Bankablaðið - 01.09.1981, Side 16
32.þing
þeir Jón Ormur Halldórsson, Ólafur
Ragnar Grímsson og Guðmundur G. Þór-
arinsson. SIB tilnefndi Böðvar Magnús-
son, Svein Sveinsson og Vilhelm G. Krist-
insson í nefndina af sinni hálfu.
Einn fundur hefur verið haldinn í
nefndinni. Þar boðuðu fulltúar ríkis-
stjórnarinnar víðtæk samráð við samtök
launamanna á næstunni. Megi guð láta
gott á vita.
í desember 1979 skrifaði SÍB bréf til
BSRB, BHM, ASÍ og Farmanna og fiski-
mannasambands íslands, þar sem vísað
var til reglubundinna funda þessara sam-
taka nokkrum árum áður, þar sem skiptst
var á fréttum og bornar saman bækur um
margvísleg efni. I bréfinu stakk SÍB upp á
að samtökin tækju upp að nýju þess konar
fundahöld. Undirtektir voru jákvæðar og
snemma á árinu 1980 var fyrsti fundurinn
haldinn. Síðan hafa fundir sem þessi verið
haldnir reglulega.
Verkfall
Fyrsta allsherjarverkfall Sambands
íslenskra bankamanna stóð dagana 8. til
12. desember 1980. Óhætt er að fullyrða,
að aðgerðir þessar hafi verið mikilvægur
prófsteinn á skipulagningu og samstöðu
félagsmanna samtakanna. Mikill fjöldi
bankamanna tók virkan þátt í verkfalls-
starfinu og sýndi vilja sinn í verki á annan
hátt.
Fræðslustarf
Eitt af þeim forgangsverkefnum, sem
stjórn SIB setti sér í upphafi starfstímans
var að efna til framhaldsnámskeiðs fyrir
trúnaðarmenn sambandsins. Námskeið
þetta hafði verið alllengi á döfinni hjá fyrri
stjórn sambandsins, en hafði hins vegar
ekki orðið af ýmsum orsökum.
Vegna kjaramála, sem tekið hafa veru-
legan tíma á starfstímabilinu varð ekki af
þessu námskeiði fyrr en í febrúar 1981.
Námskeiðið var haldið að Hótel Heklu í
Reykjavík dagana 23. til 27. febrúar og
tóku 40 trúnaðarmenn og stjórnarmenn
starfsmannafélaga þátt í því.
Stjórnin telur ntikilvægt, að áfram verði
unnið að þróun og mótun framhalds-
námsins fyrir trúnaðarmenn og veita þeim
þannig nauðsynlegan undirbúning undir
störfin á vinnustað.
Vornámskeið fyrir nýja trúnaðarmenn
og stjórnarmenn í starfsmannafélögunum
voru haldin bæði árin, 1979 og 1980, í
júnímánuði. Dagskrá var með hefð-
bundnu sniði.
I nóvember 1979 efndi sambandið til
nokkurra kvölda námskeiðs í ræðu-
mennsku, Framsögn og fundastjórn að
Laugavegi 103. Leiðbeinendur voru
Tryggvi Þór Aðalsteinsson, fræðslufull-
trúi MFA og Baldvin Halldórsson, leikari.
Um 20 félagsmenn tóku þátt í námskeið-
inu.
Um miðjan febrúar var haldinn
fræðslufundur um skattamál. Veittar voru
leiðbeiningar um útfyllingu nýju framtals-
eyðublaðanna. Leiðbeinandi var Jón Guð-
mundsson, skrifstofustjóri hjá ríkisskatt-
stjóra. Fundurinn var fjölmennur.
Þá var einnig í febrúar 1980 efnt til
fræðslufunda fyrir trúnaðarmenn um að-
búnað og hollustuhætti á vinnustað. A
fundinum kynnti Harald Holsvik, heil-
brigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti ríkis-
ins, sænskt fræðsluefni um þessi mál.
Fundinn sóttu yfir 50 trúnaðarmenn.
Ráðstefnur
Dagana 16. og 17. október 1980efndiSÍB
til ráðstefnu um meðákvörðunarrétt að
Hótel Loftleiðum í Reykjavík. 40 fulltrúar
frá 10 aðildarfélögum SIB tóku þátt í ráð-
stefnunni.
Markmið hennar var þríþætt: 1) Að
fræða þátttakendur um þróun þessara
mála hjá bankamönnum á Norðurlönd-
unt. 2) Að ræða stöðu íslenskra banka-
manna í þessum efnum. 3) Að undirbúa
stefnumótun er varðar meðákvörðunar-
rétt, fyrir næsta þing SIB.
Ove Hygum Andersen frá Sambandi
starfsmanna danskra sparisjóða og
Fredrik Ihlen jr. frá norska bankamanna-
sambandinu voru fengnir sem fyrirlesarar
á ráðstefnunni. Þeir ræddu um stöðu og
þróun þessara mála á Norðurlöndum og
svöruðu fyrirspurnum. Drjúgur hluti ráð-
stef nunnar fór í hópstarf og umræður.
Ráðstefnan skilaði niðurstöðum, sem
m.a. eru birtar í Bankablaðinu 1980 og
verða væntanlega notaðar sem grunnur að
stefnumörkun SIB í meðákvörðunarrétt-
armálum. Ráðstefna þessi var undirbúin
af þriggja mann nefnd, sem í áttu sæti:
Benedikt E. Guðbjartsson, Björn
Tryggvason og Kristín Jónsdóttir.
Starfsemi NBU
Starfsemi NBU hefur veriðöflug á síðustu
tveimur árum. Forseti samtakanna er nú
Gustaf Setterberg, formaður Sænska
bankamannasambandsins, en hann var
kjörinn forseti á þingi NBU, sem haldið
var í Helsinki í Finnlandi í september
1980. Hann tók við af Birte Brandt frá
Danska bankamannasambandinu, sem
gaf ekki kost á sér til endurkjörs.
I stjórn Norræna bankamannasam-
bandsins sitja þrír fulltrúar frá hverju að-
ildarsambandi, nema SIB, sem á einn full-
trúa í stjórninni. Arni Sveinsson sat í
stjórninni fyrir hönd SIB, þar til hann lét
af störfum fyrir SIB vegna nýrra starfa
síðla árs 1980. Sæti hans í stjórn NBU tók
Sveinn Sveinsson. Varamaður beggja var
Vilhelm G. Kristinsson. Stjórnarfundir
hafa verið tveir til þrír á ári.
Nokkrar fastar nefndir starfa á vegum
NBU. Fyrst má nefna nefnd „kontakt-
manna“ NBU, en í henni eiga sæti fram-
kvæmdastjórar norrænu sambandanna
hver í sínu landi. Vilhelm G. Kristinsson er
fulltrúi SIB í þessari nefnd, sem kemur
saman að jafnaði þrisvar á ári. Meginverk-
efni þessarar nefndar er að undirbúa
stjórnarfundi NBU, vinna álitsgerðir og
tillögur sem stjórn NBU tekur síðan til
umfjöllunar og vinna að ýmsum sérverk-
efnum fyrir stjórn sambandsins.
Fræðslunefnd NBU hefur starfað mikið
undanfarin ár. Fulltrúi SIB í nefndinni
síðasta starfsfimabil hefur verið Benedikt
E. Guðbjartsson. Nefndin hefur m.a. und-
irbúið og staðið að samnorrænu uámskeiði