegar fulltrúi samtakanna tekur við ávis- un úr hendi fulltrúa nemenda. Ég vil byrja á að bjóða ykkur öll hjartanlega veikomin til skólaslita 1990. Skólaslit eru hátíðleg stund í mínum huga. Þau eru uppgjör á vetrarstarfi. Þá staldra menn við, ná áttum og leggja drög að næsta áfanga. Flestir koma aftur til starfa að hausti endurnærðir eftir gott sumarfrí, en aðrir leita á önn- ur mið. Þeirra bíða ný störf að hausti í öðrum skólum eða annars staðar úti í þjóðfélaginu. Þeir eign- ast hugsanlega nýja vini, ný áhugamál og takast á við nýjar skyldur. En víkjum fyrst að yfir- standandi skólaári. Gerðaskóli var stofnaður árið 1872 eins og flestum ykkar er ef- laust kunnugt. Þessi skólaslit eru því eitthundruðustu og átjándu í röðinni. Hann er því næstelsti barnaskóli á landinu. Á þessu skólaári voru 215 nemendur í skólanum í 13 bekkjardeildum. Kennarar voru 15, þar af einn stundakennari og 3 leiðbeinend- ur. Skóladagar voru alls 163. Hlutverk skólans er að breytast í þjóðfélagi okkar. Skólinn hefur alltaf haft fræðsluhlutverki að gegna og hann hefur uppeldis- hlutverk. Uppeldishlutverk er að verða æ stærri þáttur í starfi skól- ans og nú er ekki langt í að við bætist gæsluhlutverk. Skóladagur mun lengjast upp í allt að 35 stundum á viku fyrir öll börn á næstu árum. Með aukinni atvinnuþátttöku kvenna hefur þetta orðið eitt af forgangsverk- efnum í skólakerfinu hjá öllum stjórnmálaöflun á Alþingi. Leng- ing skóladags og samfelldur skóladagur. Þetta kallar á margar breytingar, breytingu á vinnu- samningum kennara, breytingar á skólahúsnæði, skólamötuneyti og fjölbreytta aðstöðu fyrir nemend- ur. Það var ekki laust við að undr- unar gætti hjá nágrönnum okkar í Sandgerði og Keflavík þegar það spurðist að við í Gerðaskóla stefndum að því að taka upp kennslu í 9. bekk á því skólaári sem nú er að ljúka, ef bætt yrði úr brýnasta húsnæðisvandanum. Sumum fannst þetta í of mikið ráðist og létu okkur heyra það, en aðrir óskuðu okkur góðs gengis. Ég ætla ekki að fjölyrða um ástæðurnar sem lágu að baki því að við vildum fá 9. bekk, en ég kemst þó varla hjá því að nefna fá- einar. Sú veigamesta er einfald- lega sú að nemendur eiga rétt á því að fá að Ijúka grunnskólanum á skólasvæði sínu. Önnur ástæða er kennslufræðilegs eðlis nefni- lega það að skólinn verður að ljúka því verki sem hann hóf til þess að hægt sé að leggja raun- verulegt mat á skólastarfið. í þriðja lagi þótti mörgum sem árangur barna úr Gerðahreppi á lokaprófi grunnskóla væri ekki í samræmi við þaðsem eðlilegt gat talist að mati kennara skólans. Fleiri ástæður mætti tína til hér en ég læt þetta duga. Viðbótarhús- næði fékkst í sundlaugarhúsinu. Það hefur reynst okkur mjög vel og gengur undir nafninu Selið. Dagurinn í dag er því stór dagur í sögu Gerðaskóla vegna þess að nú útskrifum við nemendur í fyrsta sinn með grunnskólapróf. Sumir hafa látið þau orð falla að nú sé unnt að dæma um það hvort ákvörðunin um 9. bekk var rétt eða ekki. Það væri mikil einföld- un að ætla sér að dæma heilan skóla, góðan eða vondan eftir starf eins vetrar eða eftir árangri eins bekkjar. Það er of rýr grund- völlur fyrir mati. Meira að segja samræmd próf eða ætti ég kannski að kalla þau alræmd próf, eru enginn mæli- kvarði á gæði skólastarfs og ber að varast að draga of miklar álykt- anir út frá þeim einum. Það má því ekki draga of djarflegar álykt- anir af prófgengi þessa bekkjar nema í þeim tilgangi að bera árangur hans saman við árangur þessara sömu barna sl. vor, þegar þau luku 8. bekk. Það verður að segjast að árangur nemendanna er í góðu samræmi við árangur þeirra í 8. bekk. I öðru lagi hefur það komið í ljós að árangur beklqarins er mjög í samræmi við meðaltals árangur grunnskólanemend af landinu í heild. í þriðja lagi er árangur þessara nemenda á grunnskólaprófi mun betri heldur en árangur nemenda úr Gerðahreppi á grunnskólaprófi undanfarin fjögur ár, en það eru þau ár sem ég hef tölur yfir. Góðir nemendur og gestir. Ég vil beina orðum mínum fyrst til þess hóps sem nú yfirgefur skól- ann okkar. Ég óska ykkur velfarn- aðar á komandi árum. Ég vona að það veganesti sem þið fáið héðan komi ykkur sem best að gagni. Það hefur langoftast verið ánægjulegt að fylgjast með ykkur og vinna með ykkur. Við höfum gengið saman gegnum súrt og sætt í nokkurn tíma og vonandi eigið þið eftir að minnast skólans ykkar með hlýhug þegar aldurinn færist yfir. Það hVílir töluverð ábyrgð á ykkur því að þið eruð brautryðjendur. Farið í friði og guð veri með ykkur. Að lokum vil ég þakka öllum fyrir komuna og segi skóla slitið. FAXI 151

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.