Starfsmannablað Reykjavíkur - 01.12.1939, Qupperneq 26

Starfsmannablað Reykjavíkur  - 01.12.1939, Qupperneq 26
78 STARFSMANNABLAÐ REYKJAVlKUR Pétu r Jónsson, skrifari hjá Rafmagnsveitu Reykja- víkur varð fimmtíu og fimm ára 21. þ. m. — Hann er sonur þeirra hjóna Jóns kaupmanns Árnasonar og Júlíönu Pét- ursdóttur, sem enn lifir hér í bæ í hárri elli. — Reykvíkingar og aðrir lands- menn munu nú frekar kannast við Pétur Jónsson óperusöngvara en skrifara hjá Rafmagnsveitunni, en sami er maður- inn, því að það hagar nú einu sinni svo til hér á landi, að enginn lifir á listinni einni saman. Pétur Jónsson varð stúd- ent 1906 og sigldi þá til Kaupmanna- hafnar til náms, en tók þá brátt að stunda söng og er ekki að fjölyrða um það, að hann varð brátt vinsæll söngv- ari. Lengst af starfaði Pétur sem óperusöngvari við leikhús í Þýzkalandi, en hann kom heim aftur veturinn 1933. Hér á landi eru sáralitlir möguleikar fyrir starfsemi listamanns á borð við Pétur Jónsson og skilyrði öll hin verstu, hefur hann þó haldið hér nokkra kon- serta síðan hann kom heim aftur og á síðustu árum hefur hann aflað sér al- mennra vinsælda fyrir þátttöku sína í ýmsum óperettusýningum, sem hér hafa verið haldnar. En starfssvið Péturs Jónssonar er söngleikjahúsið — óperan — þar nýtur listamannsgáfa hans sín fyrst til fullnustu. — Pétur Jónsson er ötull og starfsmaðurgóðuraðhverjusem hann gengur, og það er vel, að bæjar- stofnun hefur veitt honum tækifæri til að bjargast upp á eigin spítur við borg- araleg störf. Pétur Jónsson varð starfs- maður Rafmagnsveitu Reykjavíkur 1935. Hann er kvæntur danskri konu, Karen Lovise f. Köhler. Dætur þeirra hjóna eru Erika og Margrét. L. S. Jón B. Jónsson, fertugur 19. desember 1939. Óðalsbóndinn Efrihlíðar yfir fertugt djúpið vóð. Verndi’ ’ann landsins vættir biíðar verði’ ’onum Elli „þæg og góð“, og yngismeyjar íturfríðar að honum sæki í líf og blóð. Allar landsins ær og sauðir um hann jarma hrós í dag. Fyldar merar, folar rauðir á freranum hneggja gleðibrag. Og allir taka ítar snauðir undir þetta sama lag. Fremsti vörður fornrar dyggðar fyrr hann var, — og svo er enn. Frá honum séu sóttir styggðar,

x

Starfsmannablað Reykjavíkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Starfsmannablað Reykjavíkur
https://timarit.is/publication/718

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.