Bankablaðið - 01.12.1976, Page 13
Vornámskeið SIB1976
Dagana 10., 11. og 12. júní s.l. gekkst S.Í.B.
fyrir vornámskeiði að Hótel Valhöll, Þingvöll-
um. Þátttakendur voru 59 víðs vegar af land-
inu. Þrír erlendir gestir voru meðal þátttak-
enda þeir Egil Lauritzen, frá Norske Bankfunk-
sjonærers Forbund, Henning Diemar, frá
Danske Bankfunktionærers Landsforening og
Jouko Luoto, frá Nordiska Bankmannaunion-
en.
Verkefni vornámskeiðsins voru mjög marg-
vísleg, allt frá því að vera um vandamál dags-
ins í dag og til framtíðarverkefna sambandsins,
auk marks konar þjálfunar í félagsstörfum og
ræðumennsku. Ekki er hægt í stuttri frásögn
að tilgreina alla starfsemi námskeiðsins, og
því aðeins stiklað á stóru hér á eftir.
Eftir að formaður sambandsins, Sólon R.
Sigurðsson, hafði sett námskeiðið hófust fram-
söguerindi um skipulag S.Í.B. og síðan um
skipulag Norræna bankamannasambandsins. Að
umræðum þessum loknum hófust æfingar og
tilsögn í ræðumennsku, en því starfi stjórnaði
Pátttakendur á vornámskeiði SÍB, 1976.
BANKABLAÐIÐ 11