Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.12.1939, Qupperneq 20

Starfsmannablað Reykjavíkur  - 01.12.1939, Qupperneq 20
72 STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR Nafnbreyting í sögu safnsins gerð- ust þau tíðindi 1936, að bæjarstjórn fannst ástæða til að breyta nafni þess í Bæjarbókasafn Reykja- víkur. Ef til vill var nafnbreytingin ekki í fullu samræmi við tildrögin til stofn- unar Alþýðubókasafnsins, en vafalaust í anda reglugjörðar safnsins og í fullu samræmi við þær skyldur, sem bærinn hefur tekið sér á hendur gagnvart safn- inu. En vandi fylgir vegsemd hverri, og það sem einu sinni var aðeins Alþýðu- bókasafn er nú Bæjarbókasafn. Sá skilningur hefur og réttilega komið fram, að bæjarbókasafni beri að leysa stærra hlutverk af hendi en aðeins að seðja skemmtilestrarfýsn fjöldans. Greinilegast og ótvíræðast lýsir sá skilningur sér í mjög skilmerkilegri grein eftir ,,Bókamann“ í dagblaðinu Vísi 28. júlí s.l. ,,Bókamaður“ vill að safnið starfi í 7 deildum, af þeim eru þrjár deildir nýungar og uppástungan um þær sýnir ljóslega skilning höfundar á hinum nýju skyldum safnsins eftir nafnbreytinguna. Hann stingur upp á að stofnuð verði Verzlunardeild, ,,í henni séu bækur um verzlun, viðskipti, verzlunarsögu, hagfræði o. s. frv.“ og þá vafalaust fyrst og fremst varðándi verzlun bæjarins á einhvern hátt. Þá er Teknisk deild, ,,í þessari deild ætti að hafa bækur, er snertu hinar ýmsu iðn- greinar. t. d. rafmagnsfræði, vélfræði; einnig mætti setja sér rit um siglinga- fræði, sjómannafræði o. s. frv.“, og er höfundurinn sem fyrr á hárréttri leið, en stofnun Reykjavíkursafns, sem er þriðja nýungin, tekur þó af skarið um skilning höfundar á hlutverki Bæjar- bókasafns. Allar eru tillögurnar fim- lega studdar og á það bent, að sérsöfn cinstakra félaga, svo sem Verzlunar- mannafélags og Iðnaðarmannafélags gætu runnið inn í Bæjarbókasafnið, ef haglega væri að farið og safninu fengið viðunandi húsnæði. Aðeins vildi eg mega bæta því við tillöguna um Reykja- víkursafn, að Skjalasafni bæjarins væri fenginn staður í Bæjarbókasafninu, þjóðskjalasafnið tekur hvort sem er aldrei við því öllu, og eins og nú til hagar er skjalasafn bæjarins vanhirt og í stakasta ólestri. Sú umhyggja fyrir safninu og sá skilningur á framtíðarhlutverki þess, sem lýsir sér m. a. í grein ,,bókamanns“, en kemur einnig fram í vaxandi vin- sældum safnsins, bendir til þess, að það geti ekki dregizt mikið lengur, að safn- inu verði séð fyrir góðu húsnæði. Starfsmenn. Eg get ekki skilið við efni þessarar greinar, svo að ekki sé vikið að starfsmannaliði safnsins. Aðalbókavörður safnsins hef- ur verið frá fyrstu tíð Sigurgeir Einars- son og hefur hann rækt starf sitt af hinni mestu alúð og nærgætni. Aðrir bókaverðir, sem lengst hafa starfað við safnið eru þær Lára Pálsdóttir og Sig- ríður Jakobsdóttir, báðar nýtustu starfsmenn. Þessum starfsmönnum, svo og Elínu sál. Sigurðardóttur og síðar Hermanni Hjartarsyni, sem veitt hafa barnalesstofunni forstöðu, ber að þakka fyrir gott og mikið starf í þágu safns- ins, en þó þrír aðrir starfsmenn hafi síðar bætzt í starfsmannahópinn er augljóst, að starfsmannaliðið er ófull- nægjandi eins og nú er, hvað þá held- ur, ef safnið á að rækja stærra starfs- svið. Gagngerar breytingar á starfs- mannaliði safnsins eru því nauðsynlegar jafnhliða húsnæðisúrlausninni. E. S,

x

Starfsmannablað Reykjavíkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Starfsmannablað Reykjavíkur
https://timarit.is/publication/718

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.