Faxi

Volume

Faxi - 01.09.1990, Page 7

Faxi - 01.09.1990, Page 7
í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna í vor Nýtt fólk við stjórnvölinn Aö venju uröu nokkrar breytingar í rööum bæjar- og sveitarstjóra eftir kosningarnar í vor. Pólitíkin þykir oft haröur húsbóndi og starf sveitarstjóra getur því veriö æöi ótryggt. Ætla má þó, aö menn gangi út frá því sem vísu, þegar menn ráöa sig til starfsins, þannig aö sjaldnast kem- ur til leiöinda í því sambandi. Öll sveitarfélögin hafa nú ráö- ið sér stjórnanda með þeirri undantekningu þó, að í Hafna- hreppi er ekki starfandi sveitarstjóri nú sem stendur. Hér á eftir veröa þeir lítillega kynntir sem nú sitja í áöur- nefndum stöðum. Um leið þykir okkur á Faxa tilhlýðiiegt að þakka þeim er á brott hverfa ánægjulegt samstarf á undan- förnum árum. GARÐUR Hinn nýi sveitarstjóri í Garðinum er Siguröur Jóns- son frá Vestmannaeyjum og er hann 45 ára aö aldri. Hann er frá Vestmannaeyjum, en auk kennslu hefur hann m.a. stundað verslunarstörf og verið skrifstofustjóri við Ráð- hús Vestmannaeyjabæjar. Kona Sigurðar er Ásta Arn- mundsdóttir og mun hún í vetur kenna við Gerðaskóla. Þau eiga þrjú börn. MIÐNESHREPPUR Stefán Jón Bjarnason mun áfram gegna starfi sem sveit- arstjóri í Sandgerði, en því hefur hann gegnt í fjögur ár með miklum ágætum. Stef- án Jón er 41 árs að aldri. Kona hans er Þórdis Arngrímsdótt- ir og hefur hún m.a. verið við störf hjá DS. Þau eiga þrjú börn. KEFLAVÍK I Keflavík er nú bæjarstjóri Keflvíkingurinn Ellert Eiríks- son fráfarandi sveitarstjóri í Garðinum. Ellert hefur áður starfað fyrir Keflavíkurbæ, því hann var um nokkuð langt skeið verkstjóri bæjar- ins. Ellert er 52 ára að aldri. Kona hans er Birna Jóhann- esdóttir og eiga þau þrjú uppkomin börn. NJARÐVIK í Njarðvík er bæjarstjóri Kristján Pálsson og er hann 45 ára gamall. Hann hefur áð- ur gegnt starfi sveitarstjóra, bæði á Ólafsvík og á Suður- eyri og er ekki vafi á að sú reynsla mun nýtast honum hér. Kona Kristjáns heitir Halla Þórhallsdóttir og eiga þau tvö börn. VOGAR Á Vatnsleysuströnd hefur ráðist til starfa sem sveitar- stjóri Jóhanna Reynisdóttir. Jóhanna er 32 ára gömul og stýrði hún í nokkur undanfar- in ár útibúi Verslunarbankans i Keflavík. Maður hennar er Ólafur Eyþór Ólason múrara- meistari. GRINDAVÍK Eins og í Sandgerði varð engin breyting í Grindavík á stöðu bæjarstjóra. Jón Gunn- ar Stefánsson gegnir áfram því starfi og fær hann því áfram tækifæri til að vinna að þeirri miklu uppbyggingu sem átt hefur sér stað þar í bæ. Kona Jóns Gunnars er Gunnhildur Guðmundsdóttir og starfar hún við verslunina Paloma. Þau hjónin eiga þrjú uppkomin börn. FAXI 171

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.