Útvarpstíðindi - 08.03.1943, Qupperneq 7

Útvarpstíðindi - 08.03.1943, Qupperneq 7
FRIÐRIK HJARTAR: Tungan á tfafíugustu ðld Framhald. ----Úr blaðagrein: ... „og þegar ég las greinargerð borgarstjórans í Reykjavík um ráðstafanir viðvíkjandi loftárásum í Morgunblaðinu, hef ég sannfærzt um, að svo er“ ... Eins og allir munu sjá, er orðaröðin röng. Mætti ætla, að greinarhöfundur sé að ræða um ráðstafanir viðvíkjandi loft- árásum í Morgunblaðinu, en á auðvit- að við, að hann hafi lesið í Morgun- blaðinu greinargerð borgarstjórans í Reykjavík um ráðstafanir viðvíkjandi * loftárásum. — Enn úr blaðagrein: „Minnist þess, sjálfstæðismenn, að kommúnistinn í öðru sæti Hristings- listans verður maðurinn, sem situr bæjarstjórnarfundi, ef C-listinn fær einn mann kosinn vegna sjómennsku Haraldar Guðmundssonar!“ — Hér er eftirsetningin á röngum stað. Skilji ég greinarhöfund rétt, mætti máls- greinin vera á þessa leið: Minnist þess, sjálfstæðismenn, að vegna sjó- mennsku Haralds Guðmundssonar, verður kommúnistinn 1 öðru sæti Hristingslistans maðurinn, sem situr bæjarstjórnarfundi, ef C-listin fær einn mann kosinn. — Úr þýddri bók: „Hann fékk þessa stöðu vegna þess, að hann er mesti snillingur í að mat- reiða jurtafæðu, sem nú er uppi í Evrópu“. Eftirsetningin kemur of seint. Minnir þessi málsgrein á auglýsing- una frægu: „Kýr fæst hjá undirrit- aðri, sem er snemmbær". — Annars vitna margar auglýsingar mjög um málhnignun. Skulu hér nefndar fáeinar: „Kvikmyndasýning sú, sem fara átti fram í háskólanum í kvöld er frestað11. — Á auðvitað að vera: Kvikmyndasýningu þeirri, sem fara átti fram o. s. frv.. Augl. „Buddur fyrir konur, úr sel- skinni með rennilás eru til sölu“... Augl. Háskólafyrirlestur: „Prófess- or dr. phil. Alexander Jóhannesson flytur fyrirlestur með skuggamynd- um um: „Hvernig lærði frummaður- inn að tala?“ kl. 2 á sunnudag í há- tíðasal háskólans. Öllum heimill að- 4gangur“. — Þegar ég las þessa aug- lýsingu, datt mér þetta vers 1 hug: „Greinir Jesús um græna tréð, getur hins visna einnig með“. — Vandi lærð ustu menn vorir ekki orðalag sitt betur en hér er gert, þá er ekki hægt að heimta mikið af þeim, sem lítt eru lærðir eða ekki. — Enn skulu talin nokkur dæmi hnignandi málfars: — Úr þýddri bók: „Mér tekur sárt til.... Willa litla“. — Á auðvitað að vera: Mig tekur sárt til o. s. frv. — Skipstjóri einn, er ég þekki, vestfirzkrar ættar, vék sér að mér í fyrrasumar og kvaðst undrast, hve illt væri málfar sumra ungra Reykvíkinga, er hann hefði kynnzt. ,,Eg spurði“, sagði hann, „einu sinni unglingspilt úr Reykjavík eftir einum hásetanum, hvar hann mundi vera. Pilturinn svaraði: „Honum er oní lest“.“ Og skipstjórinn bætti við: „Þegar við segjum: „Hann er niðri, í lest“, þá segir þessi ungi Reykvíking- ÚTVARPSTÍÐINDI 195

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.