Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.12.1939, Qupperneq 5
STARFSMANNABLAÐ
REYKJAVIKUR
ÚTGEFANDI:
STARFSMANNAFÉLAG REYKJAVÍKURBÆJAR
[’II. árg. Desember 1939 5.—6. tbl.
Samstarf starfsmannafélaga í bœnum.
A þaö var drepið í síðasta tölublaði
Starfsmannablaðs Reykjavíkur, að ef til
vill væri það æskilegt, að Starfsmanna-
félag Reykjavíkur tæki þátt í samstarfi
annarra starfsmannafélaga í bænum.
Siíkt samstarf hefir að sönnu ekki verið
hafið á almennum grundvelii enn þá. En
starfsmenn. skyldra stofnana hafa
myndað með sér samtök, svo sem starfs-
menn bankanna, og sameining pósts og
síma hefir gert það eðlilegt, að starfs-
menn þessara stofnana fylgist að í hags-
munamálum sínum. En samstarf allra
starfsmannafélaga bæjarins á víðtækum
grundvelli til hagsbóta fyrir fastlaunaða
starfsmenn (funktionera) í bænum hefir
enn sem komið er ekki komist í fram-
kvæmd.
Á síðustu. tímum hefir þó margt ýtt
undir það, að slíkt samstarf bæri að
hefja og að það mætti takast að ná
góðum árangri með því. Stofnun Starfs-
mannaféiags ríkisstofnananna hefir í
þessu sambandi mikla þýðingu. Meðan
hinir fjölmörgu starfsmenn ríkisstofn-
ananna voru ófélagsbundnir vantaði
þýðingarmikinn hlekk tii þess aö hægt
væri að bindast samtökum til sameigin-
legra átaka. En nú, þegar Starfsmanna-
félag ríkisstofnananna er stofnað, eru
langsamlega fiestir starfsmenn í bænum
félagsbundnir og þá er tími til kominn
að athuga á hvern hátt samstarf félag-
anna geti orðið um þau mál, sem annað-
hvort geta orðið félögunum sjálfum til
efhngar eða félagsmönnum til hagsbóta.
Að slíkt samstarf sé æskilegt efast
víst enginn um aö athuguðu máli. Hin-
ir erfiðu tímar, sem nú eru skollnir á,
hafa opnað augu margra fyrir nauðsyn
sameiginlegra aðgerða. Ráðstafanir hins
opinbera í launamálum hafa og til þessa
verið til þess fallnar, að fastir starfs-
menn í bænum þjappi sér saman til þess
að mæta örðugleikunum sameinaðir.
Þegar allt verðlag rýkur upp úr öllu
valdi, og sjáanlegt er, að verðlagsráð-
stafanir gefa aðeins gálgafrest, verður
öllum það ljóst, að það er ofríki, að ætla
sér að slá hömlunum í gagnvart allri
verðlagsvísitöluhækkun ofan við mjög
lágt liámark. Ákvæði gengislaganna er
réttarskerðing fyrir verulegan hluta
starfsmanna, og það verður enda full-