Faxi - 01.05.1990, Síða 33
Sími 14930 — Hafnargötu 79
alla staöi. Voru menn mjög
ánægðir með allar aðstæður hér í
Keflavík. Allmargir gistu hér á
hótelunum á meðan á fundinum
stóð.
Það var Meistarafélag bygging-
armanna á Suðurnesjum sem
annaðist undirbúning fyrir þenn-
an aðalfund. Formaður félagsins,
Ólafur Erlingsson, varð fyrir svör-
um, þegar Faxi spurðist fyrir um,
hvað hefði ráðið því, að aðalfund-
urinn var haldinn hér.
Þessi fundur er það stór, að það
hefur ekki verið hægt að halda
hann annars staðar en í Reykjavík
og á Akureyri. Að vísu var hann
haldinn á Laugarvatni eitt skipti,
því þá var hægt að nota skólana til
að gista í og einnig héldum við
fund í Grindavík fyrir nokkrum
árum, því þá var verið að taka nýj-
ar verbúðir í notkun. Með tilkomu
hótelanna hérnaog þeirra fundar-
sala sem hér eru, þá hefur aðstaða
öll gerbreyst til að taka á móti
svona miklum fjölda. Með mökum
og starfsliði, þá erum við að tala
um 150 manns. Mér finnst því full
ástæða til að benda á þá mögu-
leika sem staðurinn býður upp á
varðandi funda- og ráðstefnuhald.
Við spurðum Ólaf, hvað hann
teldi mikilsverðasta árang-
urinn af þessum aðalfundi sam-
takanna. Hann vildi fyrst og
fremst minnast á það starf sem
unnið væri á vegum samtakanna
við að bæta gæði vinnunnar.
Gæðaeftirlit og jafnframt ábyrgð
iðnaðarmanna á verkum sínum,
væri stórmál sem mikil áhersla
væri lögð á, sagði Ólafur að lok-
um.
HH.
Þátttakendum á ráðstefn-
unni var boðið að skoða
framkvæmdir á vegum ís-
lenskra Aðalverktaka á
Keflavíkurflugvelli.
Frá fundi í KK-salnum. Ólaf-
ur Erlingsson, formaður
Meistarafélags Bygginga-
manna á Suðurnesjum í
ræðustól.
FAXI 161