Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.12.1939, Síða 11
Starfsmannablað reykjavíkur
63
Eftir jökulhlaupið á Skeiðarársandi
Vegurinn liggur fram hjá Skeiðflöt,
þar er kirkja. Yfir Steigarháls förum
við og þá blasir við Reynishverfið og
Dyrhólaey og er þar radióviti og mið-
unarstöð.
Austan undan Reynisf jalli í dalverpi
stendur Víkurkauptún, en Víkurbæirnir,
suður- og norður Vík, standa í miðju
dalverpinu austan Vílturár.
Ferðamanninum, sem kemur í fyrsta
sinn til Víkur, verður mjög starsýnt á
Reynisdranga, því þeir eru mjög ein-
kennilegir og fallegir. Stöldruðum við
skamma stund við í kauptúninu, ókum
síðan áfram fram með Víkurhömrum
fram hjá Fagradal upp með Kerlinga-
dalsá, sem er brúuð inn á aurunum.
Síðan liggur vegurinn um túnið í Kerl-
ingadal norður Höfðabrekkuheiðar yfir
Múlakvísl á brú móts við Selfjall. Þá
blasir Hafursey fram undan og
Hjörleifshöfði til hægri handar.
Við hröðum okkur sem mest við
megum yfir sandinn, því hann er
heldur leiðinlegur yfirferðar og nú
blasa við Skaptártunguheiðar. Á
takmörkum Mýrdalssands og
Skaftártungu rennur Hólmsá í
gljúfri, förum við yfir hana á brú
skammt frá Hrísnesi (Hrífunesi).
En sá munur að vera kominn af
Mýrdalssandi í skógarilminn í
Hrísnesheiðinni! Gegn um skógar-
kjarr ókum við alla leið að Flögu.
Þar var kaffi á borð borið og hús-
freyja hafði beðið eftir okkur í 3
klukkutíma. Svo fórum við sem
leið liggur austur Skaftártungur
fram hjá Hemru yfir Tungufljót,
austur í Stórahvamm og yfir Eld-
vatnið á brú. Þá erum við komin í
Skaftáreldahraun og er það mjög
úfið, ógreiðfært apalhraun, vegur-
Yfir Skeiðarárjökul