Faxi - 01.05.1990, Qupperneq 32
Mökum ráðstefnugesta var
dagstund boðið í útsýnis- og
kynnisferð. Jón Borgarsson
var leiðsögumaður hópsins
sem hér sést I heimsókn hjá
Hitaveitu Suðurnesja í Svart-
sengi. Þar tók Ingólfur Aðal-
steinsson, forstjóri HS, á
móti hópnum og fræddi
hann um starfsemi fyrirtæk-
isins.
þau áhrif sem sameiginlegt evr-
ópskt markaðssvæði gæti haft á
byggingaiðnað á íslandi. Athugun
á löggjöf á íslandi og innan EBE
hefur leitt í ljós, að breytingar eru
óhjákvæmilegar í flestum grein-
um atvinnulífsins. Má t.d. nefna
ýmsar reglur um eiginleika vöru
svo og ýmis sérstök verndar-
ákvæði gegn samkeppni. Megin-
reglan innan EBE er sú, að ef vara
fullnægir skilyrðum í framleiðslu-
landi, þá skal það sama gilda í öðr-
um ríkjum bandalagsins. Björn
taldi, að ef halda ætti uppi þeim
lífskjörum á íslandi sem talin eru
nauðsynleg, þá væri ekki hægt að
standa utan við þær breytingar
sem eiga sér stað í Evrópu. Þá
taldi hann að íslenskir byggingar-
menn hefðu meira að vinna en
tapa við þessar væntanlegu breyt-
ingar.
Þórleifur Jónsson lýsti því starfi
sem fram færi innan landssam-
bandsins varðandi aðlögun ís-
lenskra laga og reglna gagnvart
EBE. Ljóst væri, að það þyrfti að
semja um samkeppnisaðstöðu þá
sem íslensk fyrirtæki ættu að
njóta í framtíðinni. Væru þar
mörg mál sem snerta iðnaðar-
menn, s.s. stofnun fyrirtækja o.fl.
Reiknað væri með, að stofnaðir
verði vinnuhópar til að fjalla um
þau mál er mestu varða fyrir
byggingariðnaðinn.
Að erindunum loknum fóru
fram fjörugar og gagnlegar um-
ræður. í lok aðalfundarins voru
samþykktar margar ályktanir um
mál sem efst eru á baugi hjá bygg-
ingamönnum.
Fundarmenn fóru í boði Aðal-
verktaka í skoðunarferð á Kefla-
víkurflugvöll til að skoða vinnu-
svæði þeirra. Einnig buðu Aðal-
verktakar fundarmönnum til há-
degisverðar í Glaumbergi. Þá
bauð Dverghamar sf. fundar-
mönnum til móttöku. Að aðal-
fundi loknum var haldið lokahóf í
Glaumbergi og hlýddu menn m.a.
á dagskrána ,,Á vængjum söngs-
ins” og var gerður góður rómur
að. Fundurinn þótti takast vel í
M
JL V JL. argcir Jónsson er flestum
lesendum Faxa að góðu kunnur.
Hann var einn af stofnendum
Málfundafélagsins Faxa þann 10.
október 1939 og hefur verið ötull í
starfi þess œ síðan. Margeir hefur
nú tilkynnt að hann muni draga
sig í hlé í Faxa. Víst er um það, að
hans verður sárt saknað á fundum,
en eftir mun lifa minningin um
Ufsglaðan og gjöfulan félaga. Faxi
hcfur þá ánœgju að birta hér mynd
sem tekin var af Margeiri og Astu
Guðmundsdóttur konu hans.
Myndin var tekið á árshátíð Rotary
þann 18. nóvember sl. Þann dag
áttu þessi ágœtu hjón 50 ára
brúðkaupsafmœli. Við sendum
þeim okkar bestu árnaðaróskir.
HH
160 FAXI