Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.12.1939, Side 21
STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR
73
Verða allir Reykvíkingar góðir sund-
menn í náinni framtíð?
Reykjavík býður börnum
sínum einhver hin beztu
skilyrði til sundnáms, er
til þekkist í Evrópu. —
Bæjarráð hefir látið gera
teikningar og áætlun um
breytingar á Sundhöllinni
fyrir gufuböð, kerlaugar,
ljósböð og fleira, er von-
andi verður ráðist í að
framkvæma þegar betur
horfir í viðskiptamálum.
Sundhöllín er heilbrigðis-
stofnun, er starfsmenn
bæjarins ættu að hagnýta
sér betur en gert hafa. —
Ég álít eftir því sem nú er komið
skipun sundmála vorra, þá sé okkur Is-
lendingum, sérstaklega Reykvíkingum,
óhætt að taka okkur í munn eftirfar-
andi orð Bandaríkjamanna: „Sundið er
orðið íþrótt fjöldans, en ekki aðeins
fárra einstaklinga. Fólkinu er orðið það
ljóst, að sundíþróttin er ekki aðeins holl
og hressandi þjálfun fyrir hvern og
einn, þegar iðkuð er á réttan hátt, held-
ur er það einnig skemmtunin og ánægj-
an við að iðka sundið, sem dregur að
sér f jöldann allan af aðdáendum. Margir
skólar, bæði æðri og lægri, krefjast þess
af nemendum sínum, að þeir læri að
synda, og hinar nýju hópkennsluaðferð-
ir, fyrst og fremst fyrir börnin, eru með
hröðum skrefum að gera okkur að sund-
þjóð.“ Þar sem ég held að almenning-
ur viti ekki gjörla, hvernig til hagar
með sundmennt barna og unglinga hér
í bænum, þá er ef til vill ékki úr vegi
að ég minnist nokkrum orðum á þau
mál hér.
Það er óhætt að segja það, að for-
eldrar hér í bæ geta verið ánægðir með
hvað gert er fyrir börn þeirra í sund-
málunum. Frá 9 ára aldri fá börnin 6
vikna námskeið á hverju ári í sund-
íþróttinni, jafnvel 8 ára börn fá sund-
kennslu eftir því sem við verður komið,
bæði vor og haust. Kennsla þessi fer að
mestu leyti fram í sundlaug Austurbæj-
arbarnaskólans, en nokkur hluti barn-
anna fær kennslu í Sundlaugunum og
Sundhöllinni. Að lokum fá börnin öll,