Útvarpstíðindi - 23.08.1948, Page 6
294
ÚTVARPSTÍÐINDI
upp þá hugmynd að prenta eða mála
leiðslurnar og tókzt það mætavel á
plast- og leirplötur. Mjóar línur úr
þykku silfurbleki leiddi strauminn,
og blek, sem innihélt sódapúlver var
notað í mótstöðu. Þessi aðferð var
síðan fullkomnuð, svo að hægt var
að mála leiðslur í útvarpstæki á
plastfleti, sem ekki voru stærri en
nafnspjald. Eru þessar máluðu
leiðslur .mjög öruggar og er minni
hætta á, að þær bili en vírleiðslur.
Einnig voru örsmáir rafgeymar af
nýrri gerð framleiddir.
Framleiðsla til almennra nota.
Síðan styrjöldinni lauk hefur ver-
ið unnið að því að framleiða þessi
tæki handa almenningi. Fyrsta tæk-
ið, sem á markaðinn kemur, þar
sem leiðslurnar eru málaðar, eru
heyrnartæki á stærð við sígarettu-
pakka. Framleiðendur þessara tækja
hafa dregið saman 175 magnara-
tæki, þar á meðal víra, skrúfur,
samskeyti og lampastæði — svo að
hægt er að koma öllu fyrir á fleti,
sem ekki er stærri en lítil kexkaka.
Þrjú fyrirtæki, sem nota sömu að-
ferð, munu á næstunni senda á
markaðinn útvarpstæki, sem verða
3x5 þumlungar og um einn þuml-
ungur á þykkt. Þessi útvarpstæki
hafa heyrnartól, sem ekki fer meira
fyrir en litlum heyrnartækjatólum,
er heyrnardaufir menn nota. Búizt
er við, að verð þessara tækja verði
frá 120—350 krónur.
Þá eru einnig margir framleið-
endur að framleiða örsmá móttöku-
senditæki, það er að segja tæki, sem
bæði taka á móti og senda. Og er
talið, að þau verði brátt framleidd
fyrir almenning.
Þegar þau koma á markaðinn í
Bandaríkjunum mun fjarskiptanefnd
ríkisins taka frá sérstakar bylgju-
lengdir fyrir borgarana, sem fá til
afnota þessar nýju útvarpsstöðvar,
til atvinnu- eða einkaþarfa.
Á þessum bylgjulengdum getur
t. d. lækninrinn talað við skrifstofu
sína, þaðan sem hann er staddur í
sjúkravitjunum, blaðamaðurinn, við
ritstjórn blaðs síns, eiginmaðurinn
heim til konu sinnar o. s. frv;
• Þar sem þessi senditæki nota ör-
smáar bylgjur, er sambandið milli
staða takmarkað að mestu við sjón-
deildarhringinn. Til dæmis getur
skíðamaður uppi á háu fjalli eða
farþegi í flugvél auðveldlega náð
allt að 160 kílómetra vegalengd, en
í borgum eða á jafnsléttu í fjalla-
landi, þar sem hæðir ber á milli,
draga stöðvarnar varla meira en
10 kílómetra.
Ör þróun í útvarpstælcni.
Allt útlit er á því, að hinir nýju,
örsmáu lampar og máluðu leiðsl-
urnar muni valda byltingu á sviði
útvarpstækjaframleiðslunnar og öðr-
um raföldutækjum. Einn maður á
hæglega að geta framleitt 500 tæki
með máluðum leiðslum á sama tíma
sem það tekur hann að tengja eitt
tæki, sem vírleiðslur eru notaðar í.
Og þegar í dag er hægt að kaupa
í Bandaríkjunum útvarpstæki fyrir
200 krónur, sem er í alla staði full-
komnara og betra en tæki, sem kost-
aði 1300 krónur árið 1927. Svo stór-
stíg er þróunin í þessum efnum.
Slíkt hefur tekist með betri og ódýr-
ari framleiðsluaðferðum. Og enn
sjá rafmagnsverkfræðingarnir hylla
undir ennþá meiri byltingu á þessu
sviði.