Bankablaðið - 01.09.1981, Blaðsíða 8

Bankablaðið - 01.09.1981, Blaðsíða 8
8 32. þing Forsetar 32. þings SIIS Bjami Tómasson og Hulda Ottesen. ALYKTANIR ÞINGSINS Ályktun um kjaramál Þing SÍB 1981 varar alvarlega við þeirri öfugþróun,að frjáls samningsréttur hefur verið stórlega skertur vegna sífelldra af- skipta ríkisstjórna af kjarasamningum, svo ekki verður lengur við unað. Þingið hvet- ur til samstöðu allra stéttarfélaga til að hrinda af sér oki ríkisafskipta á kjarasamn- ingum. ÞingSIB 1981 felur stjórn sambandsins á grundvelli álitsgerðar kjaranefndar þingsins að hefja viðræður við forsvars- menn vinnuveitenda félaga SÍB um raun- hæfar aðgerðir til tryggingar því, að stjórnir þessara vinnuveitenda nýti lögvar- inn rétt sinn til sjálfræðis við undirbúning og gerð kjarasamninga, óháðar ríkis- stjórnum á hverjum tíma. Þing SÍB 1981 vísar til álitsgerðar kjaranefndar þingsins og áréttar m.a. eftirfarandi: 1. Kaupmáttur launa bankamanna hefur rýrnað verulega frá síðasta þingi SÍB til þessa, þrátt fyrir nýjan kjarasamning á tímabilinu. Sú smávægilega leiðrétting, sem loksins náðist í nýjum kjarasamn- ingum í desember 1980 vóg engan veg- inn upp þá langvinnu launaskerðingu, sem orðið hafði og er nú meiri en nokkru sinni fyrr á þessu tímabili og stefnir í enn verra. 2. Þrátt fyrir skýrt ákvæði gildandi kjara- samninga um endurskoðun kaupliða vegna breytinga á vísitölutryggingu, hafa viðsemjendur SIB ekki verið til viðræðna um samningsbundna endur- skoðun. Vísitölubinding launa, sem ríkisstjórnir m/Alþingi geta höggvið á og breytt að vild, verður að teljast árangurslítið og nánast úrelt fyrir- komulag til varnar þeim kjaraskerðing- um og minnkandi kaupmætti launa bankamanna. Afnám þessa varnar- kerfis má þó ekki gerast, nema tryggt verði annað og betra fyrirkomulag en nú er. 3. Jafnlaunastefnan hefur í eðli sínu og framkvæmd reynst vera láglauna- stefna, andstæð hagsmunum margra bankamanna. 4. „Félagsmálapakkar" í tengslum við kjarasamninga bankamanna hafa í flestum tilvikum reynst galtómir, ef þeir þá komast á annað borð í hendur bankamanna fremur eri annarra laun- þega. 5. Þing SIB felur stjórn og samninga- nefnd sambandsins að grundvalla kjaramálastefnu þess m.a. á framan- greindum atriðum. Þing SÍB 1981 samþykkir, að álitsgerð kjaranefndar þingsins skuli vera grund- völlur að stefnu sambandsins í kjaramál- um. Samkvæmt því felur þingið stjórn SÍB að sjá um framkvæmd kjaramála sam- bandsins á þeim grundvelli. 32. þing SÍB felur stjórn SIB að skipa kjaranefnd til að starfa að undirbúningi næstu kjarasamn- inga. Nefnd þessi hafi ályktun kjara- nefndar þingsins í vegarnesti ásamt þeirri reynslu sem fékkst í síðustu kjarasamn- ingum. Þingið leggur áherslu á það, að í næstu samningahrinu verði reynt að virkja þá sérfræðiþekkingu í kjarabaráttumálum sem félagsmenn sambandsins búa yfir. Reynslan hefur sýnt að án reiknimeistara af fullkomnustu tegund, eru launþega- sambönd í vandræðum í samningavið- ræðum. Innan vébandasambandsinserað finna færustu hagfræðinga landsins, sem margir eru sérfræðingar í kjaramálum. Mikilvægt er að þeir verði samninganefnd SIB (og kjaranefnd) til ráðuneytis í fram- tíðinni. Þingið telur nauðsynlegt að í næstu samningaviðræðum hafi samninganefnd eins náið samstarf við stjórnir starfs- mannafélaga og félagsmenn og hægt er. 32. þing SIB felur stjórn sambandsins að safna eftirtöldum upplýsingum um alla fé- lagsmenn vegna komandi kröfugerðar: 1. Aldur. 2. Starfsaldur í banka. 3. Starfsaldur annars staðar. 4. Menntun umfram grunnskólapróf, þ.m.t. námskeið og önnur fræðsla, sem félagsmaðurinn telur starfið varða. 5. Núverandi launafiokkur og þrep. 6. Núverandi starfsheiti. 7. Vinnustaður og deild. Trúnaðarmannakerfi starfsmannafélag- anna verði virkjað til að safna þessum upplýsingum fyrir 1. júní n.k. Ályktun SÍB um valdsvið o.fl. Þing SIB áminnir stjórn og samninga- nefnd sambandsins og formenn og stjórn- ir aðildarfélaganna, að gefnu dlefni vegna kjarasamningamála, að þing SÍB eru æðsta stjórnvald sambandsins á hverjum tíma eftir því sem við á. Þá kröfu verður að gera til stjórnar SIB og aðildarfélaganna, að þeir aðilar hafi þann félagslega þroska, að gera sér fulla grein fyrir takmörkun valdsviðs og því, hvenær ástæða er til sér- stakrar umfjöllunar aukaþings á málum SÍB.

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.