Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.12.1939, Síða 24

Starfsmannablað Reykjavíkur  - 01.12.1939, Síða 24
76 STARFSMANUABLAÐ REYKJAVlKUR I Starlsmannalilað Rejkjavlkur. tJTGEFANDI: Starfsmannat'élag Reykjavíkurbæjar. RITSTJÓRN: Lárus Sigurbjörnsson, aðstoðarm. bæjargjaldkera. Jóhann G. Möller, skrifstofustjóri Rafmv. Rvíkur. Ágúst Jósefsson, heilbrigðisfulltrúi. Auglýsingar annast Auglýsingaskril'stofa E.IÍ., Austurstræti 12. Sími 4292. Starfsmannablað Reykjavíltur kemur út 6 sinnum á ári og kostar utan Starfsmannafél. Reykjavíkurbæjar 5 kr. árg. (6 tölublöð). I lausasölu 1 kr. blaðið. STEINDÓRSPRENT H.F. --- < Gert er ráð fyrir stofu, þar sem menn geti fengið ljósböð (háfjallasól), og er slíkt algengt í Sundhöllum erlendis. — Ennfremur er ætlast til að ræstisalir verði stækkaðir frá því sem nú er með tilliti til framangreindrar aukningar. — Einnig er hugsað til þess að starfsmenn Sundhallarinnar fái betri herbergi til að klæðast og matast í, heldur en nú er. Að lokum er tækifærið notað til að láta þvottahús Sundhallarinnar fá sér- staka straustofu, þar sem hægt yrði að ganga frá öllu taui, er þörf er á. Aukning þessi er fyrirhuguð í sam- bandi við og út frá núverandi reksturs- skipun Sundhallarinnar, og er gert ráð fyrir samskonar deildum fyrir karla og konur. Þess má vænta, að margir hafi áhuga fyrir að Sundhöilin verði bætt á þennan hátt sem fyrst, og er óhætt að vona, að mál þetta verði tekið til athug- unar og fyrirgreiðslu strax og kringum- stæður leyfa. Ó. K. Þ. Úr félagslífinu. Jólatrésskemmtun sína heldur Starfsmannafélag Reykja- víkur fimmtudaginn 4. janúar n.k. Skemmtunin verður fyrir börn og full- orðna með likum hætti og í fyrra, þannig að skemmtiatrióum fyrir börn- in verður lokið um kl. 10, en þar á eftir hefst ball fyrir fullorðna fólkið. — Skemmtunin í fyrra þótti takast með afbrigðum vel. Að þessu sinni mun stjórn félagsins sjálf annast allan undirbúning fyrir skemmtunina. Meðal margra annarra skemmtiatriða, svo sem hins vinsæla jólasveins, má nefna „Jólasveinabúrið“, þar sem börnin fá af- hent sælgæti út á miða, sem fylgja að- göngumiðunum, þá má nefna happ- drætti um tíu stórar konfektöskjur úr „Jólasveinabúrinu“ og er hver sælgætis- miði um leið happdrættismiði. Dregið verður þegar búið er að jeta allt upp úr búrinu. Veitingar fyrir börnin verða frjálsar, þannig að hvert barn fær auk sælgætismiðans veitingarmiða, sem það getur notað hvenær sem er kvöldsins, en þarf ekki að ryðjast að veitingaborð- unum um leið og komið er inn. — Að- gangseyrir verður sá sami og í fyrra. — Félagsmenn, munið að það er tvöföld ánægja að skemmta sér sameiginlega í hópi barnanna! Samtalsfundur var haldinn milli stjórnenda úr nokkr- um starfsmannafélögum bæjarins 15. þ. m. Formaður Félags ísl. símamanna boðaði til fundarins, en hann sátu full- trúar frá F. 1. S., Starfsmannafélagi Reykjavíkur, Póstmannafélaginu og Starfsmannafélagi ríkisstofnana. Nokk-

x

Starfsmannablað Reykjavíkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Starfsmannablað Reykjavíkur
https://timarit.is/publication/718

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.