Faxi

Volume

Faxi - 01.05.1990, Page 24

Faxi - 01.05.1990, Page 24
GRUNNSKÓLI NJARÐVÍKUR Grunnskóla Njarðvíkur var slit- ið í 48. sinn í Ytri-Njarðvíkur- kirkju 31.maí sl. í vetur voru 486 nemendur í skólanum. Óvenju fáir nemendur útskrifuðust nú eða aðeins 33 nemendur. Árangur nemenda var góður á Iiðnu skólaári. Einn nemandi í 9. bekk sem út- skrifaðist á þessu vori skar sig úr með frábæran árangur. Hann heit- ir Jón Valgeirsson í 9.G. Jón var með 10 í einkunn í öllum greinum nema tveim, en í þeim var hann með 9. Bókabúð Keflavíkur veitti verð- laun fyrir hæstu einkunn á sam- ræmdu prófi í íslensku. Danska sendiráðið veitti verðlaun fyrir hæstu einkunn í dönsku í 9. bekk og Lionsklúbbur Njarðvíkur veitti verðlaun fyrir hæstu einkunn í stærðfræði á grunnskólaprófi. Jón Valgeirsson fékk öll verðlaunin! Þá veitti Bókabúð Keflavíkur verðlaun fyrir bestan árangur í ís- lensku í 6. bekk. Verðlaunin hlaut Sólveig María Magnúsdóttir í 6.G. Foreldra- og kennarafélag skól- ans veitti þrjár viðurkenningar fyrir félagsstörf. Viðurkenning- arnar hlutu: Jón Valgeirsson 9.G, Lilja Valþórsdóttir 9.G og Magnús Ragnarsson 9.E. Þá veitti Kvenfélag Njarðvíkur viðurkenningar fyrir góðan árangur í mynd- og handmennt. Þær komu í hlut Tómasar Guð- mundssonar 8.K og Ingimundar Ásgeirssonar 8.K. Bæjarstjórn Njarðvíkur gaf skólanum töivu ásamt öllum bún- aði til minningar um Bjarna F. Halldórsson fyrrv. skólastjóra. Hann lést 6. des. 1989. Bjarni F. Halldórsson var skólastjóri við Grunnskóla Njarðvíkur 1973— 1983. Stór hópur nemenda er útskrif- Hér sjást þau Gylfi Guðmundsson, skólastjóri, og Sigríður Ingibjörns- dóttir, yfirkennari, með þeim nemendum í Njarðvík er útskrifuðst frá skóianum að þessu sinni. Að venju fóru skólaslit Grunnskóla Njarðvíkur fram í Njarðvíkurkirkju. Skapar það mjög hátíðlegan ramma um þessa merkisathöfn. Hér er skólastjórinn, Gylfi Guðmundsson, að flytja skólaslitaræðu. Ásamt nemend- um, kennurum ogforeldrum mættu margir gestir og má fremst á myndinni þekkja þáStefán Jónsson, bæjar- ritara, og Odd Einarsson, hæjarstjóra. 0 SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. aðist vorið 1985 var viðstaddur skólaslit. Fulltrúi þeirra, Haraldur Helgason, flutti ávarp og minntist sérstaklega Bjama F. Halldórs- sonar. Hópurinn færði skólanum myndarlega peningaupphæð til tækjakaupa til minningr um Bjarna heitinn Halldórsson. Jón Valgeirsson, formaður nem- endaráðs, flutti ávarp og kvaddi skóiann fyrir hönd 9. bekkjar. Loks flutti skólastjóri, Gylfi Guð- mundsson, skólaslitaræðu. Hann kom víða við, sagði frá starfsleikn- inámi sem flestir kennarar taka þátt í. Þá ræddi Gyifi um húsnæð- isvandamál skólans. Taldi hann nauðsynlegt að nýkjörin bæjar- stjórn héldi áfram að byggja við skólann. Einkum lagði hann áherslu á að byggður yrði sam- komusalur hið fyrsta. Þá lýsti Gylfi áhyggjum sínum vegna of iítils fjármagns sem hann taldi að bæjarfél. veitti til rekstrar skólans. Taldi hann nauðsynlegt að bæjarstjórn bætti hér um á næstunni svo Grunnskóli Njarð-' víkur gæti staðiðsig í samanburði við aðra skóla á svæðinu. Gylfi tók fram að þrátt fyrir þessi orð hefði skólinn og starfs- fólk hans ætíð mætt hlýju og skilningi frá bæjarstjórn á hverj- um tíma. Loks þakkaði Gylfi nemendum og starfsfólki öllu gott samstarf á liðnu skólaári ogsleit 48. starfsári skólans.

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.