Útvarpstíðindi - 08.03.1943, Qupperneq 18

Útvarpstíðindi - 08.03.1943, Qupperneq 18
Orðsendíng frá afgreíðslunní Vegna vandkvæða á því að fá mann til innheimtu, eru Reykvikingar vin- samlega beðnir að líta inn í afgreiðsl- una við Hverfisgotu 4, ef þeir eiga leið um, og verði reikningur sendur, að greiða, ef tök eru á, þegar hann er sýndur í fyrsta sinn. Eins og áður er auglýst, er ekki hægt að senda þeim blaðið, er búa í nágrenni bæjarins og úthverfum. nema þeir komi sjálfir og greiði það, Einstakir kaupendur úti á landi! Þeim, sem ekki hafa greitt blaðið. verður nú send póstkrafa og heitum við á alla að bregðast skjótt við og greiða það. Útvarpstíðindi þurfa ekki svo mjög að kvarta yfir vanskilum kaupenda sinna, en það hefur mjög brunnið við að greiðsla bærist seint. Verð blaðs- ins er hinsvegar miðað við fyrirfram- greiðslu og rekstursfé þess er áskrifta- gjöldin, og nú er engum lánað neitt, Jafnframt þessari áminningu viljum við færa þeim þakkir, er þegar hafa greitt. Áskrifendum fjölgar stöðugt, en varla kemur fyrir að nokkur segi blaðinu upp, en árlega heltast nokkrir tugir manna úr lestinni fyrir vanskil. Við treystum því í lengstu lög, að þessir menn greiði, þó seint sé. Þegar við svo loks hættum að senda þeim blaðið. er skuldin stundum orðin há. Þessir áskrifendur bregðast trausti og skjóta sér undan því að taka þátt í útgáfu- kostnaði blaðsins og er það ekki heið- arlegt, nú er allt svo dýrt að beinn kostnaður við útsendingu blaðsins til hvers einstaklings — þó ekkert ann- að sé talið — mun nú vera um tvær krónur. Upplag blaðsins er nú 5000 og verði þess stillt svo í hóf að fá dæmi munu vera í samanburði við dýrtíðina. Þetta er í trausti þess að áskrifendum fjölgi ört og að blaðið sé greitt, vel og fljótt. Þessu treystum við enn, enda höfum við ekki ástæðu til annars. sirjálbýlinu, aið láta það vita um það fyrirfram. Job. Kvöldvökurnar Job minnist á kvöldvökumar í vetur og segir, að flestum hafi þótt þær þurrar og leiðinlegar. Fleiri raddir hafa borizt í svipuðum tóni. Fólk hefur ekki hlakkað til þessa dagskrárliðs nú. eins og oft áður. En með síðustu kvöld- vöku brá við, þegar þeir Einar Öl, Sveinsson, Pálmi Hannesson óg Ragnar Jóhannesson lögðu saman og tóku þjóðkvæðin og þjóðleg fræði. Ljúka all- ir hlustendur upp einum munni um &■* kvöldvaka þessi hafi verið með á- gætum, bæði hvað snertir éfni og fram- setningu, Er það sérstaklega athyglis- vert, að vinnubrögðin voru vel sam- ræmd. Þessi kvöldvaka var einhver bezta vakningar- og ánægjustund, sem útvarpið hefur gefið hlusitendum sín- um í vetur. f sambandi við kvöldvöku þessa vill blaðið segja við háttvirt út- varpsráð: Samræmið vinnubrögðin, efni og starfskrafta, látið ekkert af handa- hófi í dagskrána. Kitstj. 206 TJTVARPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.